Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.2005, Side 76

Læknablaðið - 15.01.2005, Side 76
1975-1984 / BERKLAVEIKI ástæða var talin til að ætla að gæti verið haldið berkla- veiki. Því hljóðar 6. gr. laganna þannig: „Hafi læknir ástæðu til að ætla, að sjúklingur sé haldinn berkla- veiki, skal hann svo fljótt sem auðið er gera ráðstaf- anir til þess að fá úr því skorið hvort um berklaveiki sé að ræða og tilkynna það tafarlaust héraðslækni (heilsuverndarstöð)“. Og ennfremur: „Héraðslæknir (heilsuverndarstöð) skal hafa vakandi auga á, að allar rannsóknir, sem nauðsynlegt er að framkvæma í um- hverfi berklaveiks manns, til þess að hindra útbreiðslu veikinnar, verði framkvæmdar, og öllum settum fyrir- mælum þar að lútandi hlýtt. Ef nauðsynlegt þykir skal leita fulltingis lögreglustjóra, til þess að franrkvæma rannsóknir á slíkum heimilum eða öðrum stöðum, þar sem grunsamlegt þykir, að um smitandi berklaveiki sé að ræða. Má lögreglustjóri fella úrskurð um, að rann- sókn fari fram á einstökum mönnum eða heimilum, sem skorast hafa undan að ganga undir slíka rann- sókn“. Úrskurðar af þessu tagi hefur aðeins verið leitað í eitt skipti. Og 7. gr. laganna hljóðar þannig: „Fari hinn berklaveiki, aðstandendur hans eða aðrir, sem hann umgengst, eigi eftir reglum þeim, er læknir hefur sett til að koma í veg fyrir útbreiðslu veikinnar, er lækni, heilsuverndarstöð eða öðrum, sem um það er kunnugt, skylt að tilkynna það héraðslækni, sem, ef þörf er, leitar fulltingis lögreglustjóra. Lögreglu- stjóri getur að fenginni umsögn berklayfirlæknis, úr- skurðað hinn berklaveika í sjúkrahús. Nú óhlýðnast sjúklingurinn úrskurðinum, og er lögreglustjóra þá heimilt að annast flutning sjúklingsins þangað á kostn- að hans. Slíkan sjúkling má eigi útskrifa frá sjúkra- húsinu, nema læknir sjúkrahússins og héraðslæknir votti fyrir hlutaðeigandi lögreglustjóra, að af honum stafi engin smithætta lengur eða full ástæða sé til að ætla, að hann muni gæta allrar varúðar og fylgja öll- um settum reglum". Gat lögreglustjóri þá fellt niður fyrri úrskurð. Þetta ákvæði laganna var notað nokkr- um sinnum, einkum þegar í hlut áttu óreglusamir, berklaveikir sjúklingar. Ýmis önnur ákvæði er voru sérstaklega mikilsverð fyrir framkvæmd berklavarnalaganna voru tekin upp í lögin við endurskoðun þeirra. Hafa mörg þessara ákvæða komið að miklu gagni, svo sem tímabundnar rannsóknir á starfsfólki í ákveðnum atvinnugreinum. Eins og áður greinir var strax árið 1935 ákveðið að berklasjúklingar skyldu aðeins vistaðir á sjúkrahús- um og hælum samkvæmt beiðni berklavarnastöðva eða berklayfirlæknis (mynd 1). Ákvörðun þessi var nauðsynleg þar sem sjúkrarúm fyrir berklaveika voru þá af skornum skammti og ráðstöfun þeirra varð að koma að sem mestum notum fyrir þá sjúklinga er voru í mestri þörf. Nýttust sjúkrarúmin á þennan hátt mun betur en ella. Árið 1939 þegar starfslið berklavarnanna fékkst verulega aukið fjölgaði mjög þeim sem voru berkla- rannsakaðir. Það ár voru alls um 11 þúsund manns rannsakaðir, eða rúm 9% þjóðarinnar. Um 2800 manns voru rannsakaðir í 20 héruðum landsins með ferðaröntgentækjum einum og 3,5% þeirra, eða tæp- lega 100 manns, reyndust með virka berklaveiki (29). Árið 1940 tóku rannsóknirnar til nálega helmings allra læknishéraða landsins og voru þá alls 18657 manns, eða 15,2% landsmanna, rannsakaðir. Það ár voru heildarrannsóknir í héruðum hafnar, þ. e. allir íbúar sem til náðist voru rannsakaðir og fóru þær fram í 4 læknishéruðum, Keflavíkur, Svarfdæla, Olafsfjarðar og Bolungarvíkur, en einstök svæði voru rannsökuð í öðrum (Saurbæjarhreppur í Eyjafirði) (30). Rúmlega 8 þúsund manns voru þetta ár rannsakaðir með ferða- röntgentækjum í 16 héruðum landsins. Rannsóknin í Keflavíkurhéraði tók alls til 3349 manns. 7 sjúklingar fundust áður óþekktir (101). Næsta ár var heildarrannsókn gerð í þremur hér- uðum, Hafnarfirði, Húsavík og Vík í Mýrdal (31, 101). í Hafnarfirði tók rannsóknin til 3644, eða allra er talið var að gætu komið. 9 áður óþekktir sjúklingar fundust. Árið 1942 var heildarrannsókn framkvæmd að- eins í einu læknishéraði, Reyðarfjarðarhéraði (í Eski- fjarðarkauptúni), og árið 1943 var endurtekin heild- arrannsókn í Keflavík. Hóprannsóknir voru aftur á móti framkvæmdar í mörgum héruðum á þessum árum. Árið 1944 var heildarrannsókn aðeins gerð á Akranesi (tók hún til 1960 manns, eða allra sem taldir voru geta komið), í Bolungarvík (í annað sinn) og í Hornafjarðarhéraði. Árið 1942 hafði aðstoðarlæknir berklayfirlæknis, Ólafur Geirsson, ráðist í aðstoðar- læknisstöðu á Vífilsstaðahæli og dró það því eðlilega úr heildarrannsóknum í héruðum það ár og næstu, enda þótt aðrir læknar gegndu því starfi að hálfu. En árið 1945 réðst ungur læknir, Jón Eiríksson sem unn- ið hafði lengi erlendis að berklarannsóknum, í þessa stöðu og hefur hann stöðugt gegnt henni fram á þetta ár, 1975. Það ár (1945) var heildarrannsókn gerð á íbúum Reykjavíkur en íbúafjöldinn var þá um 45800 manns. 98,15% íbúanna voru rannsakaðir með tuberkulin- prófi og röntgen en 1,1%, einkum gamalmenni, voru skoðaðir í heimahúsum án röntgenrannsóknar (hlust- un og hrákarannsóknir). Tók rannsóknin til 44117 manns eða 99,32% íbúanna. Aðrir, eða 0,68%, voru fjarverandi eða burtfluttir meðan á rannsókninni stóð. Við rannsóknina fannst 71 sjúklingur með virka berklaveiki. Þeir voru allir óþekktir áður (101, 110- 113). Það ár voru 40,8% allrar þjóðarinnar berkla- rannsökuð (53371 manns). Árið 1948 fengust keypt til landsins röntgen- skyggnimyndatæki (72), myndastærð 70 mm, sem einnig var hægt að nota sem ferðatæki. Áður höfðu allar röntgenrannsóknirnar við heildar- og hóprann- sóknir utan Reykjavíkur verið gerðar með gegnlýs- ingartækjum og röntgenmyndaðir þeir einstaklingar 76 Læknablaðið 2005/91
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.