Læknablaðið - 15.10.2009, Page 37
FRÆÐIGREINAR
YFIRLITSGREIN
A B C D E
Mynd 2. Stieiðmyndir afflöguþekjukrabbameinum á höfði og hálsi afýmsum stigum. A. T1 tunguæxli (rauð ör). B. T3 tunguæxli (rauð ör). C. T2
hálskirtilsæxli (rauð ör). D. T2 barkakýliskoksæxli (rauð ör). E. T2 hægra raddbandsæxli (rauð ör). E Eitlameinvarp á hálsi (rauð ör). G. T4a tungurótaræxli
(rauð ör). H. T4afremra munnbotnsæxli sem er búið að éta sig í gegnum kjálkann (rauð ör). I. T4b nefkoksæxli (rauð ör) sem hefur vafið sig í kringum innri
hálsslagæð (blár örvaroddur). J. T4b munnkoksæxli (rauð ör) sem hefur vafið sig í kringum innri hálsslagæð (blár örvaroddur).
sér víðtæka skurðaðgerð með enduruppbyggingu,
sérstaklega ef verkir eru miklir.
Á síðari árum hafa jáeindasneiðmyndarann-
sóknir (JS) verið notaðar í auknum mæli við stigun
og eftirfylgni krabbameina á höfuð- og hálssvæði
(myndir 3 og 4).19 Tæknin er sérlega hentug til
þess að meta hvort sjúkdómurinn er staðbundinn
eða útbreiddur. í sumum tilfellum greinir JS
fjarmeinvörp eða annað æxli og þannig getur
rannsóknin hlíft sjúklingnum við því að gangast
undir erfiða staðbundna meðferð sem ólíkleg
væri til að lengja líf eða bæta lífsgæði.20 Einnig
hafa JS verið notaðar til mats á meðferðarárangri,
sérstaklega eftir lyfja- og geislameðferð. Ef JS er
gerð þremur mánuðum eftir lok meðferðar og
sýnir enga upptöku í frummeini eða hálseitlum
ásamt eðlilegri líkamsskoðun er óhætt að fylgjast
með sjúklingnum og framkvæma ekki eitlaúmám.21
JS hefur einnig sýnt notagildi við ákvörðun og
undirbúning geislameðferðar.22
Stigun
Stigun krabbameina á höfuð- og hálssvæði
er flókin og endurspeglar flókna líffærafræði
svæðisins. Núverandi stigunarkerfi er kennt við
American Joint Committee on Cancer (AJCC) og
styðst við svokallað TNM-kerfi (tafla I).23 í þessu
kerfi ákvarðast T-stigun af stærð og útbreiðslu
upprunalega æxlisins og N-stigun af því hvort
eitlameinvörp em á hálsi. Mikilvægt er að greina
hálseitlameinvörp því þau spá fyrir um horfur. Að
jafnaði lækka lífslíkur um 50% ef eitlameinvörp
greinast á hálsi.24 M-stig æxlisins ræðst af því
hvort það hefur dreift sér til fjarlægra líffæra eða
eitla utan höfuð- og hálssvæðis. Stigun FÞKHH
er mismunandi eftir staðsetningu frumæxlis og til
nánari glöggvunar á þessu vfsast í vef bandarísku
krabbameinsstofnunarinnar (National Cancer
Institute), www.cancer.gov. Við stigun FÞKHH
eru skörp skil á skiptingu svæða efri öndunar-
og meltingarvegar (mynd 5). Til að auðvelda
umræðu og fyrirbyggja rugling er hentugt að
skipta eitlastöðvum á hálsi í fimm svæði eftir því
hvar á hálsinum þær eru (mynd 6).
Mynd 3. 68 ára stórreykingakona sem var endurtekið lögð inn vegna andþyngsla og talin hafa
versnandi langvinnan lungnateppusjúkdóm. Hún reyndist hafa stórt óþroskað flöguþekjuæxli
í barkakýli. JS-rannsókn gerð til stigunar sýndi staðsetningu æxlisins vel (gular örvar), engin
merki um eitlameinvörp en staðsetningu tracheostomiu (græn ör). Rannsóknin sýndi einnig
æxli íhægra lunga (rauð ör) sem reyndist upprunniðfrá berkju hægra efra lungnablaðs og
talið var annaðfrumæxli (second primary tumor). Einnig má sjá vinstri slegil hjartans vel á
þessari JS-mynd (blá ör).
LÆKNAblaðið 2009/95 673