Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2005, Síða 9

Læknablaðið - 15.11.2005, Síða 9
RITSTJÓRNARGREINAR læknar undan Kjaranefnd og á þann hátt losnaði um „bundnar hendur" ráðherra til að beita sér fyrir bættum kjörum og starfsréttindum heimilis- lækna. Þrátt fyrir að þrjú ár séu liðin frá því að heimilis- læknar, sumir hverjir með miklum semingi, ákváðu að trúa viljayfirlýsingunni hafa heimilislæknar ekki enn sömu möguleika til starfa og aðrir sér- greinalæknar og mikilvægasti hluti viljayfirlýsing- arinnar sem lýtur að starfsréttindum er enn ekki orðinn að veruleika. Þær heilsugæslustöðvar sem nú eru að taka til starfa, Heilsugæslan í Voga- og Heimahverfi og Heilsugæslan í Firði í Hafnarfirði verða reknar á sama hátt og eldri stöðvar. Reyndar hefur miðstýringin orðið enn meiri en áður með sameiningu allra heilsugæslustöðva á höfuðborg- arsvæðinu og því hefur í reynd verið stigið skref í þveröfuga átt við það sem lofað var. Af hálfu lækna var skipuð viðræðunefnd á grundvelli þessarar viljayfirlýsingar sem átti að vinna með heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyt- inu að framgangi málsins. I júlí 2003 sagði einn læknirinn sig úr nefndinni með þeim orðum að að- eins hefði verið haldinn einn fundur og að ekkert bólaði á þeim næsta og nýlega var haft eftir ráð- herra í fjölmiðlum að málið hefði dregist á langinn vegna anna í ráðuneytinu en fljótlega yrði reynt að gera bragarbót á því. Nú verður hver og einn að meta það fyrir sig hvort þessi viljayfirlýsing var sett fram á sínum tíma til þess að slá ryki í augun á heimilislæknum eða hvort um var að ræða vel ígrundaða tilraun til þess að leiðrétta það misrétti sem heimilislæknar hafa mátt búa við. Þriggja ára afmælisveisla „viljayfirlýsingarinnar" er nú varla veisla sem heimilislæknar vilja sækja og er heldur ekki afmæli sem heilbrigðisráðherra getur verið stoltur af. Þó er nú dáldið skondið að skoða þetta afmælisboð. Öðrum megin borðs bláeygir heimilislæknar sem trúðu heilbrigðisráðherra og hinum megin ráðherrann sem einn veit hvort einhver raunveruleg meining var í þessari yfir- lýsingu. Hafi hann ekki meint neitt sérstakt með þessu glottir hann sjálfsagt í kampinn yfir því hve gabbið gekk vel upp. Hafi hann hins vegar ætlað sér að standa við orð sín, ja, þá er nú löngu kominn tími að gyrða sig í brók og ganga til verks. Á síðasta aðalfundi Læknafélags íslands (LÍ) var lögð fram afar merkileg skýrsla sem ber titil- inn „Staða og framtíð íslenskra heimilislækna". Þessi skýrsla er geysilega vel unnin og eiga þeir sem að henni standa mikið hrós skilið. í henni er á vandaðan hátt fjallað um stöðu heimilislækna og þá möguleika sem sjáanlegir eru í nánustu fram- tíð. í skýrslunni er meðal annars farið yfir hvaða stefnu hinir mismunandi stjórnmálaflokkar hafa hvað varðar heilbrigðismál og þá sérstaklega mál heilsugæslu- og heimilislækna. Skýrslan er mikil- vægt innlegg LÍ í umræðu um aukið sjálfstæði íslenskra heimilislækna og hefur vakið verðskuld- aða athygli. Þannig tók Morgunblaðið málið upp í leiðara og lýsti þar yfir undrun sinni á því af hverju heimilislæknar fengju ekki sömu réttindi og aðrir læknar og að hlutur einkareksturs ætti að aukast. Leiðarahöfundur áttar sig greinilega á kjarna málsins, þjónustan og kostnaður við hana skiptir meginmáli og að allir hafi jafnan aðgang að þjón- ustunni. Rekstrarformið, það er opinber rekstur eða einkarekstur, er ekki aðalatriðið. Það er fróðlegt að lesa stefnuskrár stjórnmála- flokkanna um heilbrigðismál. Óumdeilt er að mikilvægt sé að tryggja jafnan aðgang allra að heil- brigðisþjónustunni óháð efnahag eða félagslegri stöðu. I ályktun um heilbrigðismál á nýloknum landsfundi Sjálfstæðisflokksins segir: Landsfundur hvetur til aukins samstarfs opin- berra aðila og einkaaðila um rekstur einstakra þátta í heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að hagkvæmni og kostir einkarekstrar fái notið sín sem vfðast. Fundurinn telur að í heilbrigð- isþjónustu. jafnt sem öðrum atvinnugreinum, sé þörf fyrir framtak einstaklinga og minnkandi opinberan rekstur. Fundurinn leggur sérstaka áherslu á fjölbreytt rekstrarform og valmögu- leika í heilsugæslu, auk tilfærslu verkefna í heilsu- gæslu og einstakra verkefna í sjúkrahúsþjónustu frá ríki til annarra aðila. Áður hafði landsfundur Samfylkingarinnar sam- þykkt ítarlega ályktun um heilbrigðismál en þar segir meðal annars: Skoða þarf breytt rekstrarform í heilbrigðisþjón- ustu með opnum huga. Einkarekstur er ekki einkavæðing. Gefa á sérfræðingum í heimilis- lækningum kost á að starfrækja sjálfir læknastof- ur enda óhemjumikil þörf fyrir þeirra þjónustu. Það er því Ijóst að tveir stærstu stjórnmálaflokk- ar landsins hafa nánast sömu stefnu hvað varðar möguleika heimilislækna til að starfa sjálfstætt. Viljayfirlýsing heilbrigðisráðherra gekk einnig út á hið sama. Heimilislæknar trúðu viljayfirlýsingunni. Hvernig stendur á því að stefna stjórnmálaflokka sem yfir 70% kjósenda kjósa og heilbrigðisráð- herra „lýsir yfir vilja til að uppfylla“ nær ekki fram? Var viljayfirlýsingin bara einfalt gabb? Hvaða hægagangur er þetta eða eftir hverju er verið að bíða? Heimilislæknar verða því enn um sinn að bíða eftir leiðréttingu á starfsréttindum sínum en sú skýrsla um stöðu og framtíð íslenskra heim- ilislækna sem lögð var fram á síðasta aðalfundi LÍ verður vafalaust gott veganesti í áframhaldandi baráttu. Læknablaðið 2005/91 809
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.