Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2009, Page 47

Læknablaðið - 15.10.2009, Page 47
FRÆÐIGREINAR Y F I R L I T Hverjir skrifa í Læknablaðið? - Yfirlit yfir fræðigreinar síðustu fimm ára Tómas Guðbjartsson13 brjóstholsskurðlæknir Engilbert Sigurðsson23 geðlæknir Höfundar eiga báðir sæti í ritstjórn Læknablaðsins. Lykilorð: útgáfa, vísindatímarit, rannsóknir, yfirlitsgreinar, sjúkratilfelli. ’Skurðlækningasviði Landspítala, 2geðsviði Landspítala, 3læknadeild HÍ. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Tómas Guðbjartsson, skurðlækningasviði Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík. tomasgud@landspitali. is Ágrip Inngangur: Á síðustu fimm árum hafa orðið margháttaðar breytingar á Læknablaðinu samhliða aukinni grósku í rannsóknum hér á landi. Vinnsluferli fræðigreina hefur orðið formlegra, ritrýni hefur verið efld og hlutfall greina sem er hafnað hefur aukist. Þessar breytingar má að hluta til rekja til þess að blaðið fékk inngöngu í Medline gagnagrunninn árið 2005. Nýir efnisflokkar hafa litið dagsins ljós sem tengjast meðal annars sögu, fagmennsku, siðfræði og áhugamálum lækna. Efniviður og aðferðir: Farið var yfir fræðigreinar áranna 2004-2008, það er rannsóknir, yfirlits- greinar, sjúkratilfelli og klínískar leiðbeiningar, og þær flokkaðar eftir tegund fræðigreina og hvaða sérgrein efnið félli best undir. Niðurstöður: Fjöldi fræðigreina jókst á tímabilinu en fjöldi greina hélst í kringum 20 á ári flest árin. Hlutfall rannsóknargreina lækkaði því meðal fræðigreina, en yfirlitsgreinum og sjúkratilfellum fjölgaði á tímabilinu. Klínrskar leiðbeiningar hættu að birtast í blaðinu. Framlag einstakra sérgreina til Læknablaðsins reyndist mjög breytilegt. Ályktun: Hvetja þarf rannsakendur úr röðum lækna og tengdra stétta til að senda fræðigreinar til birtingar í Læknablaðinu. Birting fræðigreina á ensku í vefútgáfu blaðsins kann að vera góður kostur fyrir lækna í sérnámi erlendis, sem og fyrir suma rannsakendur á Islandi. Inngangur Á síðustu árum hefur verið áberandi gróska í vísindastarfi á Islandi sem endurspeglast í stöðugri fjölgun birtra fræðigreina.1 Aukningin hefur ekki síst orðið innan læknisfræði en fræðigreinum samkvæmt svokölluðum ISI-staðli2 hefur fjölgað verulega á síðustu árum. íslendingar eru í dag á meðal efstu þjóða í heiminum þegar talinn er fjöldi ISI-fræðigreina á hverja 100.000 íbúa.3 Margar þessara greina tengjast erfðafræði eða faraldsfræði, oftar en ekki í samstarfi vísindamanna og lækna hjá stofnunum eins og íslenskri erfðagreiningu, Hjartavernd, Krabbameinsfélagi Islands, Land- spítala og erlendum háskólastofnunum.4 Hafa þessar greinar í vaxandi mæli birst í virtum vís- indatímaritum eins og Nature, Nature Genetics og Circulation.5-6 Þessi þróun verður að teljast jákvæð. Talað er um vor í íslensku vísindasamfélagi.7- 8 Við töldum áhugavert að kanna hvort aukin gróska í birtingum fræðigreina hafi skilað sér á síður Læknablaðsins á síðustu fimm árum. Jafnframt fannst okkur fróðlegt að athuga hvað hinar ýmsu sérgreinar lækninga hafa lagt af mörkum til viðgangs blaðsins sem vísindatímarits. Læknablaðið kom fyrst út árið 1904 og hefur verið gefið út nær óslitið frá árinu 1915.9 Blaðið er því eitt elsta vísindarit á íslandi. Útgáfa þess hefur verið með hefðbundnu sniði í allmörg ár, 11 tölublöð eru gefin út á ári, annars vegar með vís- indalegu efni, hins vegar félagslegu tengdu félags- störfum og áhugamálum lækna. Það var stórt framfaraskref þegar Læknablaðið var tekið inn í Medline-gagnagrunninn árið 2005.10-11 Á árinu 2008 hafa frekari framfaraskref verið tekin. Blaðið hefur nú fengið inngöngu í ISI-gagnagrunn- inn2 auk þess sem Scopus-gagnagrunnurinn12 hefur óskað eftir að fá blaðið í gagnagrunn sinn fyrir lok þessa árs. Á síðustu árum hafa verið gerðar margvíslegar breytingar á blaðinu og vinnsluferli þess.13 Sumar þessara breytinga blasa við öllum lesendum, svo sem breytt efnisyfirlit, en aðrar tengjast leiðbein- ingum til höfunda og rýniferli fræðigreina og eru því minna áberandi. Markmið breytinganna hafa verið að efla ritrýni og að blaðið verði um leið læsilegra og aðgengilegra fyrir lesendur. Auk þess hefur verið lögð áhersla á netútgáfu blaðsins og bryddað upp á nokkrum nýjum efnisflokkum á síðustu árum: Mynd mánaðarins14, Læknislist og fagmennsku15, Ljósmyndum lækna'6 og nú síðast Siðfræðidálki17. Slíkar nýjungar eru nauðsynlegar til að forðast stöðnun í útgáfu og útliti blaðsins. Mikilvægast er þó blaðinu sem vísindariti að fræðigreinar blaðsins standist kröfur vísindasam- félagsins og þeirra gagnagrunna sem skrá efni þess. Tilgangur rannsóknar okkar var að flokka fræðigreinar sem birst hafa í Læknablaðinu á síðustu fimm árum eftir sérgreinum og vekja athygli lækna á þróun blaðsins sem vísindarits. Horft var bæði til efnis og lykilhöfunda við flokk- un fræðigreina. LÆKNAblaðið 2009/95 683

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.