Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.2009, Qupperneq 27

Læknablaðið - 15.10.2009, Qupperneq 27
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN svörun var hærri meðal kvenna en karla og íbúa á landsbyggðinni en íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður beggja kannana voru því vegnar eftir búsetu og kynferði svo þær gæfu betri mynd af þýðinu.12'15 Til að meta kostnað vegna heilbrigðisþjónustu var spurt: Hver áætlar þú að sé samanlagður kostnaður vegna notkunar þinnar og heimilis- marma þinna (svo sem maka, bama og foreldra á heimili þínu) á eftirfarandi þáttum það sem af er þessu ári (1998 eða 2006)? a) Komur til lækna, komur á göngu- og slysadeild og bráðamóttöku, húsvitjanir lækna (ekki lyf), b) Lyf samkvæmt lyfseðli, c) Lyf án lyfseðils, d) Tannlæknisþjónusta, e) Sjúkraþjálfun, f) Sálfræðiþjónusta, g) Hjálpartæki (svo sem hækjur, hjólastóll, hálskragi, spelkur, gerviútlimur), h) Gleraugu (kaup á nýjum eða viðhald), i) Heyrnartæki (kaup á nýjum eða viðhald), j) Sjúkra- og hjúkrunarvörur (til dæmis sjúkrakassi, plástur, teygjubindi, mælar af ýmsu tagi, bleyjur fyrir fullorðna), k) Óhefðbundin heilbrigðisþjónusta (svo sem hnykklæknar, svæðanudd, náttúrulyf og -lækningar, huglækningar, nálastungur, jóga), 1) Sjúkraflutningar (þessi liður var einungis með í könnuninni frá 2006). Rannsóknin kannaði tengsl útgjaldaliða við eftirfarandi breytur: Kynferði, aldur, hjú- skaparstöðu (gift(ur)/í sambúð, í föstu sambandi/ einhleyp(ur), fráskilin(n), ekkja/ekkill), foreldra- stöðu (barn 5 ára eða yngra, ekki barn 5 ára eða yngra), fjölda heimilismanna, atvinnustöðu (ekki í starfi, hlutastarf, fullt starf), námsstöðu (í skóla, ekki í skóla), atvinnuleysi (atvinnulaus nú, ekki atvinnulaus nú), búsetu (höfuðborgarsvæði, landsbyggð), menntun (grunnskóla-, gagnfræða- eða landspróf, sérskóla- eða stúdentspróf, háskóla- stigspróf), heimilistekjur (árstekjur í krónum árið 2005), örorku (75%) og langvinna sjúkdóma/ kvilla (svarendur gáfu upp hvort þeir hefðu haft einhvern af 48 langvinnum sjúkdómum og kvillum, og hvort læknir hefði staðfest það, svo sem astma, þrálát húðútbrot, háan blóðþrýsting, heilablóðfall, krabbamein í lungum, sykursýki, þrálátan verk í mjóbaki og alkóhólisma). Við úrvinnslu gagna var notast við tölfræðifor- ritið SPSS. Útgjaldatölur hvers heimilis voru reiknaðar á ársgrundvelli samkvæmt formúlunni Y=(X/k-l)*365, þar sem Y eru framreiknuð ársútgjöld, X eru útgjöldin til þess dags þegar spurningalista er svarað, k er raðnúmer dagsins (frá áramótum) þegar viðkomandi spurningalisti er móttekinn og 1 er áætlaður dagafjöldi milli útfyllingar og móttöku lista (1 er áætlað þrír dagar ef listi er móttekinn á mánudegi, en annars tveir dagar).14 Meðaltals- og prósentutöflur voru settar upp til að kanna meðalútgjöld vegna þjónustuþátta, og hlutfall útgjalda af heimilistekjum. Hópamunur á útgjöldum var metinn með t-prófi þegar hópar voru tveir og F- prófi þegar hópar voru þrír eða fleiri. Niðurstöður Bein heildarútgjöld heimilis vegna heilbrigðismála árið 2006 voru mjög breytileg. Lægst voru þau 0 krónur, en hæst rúmar 402.000 krónur (staðalfrávik: 67.600). Útgjöldin jukust að raungildi um 29% á tímabilinu frá 1998 til 2006, úr tæpum 82.000 að meðaltali í tæp 106.000. Ef óhefðbundin heilbrigðisþjónusta er undanskilin jukust raunútgjöld heimilanna um tæp 27% á tímabilinu (úr 79.000 í 100.000). Jafnframt hækkaði kostnaðarbyrði heimila (heilbrigðisútgjöld í hlutfalli við heildartekjur heimilis) úr 1,82% að meðaltali árið 1998 í 2,52% árið 2006. Heilbrigðisútgjöldin 2006 samsvöruðu tæplega 39.000 krónum á hvern heimilismann að meðal- tali ef allt er meðtalið, en tæplega 37.000 ef óhefðbundin heilbrigðisþjónusta er undanskilin. Nánar tiltekið námu meðalútgjöld 2006 vegna læknisþjónustu 16.778 krónum á heimili (6064 krónum á heimilismann), lyfseðilskyldra lyfja 20.314 krónum á heimili (7737 krónum á heimilismann), tannlæknisþjónustu 26.840 krón- um á heimili (9467 krónum á heimilismann), sjúkraþjálfunar 6284 krónum á heimili (2234 krón- um á heimilismann), og sálfræðiþjónustu 2633 krónum á heimili (996 krónum á heimilismann). Samkvæmt töflu I varð raunaukning í öllum liðum heilbrigðisútgjalda heimilanna á tímabilinu, langmest í sálfræðiþjónustu (120%) og óhefðbundinni heilbrigðisþjónustu (104%), en raunaukning var einnig mikil í sjúkraþjálfun (49%) og lyfjum án lyfseðils (43%). Minnst var raunaukning heilbrigðisútgjalda heimilanna í tannlæknisþjónustu (15%). Þá sýnir tafla I að innbyrðis hlutdeild útgjaldaliða breyttist lítið milli 1998 og 2006. Þó varð lyfjakostnaður stærsti útgjaldaliður heimilanna 2006 (en var í öðru sæti 1998), en tannlæknakostnaður lenti í öðru sæti 2006 (var í fyrsta sæti 1998). Tafla II sýnir hvernig ársútgjöld heimila vegna heilbrigðismála skiptust eftir helstu útgjaldaliðum og hópum árið 2006. Taflan sýnir meðal annars að tannlæknakostnaður var hæstur hjá 45-54 ára og lægstur meðal 65 ára og eldri. 55-64 ára höfðu hæst útgjöld vegna lyfja. Giftir/sambúðarfólk höfðu hæst heimilisútgjöld hjúskaparstétta í öllum útgjaldaliðum, en ekkjufólk hafði lægst útgjöld. Samband var milli fjölda heimilismanna og heimilisútgjalda í flestum útgjaldaliðum. Heimili LÆKNAblaðið 2009/95 663
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.