Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.2005, Page 54

Læknablaðið - 15.11.2005, Page 54
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NÝR SPÍTALI Líkanið að spítalasvœðinu eins og það á að líta út árið 2018. Byggingarnar verða mest sex hœðir og eru hannaðar þannig að þœr skyggi ekki á aðal- bygginguna. Neðst í hœgra horninu er þyrlupallur en staðsetning hans var eitt örfárra atriða sem dómnefndin gerði athugasemdir við í áliti sínu. Á myndunum hér að neðan má sjá hvernig arkitektarnir sjá fyrir sér að húsin líti út. Á efri myndinni er horft á aðalinngang spítalans frá torginu í miðju svœðisins en á þeirri neðri er horft úr móttökunni inn á yfirbyggða göngugötu sem liggur eftir endilöngum spítalanum. sem haldast eru rúmlega 44.000 fermterar. Við þetta bætast háskólabyggingar sem eru tæplega 30.000 fermetrar að flatarmáli en inni í þeirri tölu er reyndar verslunarmiðstöð sem fyrirhuguð er sunnan háskólahlutans. Samtals er því gert ráð fyrir að sjúkrahúsbyggingar verði hátt í 170.000 fermetrar að flatarmáli. Eins og áður segir er áformað að hefjast handa við bygginguna árið 2009 en tíminn fram að því verður notaður til undirbúnings. Arkitektarnir hafa sett fram ákveðnar hugmyndir um útlit og skipan spítalans en nú þarf að hefjast handa við gerð deiliskipulags og hönnun á innviðum hinna ýmsu deilda sem eiga að rísa. Samkvæmt tímaáætlun sem sett hefur verið fram er ætlunin að ljúka byggingu spítalans árið 2018. Að sjálfsögðu getur það breyst í tímans rás en eitt rennir þó stoðum undir að auðveldara verði að halda tímasetningar í þessari byggingu en mörgum öðrum sem hið opinbera hefur reist. Ríkisstjórnin ákvað nefnilega í haust að verja hluta ágóðans sem fékkst af sölu Símans til bygg- ingar spítalans. Kostnaðaráætlun spítalans hljóðar upp á tæplega 40 milljarða króna en ákvörðun ríkisstjórnarinnar tryggir að 18 milljarðar af þeirri upphæð liggja fyrir við upphaf framkvæmda. Það er óvenjuleg staða þegar opinberar byggingar eiga í hlut. 854 Læknablaðið 2005/91

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.