Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2005, Page 91

Læknablaðið - 15.01.2005, Page 91
1975-1984 / BERKLAVEIKI 4. Líkskurðir Þess hefur fyrr verið getið að svo virðist sem fyrsta krufning sem vitað er um að gerð hafi verið í landinu hafi verið á líki berklaveiks manns. Fram til ársins 1945 hafa svo fáar krufningar ver- ið gerðar að litlar og ófullkomnar ályktanir verða dregnar af þeim en engar sérstakar skýrslur eru til um tíðni berklaeinkenna við þær krufningar sem hafa far- ið fram síðan. Á árunum 1898-1919 krufði Sæmundur Bjarnhéð- insson 111 lík holdsveikra sjúklinga er látist höfðu á Laugarnesspítalanum í Reykjavík. Lungnaberklar voru taldir dánarorsök 20 þeirra. Auk þess létust 2 úr lífhimnubólgu af berklauppruna. Þá fundust berklar „í lungum eða kirtlum (eitlum) í 16 líkum með vott um undanfarandi brjósthimnubólgu (fibrösa adher- ensa). Þar að auki voru 8 lík með afmörkuð og inn- köpsluð infiltröt eða hnúta ostmyndaða, kalkmynd- aða eða örbrígsl." (140). Má þannig telja víst að 46 af hinum 111 krufðu hafi haft berklaveiki, eða 41,4%. Auk þess fundust menj- ar brjósthimnubólgu (af berklauppruna?) í 26 líkum. Hafa því vafasöm berklaeinkenni fundist í 72 líkum af lll.eða 64,9%. Eigi er getið um aldur hinna krufðu en líklegt má telja að hér hafi yfirleitt verið um eldra fólk að ræða. Þá gerði N. Dungal 1031 líkskurð á árunum 1932- 44. Líkin komu frá eftirgreindum stofnunum: Land- spítalanum, Geðveikrahælinu að Kleppi, Vífilsstaða- hæli og lögregluyfirvöldum (réttarlæknisrannsóknir). Höfundur getur þess að 243 lík, eða 23,7% af heild- artölu hinna krufðu, hafi verið frá Vífilsstaðahæli. Á sama tíma var berkladauðinn ekki nema 8,9% alls manndauðans. Er því ljóst að eigi verða dregnar ályktanir beint frá heildartölu krufninganna um tíðni berklasmitunar í landinu og hvenær menn smitist af berklaveiki. Hitt er nær lagi að dæma berklasmitun- ina aðeins eftir þeim krufningum sem eftir verða er allar krufningar þeirra er létust af völdum berklaveiki hafa verið felldar burt. Það gerir Dungal og sést ár- angur þessara athugana af meðfylgjandi töflu hans: Table VIII. Tuberculosis lesions in persons not dying of tuberculosis. (From N. Dungal's article: Occurrence and manifestations oftuberculosis in lceland). Age Tbc. % Tbc. No Tbc. % 0-10 1 2.1 47 97.9 11-20 10 26.3 28 73.7 21-30 43 44.8 53 55.2 31-40 44 36.4 77 63.6 41-50 53 39.1 81 60.9 51-60 55 40.4 81 59.6 61-70 54 40.6 79 59.4 71-90 28 34.1 54 65.9 Út frá henni ályktar höfundur að berklasmitun sé fátíð í börnum en aukist skyndilega eftir kynþroska- aldurinn og berkladauðinn sé langmestur á aldurs- skeiðinu 20-30 ára. Um 20 ára aldur telur hann að um 40% þjóðarinnar sé smituð en að gera megi ráð fyrir að 40-60% af fullorðnum smitist alls ekki. Sönn- un þess að talsvert af fólki nái háum aldri án þess að verða fyrir berklasmitun sé að þau einkenni berkla- veikinnar sem einkum og tíðum fylgja fljótlega í far frumsmitunar komi einnig fyrir hjá gömlu fólki. Dungal tekur sérstaklega fram að við framkvæmd krufninganna hafi hann aðeins talið til berklaveiki þær vefjabreytingar sem tvímælalaust báru sérein- kenni þess sjúkdóms, svo sem greinilega berklahnúta og ost- eða kalkmyndanir o.s.frv. I öllum vafatilfell- um skáru smásjárathuganir úr. Samvextir eftir brjóst- himnubólgu voru því aðeins taldir berklakyns að slík- ar breytingar fyndust í tilsvarandi lunga eða eitlum (70). Séu hin 26 lík sem Sæmundur Bjarnhéðinsson telur með menjar (samvexti) eftir brjósthimnubólgu ekki færð undir örugg berklaeinkenni þar sem rann- sókn hans var aðeins makroskopisk virðist athugun- um þessara höfunda bera allvel saman. Bólusetning gegn berklaveiki (BCG) Á árunurn 1947-48 var gerð áætlun um að taka hér upp kerfisbundna berklabólusetningu. Hafði þetta reyndar verið í athugun frá því fyrir síðari heimsstyrj- öld en óframkvæmanlegt meðan samgöngubann var við meginland Evrópu þar sem bóluefnið var eingöngu framleitt á Norðurlöndum og í Frakklandi. Hófst bólu- setningin þegar árið 1945 er samgöngur opnuðust á ný en til að byrja með voru aðeins fáir tugir ntanna bólusettir. Hér ríkti eins og víðar á Norðurlöndum um þetta leyti mikill áhuga á berklabólusetningunni (100, 81, 45, 82) en frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð voru í sambandi við UNICEF, WHO og heilbrigðisstjórnir ýmissa Evrópulanda gerðir út hjálparleiðangrar lækna og hjúkrunarfólks til berklabólusetningar um flest öll lönd Evrópu þar sem milljónir manna, einkum barna og unglinga, voru bólusettir. Nefndist fyrirtæki þetta Internat. Tub. Campaign eða Joint Enterprise (42). Ýtti þetta undir frekari framkvæmd slíkrar bólusetn- ingar hér á landi. Var ákveðið að bólusetja einkum aldursflokkana frá 12-29 ára þar sem smitun var talin algengust á þessu aldursskeiði (101). í samráði við alla þá aðila er að berklavörnum störfuðu hér var hafist handa um bólusetninguna á árunum 1947-48 og mest bólusett á árinu 1949 (um 3000 manns). Einmitt um þetta leyti hafði sá er þetta ritar gott tækifæri til að kynnast framkvæmd berklabólusetn- ingarinnar vegna starfa hans við berklarannsókna- stofnun Sameinuðu þjóðanna (WHO, Tuberculosis Research Office) í Kaupmannahöfn á því ári. Varð Læknablaðið 2005/91 91
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.