Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.2009, Qupperneq 41

Læknablaðið - 15.10.2009, Qupperneq 41
FRÆÐIGREINAR YFIRLITSGREIN geislalyfjameðferð talin kjörmeðferð. Fimm ára lifun fyrir stig III er 50% og stig IV er 30%.23 í völdum tilfellum má beita skurðaðgerð að geislalyfjameðferð lokinni hafi svönm við meðferð verið ófullkomin og æxlið enn talið skurðtækt.42 Krabbamein í barkakýliskoki (hypopharynx): Þessi æxli eru yfirleitt langt gengin við greiningu með ífarandi æxlisvexti og hálseitlameinvörpum.42 Ástæðan er að einkenni smárra æxla á þessum stað eru lítil sem engin. Horfur eru slæmar þar sem 5 ára lifun allra æxla er um 30%.48 Tafla II sýnir fimm ára lifun þessara æxla á íslandi. Hefðbundin meðferð er annaðhvort skurðaðgerð með geislameðferð eða geislalyfjameðferð að aðgerð lokinni eða geislalyfjameðferð eingöngu.49 Krabbamein í barkakýli (larynx): Meðferð æxla í barkakýli hefur breyst talsvert á síðastliðnum áratugum en nú gangast flestir sjúklinganna undir geislameðferð. Markmið meðferðar á þessum æxlum er að viðhalda starf- andi barkakýli og raddböndum og þar með eðli- legri rödd ásamt því að veita læknandi meðferð.50 Starfhæfni barkakýlisins með tilliti til raddar, öndunar og kyngingar verður að meta til að geta ráðlagt viðeigandi meðferð. Geislun er ólíkleg til að bæta kyngingu sé hún á annað borð orðin slæm og er frekar líkleg til að gera hana verri, sérstaklega ef lyfjameðferð er beitt líka. Ef sjúklingur með langt gengið krabbamein kýs geislameðferð þarf að huga að loftvegi áður en meðferð hefst og þurfa sumir sjúklinganna barkaskurð. Æxli á lágu stigi má meðhöndla með geislameðferð eingöngu eða takmarkaðri skurðaðgerð. Skurðaðgerðir eru mismunandi eftir því hvar í barkakýlinu meinið er og hversu útbreitt það er, brottnám barkakýlis er oft beitt en leysigeislaskurðaðgerð í barkakýlisspeglun er æ algengari. Meðhöndla þarf eitla í ofanraddglufuæxlum í öllum tilvikum með eitlaúrnámi eða geislun og fer það að mestu eftir frummeðferð hvor meðferðin er notuð. Lengra gengin æxli (T stig IIB til IV) geta verið meðhöndluð með skurðaðgerð eða geislalyfjameðferð. Oftar er þó meðhöndlað með geislalyfjameðferð.50 Sýnt hefur verið fram á að geislalyfjameðferð er jafnlíkleg til lækningar og skurðaðgerð en þess utan er slík meðferð líklegri til að viðhalda starfhæfu barkakýli.51'52 í sumum tilvikum svara sjúklingar ekki geislalyfjameðferð en þá er jafnan beitt barkakýlisbrottnámi. Slík aðgerð er einnig nauðsynleg ef krabbamein í barkakýli kemur aftur eftir að sjúklingur hefur gengist undir geislameðferð. Þær hafa þó gjarnan hærri fylgikvilla í för með sér, svo sem kokhúðarsamgang (pharyngocutaneous fistula), Tafla II. Nýgengi, meðalaldur við greiningu og fimm ára hlutfallsleg lifun íslenskra karla og kvenna með flöguþekjukrabbamein á höfuð- og hálssvæði. Nýgengi 2002 til 2006 Meðalaldur 2002 til 2006 Fimm ára lifun á tímabilinu 1993 til 2002 Karlar Munnhol og varir 5,3 71 62% Nefkok 0,4 47 Barkakýliskok 0,2 72 Varir, munnhol, gómbogar, nefkok, 6,4 68 54% barkakýliskok Nefhol, miðeyra og skútar 0,9 66 Barkakýli 2,2 71 72% Konur Munnhol og varir 2,1 67 60% Nefkok 0,3 70 Barkakýliskok 0,2 43 Varir, munnhol, gómbogar, nefkok, 2,7 67 65% barkakýliskok Nefhol, miðeyra og skútar 0,6 62 Barkakýli 0,6 58 73% Upplýsingar fengnar frá Krabbameinsskránni. þá sérstaklega ef lyfjameðferð hefur verið beitt aukalega.53 Krabbamein í nefkoki (nasopharynx): Þessi krabbamein eru um margt ólík hinum algengari FÞKHH en gjarnan er sjúkdómurinn langt gengin með útbreiddum eitlameinvörpum við greiningu.54 Nefkokskrabbamein eru frekar sjaldgæf á Vesturlöndum en mun algengari í Austurlöndum fjær, sérstaklega í Kína og tengist tilurð þeirra þar sterklega sýkingum af völdum Epstein-Barr veirunnar. Hornsteinn meðferðar nefkokskrabbameina er geislameðferð en á síðasta áratug hefur verið sýnt fram á að geislalyfjameðferð bætir horfur umtalsvert.55 Hálseitlameinvörp af óþekktum uppruna: í 2-5% af öllum tilfellum af FÞKHH er engan upphafsstað að finna þrátt fyrir ítarlega skoðun.56 Jáeindasneiðmyndarannsónir geta verið gagnlegar í þessum hópi sjúklinga.57 Uppvinnslan miðar að því að finna frumæxlið með ítarlegri skoðun í svæfingu með barkakýlisspeglun og sýnatöku frá tungurót og hálskirtlatöku en í um 80% tilfella er frummeinið þar ef það finnst.17 Hefðbundin meðferð þessara sjúklinga var fyrst og fremst skurðaðgerð með eitlabrottnámi en nú er geislameðferð eða geislalyfjameðferð einnig beitt og er þá geislað á nefkok, muimkok og eitla í afturkoki (retropharynx)58 og á eitlastöðvar á hálsi. LÆKNAblaðið 2009/95 677
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.