Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.2005, Page 14

Læknablaðið - 15.11.2005, Page 14
FRÆÐIGREINAR / HÁTÍÐNIÖNDUNARVÉL Meðferð með HTÖ hófst á vökudeild Barna- spítala Hringsins fyrir rúmurn tíu árum. Tilgangur þessarar rannsóknar er að meta árangur þessarar meðferðartækni frá upphafi hennar hér á landi. Tilfellahópur og aðferðir Rannsóknin var afturskyggn og náði til þeirra ný- bura sem meðhöndlaðir voru með HTÖ frá því sú meðferð hófst á vökudeild Barnaspítala Hringsins í september 1994 og til loka árs 2004. Skilyrði fyrir þátttöku í rannsókninni 1) Barnið þurfti fyrst að hafa verið meðhöndlað með hefðbundinni öndunarvél, en síðan með HTÖ þar sem hefðbundin öndunarvélameð- ferð var ekki talin hafa gefið tilætlaðan árangur. Þar sem á vökudeildinni hafa ekki verið til nein fyrirfram ákveðin skilmerki um það livenær HTÖ meðferð skuli hafin var sú ákvörðun tekin samkvæmt klínísku mati þess barnalæknis sem ábyrgur var fyrir meðferð barnsins á viðkom- andi tíma. 2) Hlutþrýstingur súrefnis í innöndunarlofti (Fiö2) þurfti að hafa verið >0,5 (öndunarbilun af teg- und 1) og/eða að hlutþrýstingur koltvísýrings í slagæðablóði (pCÖ2) þurfti að hafa verið >50 mmHg (öndunarbilun af tegund 2) áður en meðferð með HTÖ var hafin. Stillingar á hátíðniöndunarvélinni Tíðnin á HTÖ var yfirleitt valin þannig að 10 Hz voru notuð fyrir börn þyngri en 1500 g og 15 Hz fyrir minni börn (3), þar sem andrýmd (tidal vol- ume) minnkar með hækkandi tíðni. Loftflæðið var alltaf 20 L/mín og hlutfall inn- og útöndunar 0,33 (3). Eftir að börnin höfðu verið tengd við HTÖ var meðalþrýstingurinn aukinn þar til hægt var að minnka hlutfall súrefnis í innöndunarlofti (Fiö,). Fljótlega var tekin röntgenmynd af barninu og meðalþrýstingurinn stilltur þannig að staða þindar var við áttunda til níunda rif. Þrýstingssveiflurnar umhverfis meðalþrýstinginn voru stilltar þannig að hlutþrýstingur koltvísýrings (pCÖ2) í slagæðablóði yrði milli 35 og 45 mmHg. KUnískar upplýsingar og mat á árangri meðferðar Klínískar upplýsingar voru fengnar úr sjúkraskrám barnanna. Skráðar voru stillingar á öndunarvélum, sýrustig slagæðablóðs (pH) og blóðgös barnanna rétt áður en meðferð með hefðbundinni öndunar- vél var hætt, og tveimur og fjórum klukkustundum eftir að meðferð með HTÖ var hafin. Eftirfarandi stillingar á öndunarvélunum voru skráðar: Fiö2, innöndunarþrýstingur (peak inspiratory pressure, PIP), útöndunarþrýstingur (positive end expir- atory pressure, PEEP), tíðni öndunar, hlutfall inn- og útöndunartíma, og sá meðalþrýstingur lofts sem öndunarvélin gaf (mean airway pressure, MAP). Sýrustig (pH) slagæðablóðs, hlutþrýstingur súrefnis í slagæðablóði (pö2) og hlutþrýstingur kol- tvísýrings í slagæðablóði (pCÖ2) voru skráð. Við mat á árangri HTÖ meðferðar voru eftir- farandi þættir notaðir: 1) A-a pO, mismunur (mismunur súrefnisþrýst- ings í slagæðum og lungnablöðrum = (Fiö, x ((713 - pö2) - (pCö2 / 0,8)) og súrefnisstuð- ull (oxygenation index, OI) (FiOz x MAP x 100/pO2) voru notuð til að meta blóðildun. 2) pCO, í slagæðablóði var notaður til að meta loftun. 3) pH var notað til að meta sýru-basavægi. Tölfrœðiúrvinnsla Tölfræðiútreikningar voru gerðir með forritinu JMP (JMP 5.0.1 (Academic), SAS Institute Inc. Cary, NC). Parað t-próf, óparað t-próf og kíkvað- rat próf voru notuð við útreikninga á tölfræðilegri marktækni. Niðurstöður eru gefnar upp sem með- algildi ± meðalskekkja meðaltals (standard error of mean) þegar borin eru saman tvö meðalgildi, annars sem meðalgildi ± meðalfrávik (standard deviation). Tölfræðileg marktækni var miðuð við p-gildi <0,05. Töflur og línurit voru sett upp í Microsoft Excel. Leyfi fyrir rannsókninni Tilskilin leyfi frá Siðanefnd Landspítala, Persónu- vernd og sviðsstjóra Barnaspítala Hringsins voru fengin fyrir rannsókninni. Niðurstöður Á rannsóknartímabilinu þurftu 675 nýburar á önd- unarvélameðferð að halda og þar af voru 74 (11%) meðhöndlaðir með HTÖ. Af þeim uppfyllti 61 barn þau skilmerki sem sett voru fyrir inntöku í rannsóknina. Af þeim 13 börnum sem útilokuð voru frá rannsókninni voru sex ekki meðhöndluð með hefðbundinni öndunarvél áður en HTÖ var hafin, sex börn uppfylltu ekki þau skilmerki fyrir öndunarbilun af tegund 1 né 2 sem sett voru og eitt barn var innan við fjórar klukkustundir á HTÖ. Tafla I gefur klínískar upplýsingar um börnin í rannsókninni. Flest barnanna voru fyrirburar og voru umtalsvert fleiri drengir en stúlkur í rannsókninni. Lifun og sjúkdómsgreiningar Fjörutíu og eitt barn lifði og 20 börn létust af völd- um lungnasjúkdómsins. Megin öndunarfærasjúkdómsgreiningar barn- anna má sjá í töflu II. Flest barnanna höfðu 814 Læknablaðið 2005/91 j

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.