Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.11.2005, Qupperneq 63

Læknablaðið - 15.11.2005, Qupperneq 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAGA LÆKNISFRÆÐINNAR Upphaf starfsferils Hrefna opnaði lækningastofu í Chicago en skorti fé til að kaupa viðunandi búnað og gekk illa að fá sjúklinga. Lá við að hún léti lífið af næringarskorti á því tímabili. Hún fór þá til Nebraska þar sem systir hennar bjó, tók 50 dala lán sem systir hennar gekkst í ábyrgð fyrir til að kaupa sér lækningaleyfi þar og Ieigja lækningastofu, en sama gerðist og henni tókst ekki að fá neina sjúklinga. Þá gerðist það einn daginn að kunnugur maður vatt sér inn úr dyrunum og vék að henni 100 dölum, og sagði henni að verja þeim til að bæta starfsaðstöðu sína, fara í betra hverfi og fá sér húsnæði þar og fá sér betri húsmuni og tæki. Hann sagði að hún þyrfti ekki að hafa áhyggjur af þessum peningum sem hún þyrfti ekki að greiða sér fyrr en hún hefði efni til. Hún fór að hans ráðum, flutti sig í annað hverfi og fékk sér betri búnað, gekk þá brátt vel að fá sjúklinga og hafði hún þá ágætar tekjur. Fjölskylda og heilsufarsvandamál Hrefna giftist enskum lögfræðingi, Joseph A. McGraw, 7. sept. 1909. Skömmu síðar hrakaði heilsu hennar svo að hún varð að hætta störfum. Var talið að ofþreyta ylli heilsubrestinum, en hún hafði alltaf unnið mikið með námi til að sjá sér farborða og hafði langtímum saman verið svefn- lítil, illa nærð og fatalítil. Hún hafði margsinnis veikst illilega af inflúensum og gróf það einnig undan heilsu hennar. Þau hjón fluttu til Kaliforníu þar sem Hrefna hjarnaði við. 1917 veiktist hún enn hastarlega af illvígri inflúensu í 7. sinn, og lá milli heims og helju mánuðum saman, en fór síðan smám saman batnandi. Við þessi veikindi misstu þau hjón allar eignir sínar. Framhald starfsferils Hrefna fór aftur að vinna, opnaði stofu, og eitt sinn um 1920 kom maður á stofuna sem eitthvað vissi um aðstæður hennar og skoraði hann á hana að flytja sig í Mc Pearson hérað sem var læknislaust hérað í grennd við smáþorpið Tryon í Nebraska þar sem loftslag þótti mjög heilsusamlegt og gott. Henni fannst lýsing á staðnum spennandi og minna sig á Island og tók áskoruninni sem líka fólst í bæjarnafninu, Tryon, og flutti, fyrst ein, en maður hennar kom svo á eftir. Hún fann gamlan veitinga- skála sem ekki var í notkun og þreif hann upp, setti þar upp lækningastofu, bjó í bakherbergi og hóf læknisstörfin. Starfið var ekki auðvelt. Héraðið var stórt, um 2240 ferkílómetrar og strjálbýlt, með um 1700 íbúa, mest fátækt bændafólk. Landið var erfitt yfirferðar, engir vegir, hjarn og snjór á veturna og oft miklar vetrarhörkur eða sandstormar. Engin járnbraut var í héraðinu, ekkert rafmagn, engin lyfjabúð og 60 km á næsta sjúkra- hús. Tekjur voru rýrar. Flækingshundur og tveir kettir settust upp hjá henni. Hún stundaði almennar lækningar eða heimilislækningar þarna fram til 1937 og fór mjög gott orð af henni. Lækningarnar gengu vel, hún stundaði bæði lyflækningar, gerði skurðaðgerðir og lagaði beinbrot. Hún missti engan sjúk- ling fyrsta árið og fáa eftir það. Hún var ólöt að fara í vitjanir þótt oft væri langt að fara. Var oft ótrú- lega seig að komast á milli staða á hestbaki. Mikið orð fór af búnaði hennar í vitjunum, en hún klæddist leðurstígvélum með gæruskinnsinniskóm inni í og skinnstakki miklum úr hrosshúð, og var með loðskinnshúfu, með flónelsgrímu er huldi andlitið og varði hana kulda, en var með göt fyrir augun. Þegar hún ætlaði að flytja burt grátbáðu héraðsbúar hana um að fara hvergi og varð hún við þeirra bón og spurði mann sinn hvort hann héldi ekki að það vantaði þarna lögfræðing eins og ann- ars staðar, fór hann þá og skilaði farmiðum þeirra ótilkvaddur. Margar skemmtilegar sögur eru til af læknisverkum Hrefnu, en ekki er hægt að rekja þær hér. Eftir Tryon rak hún lækningastofu í 10 ár í North Plate, í 50-60 km fjarlægð og keyrði á milli, en flutti síðar þangað. 1930 var Hrefna orðin kunn fyrir störf sín og fram að heimsstyrjöldinni birtust margar greinar um hana í bandarískum, kanadískum og jafnvel íslenskum blöðum. 1938 kom grein um hana í bók- inni Unsung Heroes, New York, 1938: 265-75, eftir Elmu Holloway sem gerði hana þjóðkunna. Þann 8. jan. 1939 barst Hrefnu svo hljóðandi skeyti: „Frú Roosewelt biður dr. Harriet McGraw að heimsækja sig miðvikudaginn 11. janúar kl. 16.30.“ Hrefna trúði tæplega skeytinu í byrjun, hélt að um einhvern misskilning væri að ræða, en hafði sím- samband við Hvfta húsið þar sem það var staðfest. Hún fór síðan í heimsóknina á tilteknum tíma og sat lengi á eintali við forsetafrúna. Þetta þótti mik- ill og sjaldséður heiður sem margir sóttust eftir, en fáum hlotnaðist. Eftir þetta jókst frægð hennar og ýmis stórmenni vottuðu henni virðingu sína og hélt hún þá ávallt íslenskum uppruna sínum á lofti. Árið 1949 flutti Hrefna með manni sínum til San Bernadino í Kaliforníu og setti þar upp lækn- ingastofu og vann þar henni til dauðadags. Hún missti mann sinn 1948 og var það mikið áfall. Þau eignuðust ekki börn. Hún lést 10. júní 1950 þá 75 ára gömul. Hrefna Finnbogadóttir. Myndin erfengin úrlœkna- talinu Lœknar á íslandi 1970. Læknablaðið 2005/91 863
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.