Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.2005, Page 69

Læknablaðið - 15.11.2005, Page 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BRÉF TIL BLAÐSINS ferðum. Það sem helst hefur hamlað þessum rann- sóknum á vísindavirkni Islendinga er að National Science Indicators on Diskette (NSIOD) er ekki til á landinu og það hefur þurft að sækja upplýsingar í skýrslur úr ýmsum áttum (5-7, 9) sem sjaldnast hafa fullar upplýsingar um Island. Þessar skýrslur hafa ekki verið gefnar út í tímaritum og þess vegna er gefin vefslóð fyrir þær í heimildalista. Fyrsta greinin um bókfræðilegt mat á vísindavirkni á íslandi birtist í Náttúrufræðingnum 1999 eftir Birgi Guðjónsson (18) en engin umræða hefur orðið um þetta fyrr en eftir grein okkar í Læknablaðinu í desember 2004 (2). Viðbrögðin við henni koma ekki á óvart í ljósi þess að verið er að raða vísinda- mönnum og stofnunum eftir afköstum og gæðum með aðferðum sem hafa ekki nákvæmni raunvís- inda. Höfundar fagna allri upplýstri umræðu um þessi mál og benda vísindamönnum á að láta ekki félagsvísindamenn eina um að meta afköst og gæði í vísindum. Heimildir 1. Kjeld M. Vísindi á vordögum. Læknablaðið 2005; 91: 767-9. 2. Sveinbjörnsdóttir S, Guðnadóttir AS, Þjóðleifsson B. Vísinda- störf á Landspítala. Alþjóðlegur og íslenskur samanburður. Læknablaðið 2004; 90: 839-45. 3. Ólafsson Ö. Tvær athugasemdir vegna greinarinnar „Vísinda- störf á Landspítala“. Læknablaðið 2005; 91:182-3 4. Þjóðleifsson B. Svar við athugasemd Amar Ólafssonar. Lækna- blaðið 2005; 91:183. 5. Olsen TH. Publication and citations within bioscience in Nov'Nay. http://engHsh.nifiistep.no/norsk/piiblikasjoner/publica- tion_and_citations_within_bioscience_in_nonvay. NIFU skrift- serie 8/99 1999; ISSN 080-4572. 6. Breno E, Guardabasso V, Stefanelli M. Scientific research in italian universities. Conference of Italian University Rectors 2002. www.crui.it/ 7. Sandström A, Norgren L. Swedish Biotechnology. wiviv. vinnova.se/Main.aspx? I D=7e711701 -82da-431 b-bb64- 3df4942a95f8 VINNOVA 2003 8. Fava GA, Guidi J, Sonino N. How citation analysis can monitor the progress of research in clinical medicine. Psychother Psychosom 2004; 73: 331-3. 9. Persson O, Luukkonen T, Hálikká S. A bibliometric study of Finnish science. Working papers no. 48/00. VTT group for technology studies, 2000. www.vtt.fi/ttr/pdf/wp48.pdf. 10. Database of summary publication and citation statistics reflecting research perforinance in the sciences, social sciences, and art & humanities. National Science Indicators on Diskette, 1981-1997, version 1.2. 11. Analysis of previous trends and exisisting state of research and development in the Czech Republic and comparison with the situation abroad. Prague: Ministery of Education, Youlh and Sport of the Czech Republic, 2000. www.vyzkum.cz/Priloha. aspx?idpriloha=9515. 12. Jones AW. Impact of JAT publications 1981-2003: the most prolific authors and the most highly cited articles. J Anal Toxicol 2004; 28: 541-5. 13. Ma LS, Pan BR, Li WZ, Guo SY. Improved citation status of World Journal Gastroenterology in 2004: Analysis of all reference citations by WJG and citations of WJG articles by other SCI journals during 1998-2004. World J Gastroenterol 2005; 11:1-6. 14. Fitzpatrik RB. ISI’s Journal Citation Reports on the Web. Med Ref Serv Q 2002:22: 45-56. 15. Adams AB, SimonsonD. Publication, citations, and impact factors of leading investigators in critical care. Respir Care 2004; 49: 276-81. 16. Weale AR, Bailey M, Lear PA. The level of non-citation of articles within a journal as a measure of quality: a comparison to the impact factor. BMC Medical Research Methodology www.biomedcentral.com/1471-2288/4/14 17. Guðjónsson B. Mat á vísindavinnu. Science Citation Index sem mælitæki. Náttúrufræðingurinn 1999; 69:19-26. 18. Tómasson J. Vísindaframlag íslendinga hefur tífaldast á 20 árum. Morgunblaðið 2004; 27. desember. Að gefnu tilefni - tilraun til að hefta ritfrelsi í síðasta tölublaði Læknablaðsins birt- ist klausa með fyrirsögninni „Að gefnu tilefni“ frá fjórum ritstjórnarmönnum blaðsins til að koma á framfæri þeirri skoðun sinni að birting greinarinnar „Nýi sloppur keisarans" í 9. tölublaði Læknablaðsins hafi verið mistök. í klausunni hafa þeir eftir lögfræðingi Læknafélagsins að „ritstjórn Lækna- blaðsins sé vanhæf til þess að fjalla um þetta mál“. í kjölfar birtingar greinarinnar „Nýi sloppur keisarans“ barst öllum ritstjórn- armönnunr Læknablaðsins bréf frá lög- manni Kára Stefánssonar þar sem m.a. er spurt: „5. Teljið þér að birting greinar- innar hafi verið mistök?“ Þetta bréf varð tilefni umfjöllun- ar framkvæmdastjóra Læknafélagsins á heimasíðu félagsins þann 30. september um vanhæfi, en þar segir meðal annars: „Það liggur fyrir að sumir ritstjórnar- menn Læknablaðsins eru í starfstengsl- um við DeCode. Þegar af þeirri ástæðu er bréf lögmanns Kára Stefánssonar, forstjóra Decode, til umræddra ritstjórn- armanna persónulega, til þess fallið að draga í efa hæfi viðkomandi stjórnar- manna til að fjalla unt þetta tiltekna mál, þ.e. greinina „Nýi sloppur keisarans“. A það við hvort sem viðkomandi ritstjórn- armaður tjáir sig í nafni ritstjórnar eða í eigin nafni á opinberum vettvangi." Ekki verður ráðið af þessu að rit- stjórnin í heild sé vanhæf eins og þeir sem undirrita klausuna segja, heldur ein- göngu að einstakir menn í ritstjórninni geti verið vanhæfir vegna hagsmuna- tengsla. Umræðuhluti Læknablaðsins hlýtur að vera til þess að læknar geti fjallað urn mál sem þeir telja að varði stéttina og störf lækna og á að vera öllum opinn sem skrifa í eigin nafni. Þar á læknum að vera frjálst að tjá skoðanir sínar og kynna þær svo að aðrir geti svarað og tjáð sínar skoðanir eins og höfundar margnefndrar klausu gera án þess að lögfræðingum sé blandað í málin. Þó er það miður að þeir telji birtingu greinar hafa verið mistök og tjá þannig vilja sinn til að hefta málfrelsi og skoðanaskipti þegar um er að ræða hagsmuni þeirra eða tengdra aðila. Tónias Helgason Læknablaðið 2005/91 869

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.