Læknablaðið - 15.01.2005, Page 92
1975-1 984 / BERKLAVEIKI
vera hans þar meðal annars til þess að fyrirhugað
var að hefja samstarf milli þessarar stofnunar og ís-
lenskra heilbrigðisyflrvalda um framkvæmd víðtækra
berklarannsókna hérlendis, einkum tuberkulinprófa
meðal BCG bólusettra og ekki bólusettra barna og
unglinga og gera samanburð á berklasýkingartíðni
þessara hópa.
Vegna þessarar ráðagerðar var efnt til stofnunar
allsherjarspjaldskrár allra landsmanna og henni kom-
ið á fót við Hagstofu íslands. Greiddu þessir aðilar
sameiginlega 17% stofnkostnaðar spjaldskrárinnar
(61,32,103).
En löngu áður en spjaldskránni var lokið var hins
vegar horfið frá þessum samrannsóknum bæði vegna
hins ört lækkandi berkladauða og berklasmitunar
hér á landinu og einnig af breyttum aðstæðum berkla-
rannsóknastofnunarinnar í Kaupmannahöfn.
Við nánari kynni af framkvæmd berklabólusetn-
ingarinnar í Evrópulöndum um þessar mundir vakn-
aði ennfremur hjá berklayfirlækni mikill efi á því
hvort almenn berklabólusetning hér á landi væri jafn-
réttlætanleg og í öðrum Evrópulöndum þar sem styrj-
öldin hafði geysað.
Til þess efa lágu eftirtaldar ástæður: 1) Öruggt
var talið að bólusetningin ylli aðeins takmörkuðu
(relativ) ónæmi um nokkurra eða allt að þriggja ára
skeið og væri því á þeim tíma tæpast hætta á primær
eða post-primær berklaveiki hjá nýsmituðu fólki. 2)
Við bólusetninguna varð hinn bólusetti jákvæður við
berklapróf og var talið að það ástand héldist lengur
en nægilegt mótefni til að varna sýkingu. 3) Það er
staðreynd að berklabólusetningin hefur öðru hvoru
í för með sér fylgikvilla sem baka hinum bólusetta
óþægindum, að minnsta kosti um nokkurt skeið
(ígerð, eitlabólga o. fl.), en örsjaldan mun hún þó hafa
orsakað alvarlegan sjúkdóm. 4) Með bólusetningunni
eyðileggst gildi berklaprófsins til sjúkdómsgreiningar
þar sem hinn neikvæði sem er berklabólusettur verð-
ur jákvæður eða með vafasama svörun eftir bólusetn-
inguna og helst það ástand lengur en vissa um ónæmi
sem áður greinir.
Er hér var komið málum var ástandið hér á landi
orðið talsvert frábrugðið því sem var í Mið-Evrópu-
löndunum um þetta leyti. Berklasmitun hér á landi
samkvæmt berklaprófi á börnum á barnaskólaaldri
hafði á síðustu 15 árum lækkað mjög mikið og ört og
nýskráðum berklasjúklingum fækkað stórlega. Svo
virtist sem berklarannsóknirnar hér og aðrir þættir
berklavarna hefðu borið mikinn árangur. Með árleg-
um berklaprófum á skólabörnum til 13 ára aldurs og
með heildarrannsóknum í mjög smituðum héruðum
hafði nær því alltaf verið hægt að rekja sig að smit-
unaruppsprettum og koma sjúklingum í viðeigandi
meðferð.
Þessar staðreyndir ollu því að sá er þetta ritar
lagði til við samstarfsmenn sína mikla takmörkun á
notkun berklabólusetningar hér á landi. Seint á árinu
1949 og eftir að hann hafði á ný á næsta ári starfað
um nokkurra vikna skeið á berklarannsóknarstöð
Who í Höfn tók hann þá ákvörðun að hætta hinni al-
mennu berklabólusetningu (114) en berklabólusetja
aðeins ákveðna hópa fólks er væru sérstaklega í smit-
unarhættu. Frá árinu 1950 voru þessi hópar sem hér
greinir:
1. Fólk sem er ósmitað berklaveiki en dvelst eða
býr í næsta umhverfi við sjúklinga með smitandi
berklaveiki.
2. Lækna- og hjúkrunarnemar og starfsfólk er
stundar sjúklinga eða annast berklarannsóknir.
3. Stúdentar og annað námsfólk sem gerir ráð fyr-
ir að stunda nám við erlendar stofnanir þar sem
berklasmitun er tíð.
4. Allir sem óska eftir að verða bólusettir.
Hefur þessari áætlun yfirleitt verið fylgt síðan.
Alls munu um 13.900 manns hafa verið BCG bólu-
settir á öllu landinu á tímabilinu frá 1945-70. Af þess-
um fjölda var um það bil helmingurinn, eða um 6900,
bólusettir á árunum 1945-50. Flestir þeirra voru fædd-
ir á árunum 1929-36. Náði árleg bólusetning mest til
15% fæddra á þessu átta ára tímabili.
Á tímabilinu frá 1951-70 hafa um 7000 manns ver-
ið bólusettir. Er það um 350 manns að meðaltali á ári
og úr mjög mismunandi aldursfiokkum.
Getur BCG bólusetningin notuð við svo fáa því
vart talist hafa haft staðtölulegt gildi til breytinga á
gangi sjúkdómsins í landinu.
Ekki er sennilegt að fyrst um sinn verði breyt-
ing á notkun BCG bólusetningar hér á landi frá því
sem lýst hefur verið hér að framan. Á undanförnum
árum hefur hins vegar aukist notkun hinna sérhæfðu
berklalyfja í varnarskyni gegn sjúkdómnum þar sem
þess hefur verið talin þörf og gefist vel. Má telja senni-
legt að slíkri notkun verði að einhverju leyti haldið
áfram.
Ef svo heldur áfram sem nú horfir er ljóst að inn-
an fárra ára hefur langmestur hluti þjóðarinnar ekki
tekið berklasmit. Ef hagur hennar skyldi skyndilega
breytast á þann hátt að líkur yrðu á aukinni berkla-
smitun í landinu sem eigi yrði heft með notkun lyfja
er auðvelt að grípa til berklabólusetningarinnar á ný
og bólusetja ákveðna aldurshópa, stéttir, svæðishópa
eða þjóðina alla. Með æfðu starfsliði væri slíkt aðeins
fárra mánaða vinna.
Á sl. 25 árum hefur BCG bólusetningin tekið ýms-
um breytingum og er nú nokkuð meira vitað um verk-
anir hennar en áður var. Framleiðsla bóluefnisins er
nú miklu öruggari en fyrr því miklar styrkleikasveifl-
ur voru þá tíðar í bóluefninu. Eftir að framleiðsla á
þurru bóluefni var hafin má varðveita það lengur án
þess að virkni þess breytist eða þverri.
Þá hefur reynsla fengist fyrir því að bólusetja má
gegn berklaveiki samtímis ýmsum öðrum sjúkdóntum,
92 Læknablaðid 2005/91