Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.2005, Page 52

Læknablaðið - 15.11.2005, Page 52
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NÝR SPÍTALI Nýr spítali á að rísa á 13 árum Norrænn hópur arkitekta og verkfræðinga átti sigurtillöguna í samkeppni um skipan nýja Landspítalans Margl var um manninn i Öskju þegar úrslitin voru tilkynnt, framámenn úr heilbrigðiskerfinu, háskóla- samfélaginu og stjórnmála- menn. Þröstur Haraldsson Það var spenna í loftinu í Öskju miðvikudaginn 12. október síðastliðinn og ekki laust við að helstu máttarstólpar heilbrigðiskerfisins og háskólasam- félagsins væru eins og börn í nýrri leikfangabúð. Tilefnið var líka ærið: það var komið að því að birta niðurstöður dómnefndar í samkeppni um skipulag nýbygginga á Landspítalalóðinni. Langþráður draumur margra færðist nokkrum hænufetum nær því að verða að veruleika. Fari tímaáætlun sem nú er höfð uppi við eftir verður nýi spítalinn risinn að fullu árið 2018. Hópurinn sem varð hlutskarpastur er nor- rænn að samsetningu. Hópinn mynda tvær arkitektastofur, arkitektur.is og danska stofan C.F. Mpller Architects, tvær stofur landslagsarki- tekta, Schpnherr Landscape frá Danmörku og Suðaustanátta, og tvær verkfræðistofur, norsk/ sænska stofan SWECO Grpner og Verkfræðistofa Norðurlands. Flaggskipið í þessum hópi er án alls vafa C.F. Mpller frá Danmörku en sú stofa hefur öðlast mikla reynslu í hönnun stórra sjúkrahúsa allt frá því stofan vann samkeppni um hönnun Arhus kommunehospital í Danmörku árið 1931. Nýjasta verkefni þeirra er hönnun háskólasjúkrahússins í Akershus í Noregi sem lokið var að byggja á þessu ári en það vann stofan í samvinnu við SWECO Grpner og Schpnherr Landscape. Þarna er því komin saman mikil reynsla á sviði hönnunar heilbrigðisstofnana sem skilaði sér í því að hópurinn fékk langhæstu einkunnina hjá dóm- nefnd, eða 72 stig af 80 mögulegum, og fyrir tilboð í framhaldsvinnu við verkefnið fékk hópurinn 20 stig sem er það hæsta sem gefið er. Niðurstaða dómnefndar var sú að lillaga hópsins uppfyllti „velflest þau atriði sem samkeppnislýsing kveður á um og telur hana því besta kostinn til áframhald- andi vinnu við skipulag svæðisins“. Á þcssari afstöðumynd má sjá hvernig nýi spít- alinn leggur sig á lóðinni. Gamla Hringbrautin er komin upp undir aðal- bygginguna en sunnan við hana er bráðakjarninn (tvö auslari húsin) og hús göngu- og dagdeilda. Par sem gamla Hringbraut liggur nú er yftrbyggð gata en sunnan hennar eru legudeildir og rannsókn- arstofur. Vestan (vinstra megin) göngudeildarhúss- ins er torg sem verður að- koman inn á spítalann en vestast er háskólahlutinn. Bílastœði verða vestast, sunnan göngudeilda og austast á svæðinu, sunnan við geðdeildarhúsið. 852 Læknabladið 2005/91

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.