Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2005, Page 82

Læknablaðið - 15.01.2005, Page 82
1 975-1 984 / BERKLAVEIKI upplýsta sem kostur er á. Öðru máli er að gegna þar sem prestur gefur skýrslu um dauðameinið. Að vísu getur stundum verið að enginn vafi leiki á um það en það er samt varla við öðru að búast en að ákvarð- anir prestsins á dauðameinunum verði oft nokkuð af handahófi, einkum þar sem nafnaskráin yfir dauða- meinin sem þeir eiga að fara eftir er mjög nákvæm- lega sundurliðuð svo að það mun ofætlun fyrir flesta presta að gera þar á skýra grein. Að vísu eiga lækn- arnir að rannsaka skýrslur prestanna á eftir og lag- færa það sem þeim þykir ábótavant en þó það megi takast í ýmsum tilfellum er hætt við að læknana skorti oft kunnugleika til þess að gera það svo öruggt sé. En stundum virðist líka sem læknarnir hafi tekið sér rannsóknina mjög létt og ekki hreyft við skýrslum prestanna, jafnvel þar sem sýnilegt var að þeim hlaut að vera ábótavant. Þess vegna hefur hagstofan skipt mannslátunum 1911-15 undir hverjum einstökum lið í 3 flokka: 1. Þau sem dánarvottorð eru fyrir, 2. þau sem standa á prestaskýrslum sem sýnilegt er að læknir hefur yfirfarið og leiðrétt, 3. þau sem standa á presta- skýrslum er læknir virðist ekki hafa rannsakað.“ Árin 1911-15 voru í tveimur fyrstu flokkunum 48,1% allra dánarvottorða en síðan hefur dánarvott- orðum þeim sem prestar hafa annast eingöngu stöð- ugt farið fækkandi. Árin 1931-35 námu tveir fyrstu flokkarnir 76% allra dánarvottorðanna en presta- flokkurinn var nú aðeins 24% (20). Síðan hefur dán- arskýrslum lækna fjölgað til muna og voru á 5 ára bilinu 1946-50 88% (21). Jafnframt því sem dánarvottorðum þeim er læknar gefa hefur þannig fjölgað eru þau, einkum síðasta ára- tuginn, einnig mun áreiðanlegri en til að byrja með. Með lögum frá 1950 (137) með gildistöku í byrj- un næsta árs var ákveðið að rita skyldi dánarvottorð fyrir hvern þann er dæi hér á landi. Samkvæmt þessu hafa frá ársbyrjun 1951 verið gefin út dánarvottorð um öll mannslát hér á landi nema þar sem lík hafa eigi fundist. 1 mannfjöldaskýrslum Hagstofu íslands hafa dán- arorsakir verið greindar á eftirfarandi hátt: Frá 1911-40 samkvæmt íslenskri skrá frá árinu 1911 (8), frá 1941-50 samkvæmt alþjóðlegri dánar- meinaskrá frá 1938, frá 1951-57 samkvæmt alþjóða- skrá Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar frá 1948 (22, 142, 147) og frá 1958-70 samkvæmt breytingu sömu alþjóðaskrár (WHO) frá 1955 (23). Má fullyrða að dánarmeinaskrárnar hafi frá fyrstu tíð í öllum að- alatriðum verið gerðar í samræmi við reglur um dán- arskrár annarra þjóða. Hins vegar rýrir það nokkuð gildi dánarvottorðanna sjálfra að þau eru eigi að öllu gefin út af læknum fyrr en eftir 1950 þó að lítið vanti á að svo sé, einkum síðustu áratugina fyrir 1950. Betri og öruggari sjúkdómsgreiningar, fjölgun starfandi lækna og sjúkrahúsa með líkskurði margra látinna bæta hér mikið um. Fig. 9. NEW CASES OF TUBERCULOSIS (ALLFORMS)PER 1,000 POPULATION ASE IN YEARS Tölur þær um berkladauðann er birtar verða hér Fig. 10. eru unnar úr mannfjöldaskýrslum Hagstofu fslands (1911-70). Munu dánarskýrslur berklaveikra oftast hafa verið athugaðar sérstaklega af lækni áður en Hagstofan gekk endanlega frá þeim. Árin 1911-32 fór yfirlæknir Vífilsstaðahælis oftast yfir skýrslurnar og berklayfirlæknir eftir 1932. Á mynd 11 sést heildarmanndauðinn á íslandi 1911-70. Á þremur fyrstu áratugunum eru allmiklar sveiflur milli ára sem jafnast og hverfa upp úr 1940. Eru það farsóttirnar sem láta hér til sín taka. Þannig hefur kikhósti og lungnabólgufaraldur áhrif til hækk- unar á heildarmanndauðann bæði árin 1914 og 1915, inflúensa (spánska veikin) á árinu 1918, inflúensa, barnaveiki og taugaveiki á árinu 1921, mislingar, in- flúensa og mænusótt á árinu 1924 og kikhósti á árinu 1927. Árið 1935 gengur kikhósti aftur (123 dauðsföll) og mænusótt og á árunum 1937 og 1941 rná enn sjá á línuritinu greinileg farsóttamerki (inflúensufaraldur) er gengur bæði þessi ár. Eftir þetta jafnast línuritið og liggur tvo síðustu áratugina yfirleitt milli 6,6-7,9 dá- inna miðað við hvert þúsund íbúa. 82 Læknablaðið 2005/91
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.