Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2005, Page 90

Læknablaðið - 15.01.2005, Page 90
1 975-1984 / BERKLAVEIKI 33,1% karla og 31,8% kvenna í kauptúnum og kaup- stöðum smitaðir en 19,7% karla og 17,7% kvenna í sveitum, á aldursskeiðinu 20-29 ára 74,3% karla og 68,1% kvenna í kauptúnum og kaupstöðum en 46,1% karla og 35,1% kvenna í sveitum. Á aldursskeiðinu 40-49 ára er smitunin 94,2% hjá körlum í kauptún- um og kaupstöðum og 85,7% hjá konum en í sveitum 71,8% hjá körlum og 59,1% hjá konum og fer smitun í sveitum vart hærra en þetta. Er þessi mismunur á smitun fólks í sveitum ann- ars vegar og kauptúnum og kaupstöðum hins vegar því mjög mikill og á aldrinum 10-60 ára svo mikill að hann er tölfræðilega marktækur. Athyglisvert er einnig að konur eru yfirleitt síður smitaðar en karlar. Er þessi mismunur eigi mikill í kauptúnum og kaupstöðum en mjög áberandi í sveit- um. Munurinn kemur fyrst verulega í ljós í sveitum eftir 15 ára aldur en í kaupstöðum um 18-20 ára aldur. Verður hann naumast skýrður á annan hátt eðlilegri en þann að vegna starfa sinna utanhúss og ferðalaga verða karlmenn í meiri hættu fyrir smitun en konur sem dveljast meira innanhúss og fást við heimilis- störf. Er þessi mismunur því eðlilega meira áberandi í sveitum en kaupstöðum. Að þessa smitunarmismun- ar gætir fyrst eftir 15 ára aldur kemur af því að fram til þess aldurs lifa stúlkur og drengir yfirleitt við svipuð skilyrði. Eftir að skólaaldri sleppir koma fram áhrif þau er atvinnulífið hefur á smitunina. Til þess að vekja ennfremur athygli á hinum mikla mismun sem verið gat á berklasmitun hinna ýmsu sveitahéraða landsins á þessum árum skal hér að lokum tilfærður sérstaklega árangur berklaprófsins í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði árið 1940 og Hofshreppi í Austur-Skaftafellssýslu (Öræfasveit) árið 1944 (sjá mynd 18 og mynd 19). Hinn rnikli mismunur berkla- smitunar þessara tveggja hreppsfélaga er mjög áber- 90 Læknablaðið 2005/91 Fig. 19. andi. Annar hreppurinn er mjög einangraður, hinn í mannmörgu læknishéraði og mikill samgangur við stóran kaupstað á hérlendan mælikvarða þar sem berklasmitun var um skeið mikil og útbreidd. Hér að framan hefur nokkuð verið rætt um tuberk- ulinpróf í landinu frá fyrstu tíð (þ.e. öðrum og þriðja áratug 20. aldar) og fram til síðustu ára. Af þessum rannsóknum má draga nokkrar ályktanir varðandi berklasmitun og gang sjúkdómsins í landinu. 1. Á aldursskeiðinu 7-13 ára er berklasmitun þeg- ar á öðrum og þriðja áratug 20. aldarinnar all- mjög útbreidd. 2. Frá fjórða áratugnum, einkum eftir hann miðj- an, fer smitunin ört minnkandi í þessum ald- ursflokkum og er árið 1970 um 1% í 14 ára aldursflokknum (36). En mælikvarðinn sem sérfræðinefnd alþjóðaheilbrigðisstofnunarinn- ar um berklaveiki setti í skýrslu sinni (148) 1959 var einmitt sá að telja beri berklaveiki eigi leng- ur heilsufarslegt vandamál þjóða þegar berkla- smitun 14 ára barna nái eigi 1%. Því marki hefur íslenska þjóðin því eigi fyllilega náð árið 1970 en virðist nálgast það mjög hratt. 3. Tuberkulinrannsóknir sem framkvæmdar voru á árunum 1940-44 sýndu að berklasmitun var þá tíðari í körlum en konum. Þessi mismunur á smitun kynjanna kom fyrst í ljós um og eftir 15 ára aldur og var meira áberandi í dreifbýlum sveitahéruðum en í kauptúnum og kaupstöð- um. 4. Mikill munur var á berklasmitun einstakra héraða landsins. Fór slíkt aðallega eftir legu þeirra, hvort þau voru einangruð eða á miklu samgöngusvæði. Var smitunin áberandi meiri í kaupstöðum og kauptúnum landsins en í sveita- héruðum þess.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.