Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2009, Síða 63

Læknablaðið - 15.10.2009, Síða 63
LÆKNAFÉLAG UMRÆÐUR O G REYKJAVÍKUR F R É T T I R 10 0 Á R A Læknisstarfið hefur tekið miklum breytingum á þeim 100 árum sem Læknafélag Reykjavíkur hefur starfað. Af þessu tilefni þótti fróðlegt að leita til tveggja heimilislækna sem hafa ólíka reynslu af starfinu. Klíníkin blífur! Haukur S. Magnússon hefur nýlega látið af störfum sem heimilislæknir eftir nær hálfrar aldar læknisferil. Hann réðst héraðslæknir til Egilsstaða í febrúar 1962 og starfaði þar í nær sex ár. „Við vorum tveir læknar sem sátum á Egilsstöðum. Þorsteinn Sigurðsson sinnti Norður- héraðinu og Austur-héraðið, sem ég sinnti, tók yfir Skriðdal, Velli, Egilsstaðakauptún, Eiðaþinghá og Hjaltastaðaþinghá. Við sinntum einnig Borgarfirði eystri sem var sérstakt læknishérað en þar hafði ekki verið læknir síðan Inga Björnsdóttir hætti nokkrum árum fyrr. Við fórum hálfsmánaðarlega á Borgarfjörð og það gat verið erfitt yfir veturinn. Veturnir voru nokkuð harðir á þessum árum og færð á vegum oft slæm, miklir svellbunkar í Njarðvíkurskriðunum gátu vakið manni ugg og þeir gátu breyst í ófæra forarvilpu á vorin. Arið 1965 var safnað fyrir snjóbíl og var þá hægt að fara til Borgarfjarðar um svokallað Sandaskarð. En þetta gekk allt saman og ég man ekki eftir neinum sérstökum svaðilförum. Maður skrölti um sveitimar á Landrover og ég var orðinn sérstaklega fimur að setja keðjur á og kippa þeim af. Oft lenti maður í ófærð og þurfti að moka sig upp. Yfirleitt var maður einn á ferð og þurfti að bjarga sér sjálfur." Haukur fékk fyrir ekki svo löngu ágætan samanburð þegar hann réðst sem heilsugæslu- læknir til Grundarfjarðar og einnig Dalvíkur um tíma. „Ég tók þetta að mér þó ég væri formlega hættur og kominn á eftirlaun. Það vantaði lækni. Maður fann auðvitað fyrir því að vera orðinn talsvert eldri og meira átak að rífa sig upp um miðja nótt og keyra í skafbyl frá Dalvík út í Ólafsfjörð. En bílarnir eru orðnir miklu betri og vegirnir líka, svo þetta var allt annað." Eftir að hafa stundað sérnám í heimilislækn- ingum um fjögurra ára skeið settist Haukur að í Reykjavík og opnaði stofu og vann sjálfstætt sem heimilislæknir þar til hann réð sig á Heilsugæslustöðina í Hlíðunum 1986. „Það hafði auðvitað sína kosti að starfa sjálfstætt en ég tel nú að uppbygging heilsugæslustöðvanna og sameining mæðraverndar og ungbarnaeftirlits undir einn hatt hafi verið mikið framfaraspor. Það er hins vegar ekki nauðsynlegt að mínu mati að hið opinbera sjái um rekstur heilsugæslustöðvanna. Þær gætu alveg eins verið í höndum læknanna sjálfra. Starf heilsugæslulæknis hefur í raun ekki breyst verulega þegar um er að ræða hið daglega amstur. Menn þurfa að gefa sér tíma til að taka sjúkrasögu og skoða sjúklinginn og ræða við hann. Klíníkin blífur, það er engin spurning og enn er það aðalsmerki hvers læknis að hafa gott „klínískt nef". Samt er gott að hafa við hendina algengar rannsóknir sem hægt er að fá strax. Þegar um er að ræða bráð eða alvarleg veikindi hefur öll aðstaða snarbatnað ekki síst í hinum dreifðu byggðum. Stórbættar samgöngur og yfirleitt gott skipulag á sjúkraflutningum og rannsóknir tiltækar í heilsu- gæslustöðvunum. Meðferðarmöguleikar eru að sjálfsögðu allt aðrir og meiri og má nefna hin ágætu lyf við magasári, háum blóðþrýstingi og hjartasjúkdómum sem og aðgerðir vegna krans- æðasjúkdóma en horfur kransæðasjúklinga voru oftast ömurlegar." Starf heimilislæknisins hefur einnig breyst að því leyti að vitjanir í heimahús hafa nærri lagst af, nú koma langflestir sjúklingar á heilsugæsluna til læknisins. „Þetta hefur augljósa kosti í för með sér en það sem tapast er að læknirinn missir yfirsýn yfir aðstæður skjólstæðinga sinna. Heimili sjúklings getur sagt manni meira en mörg orð um aðstæður hans og fjölskylduhagi." „Það er enn aðalsinerki hvers læknis að hafa góðan klíniskan sans," segir Haukur S. Magnússon heimilislceknir. LÆKNAblaðið 2009/95 699
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.