Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2009, Page 92

Læknablaðið - 15.10.2009, Page 92
Útdráttur úr Samantekt á eiginleikum lyfs (SPC) (birt í heild í Sérlyfjaskrá www.serlvfiaskra.is). SerdolecÚ" sertindól, filmuhúðaðar töflur Hver tafla inniheldur 4, 12, 16 eða 20 mg. Abendingar: Meðhöndlun á geðklofa. Af öryggisástæðum m.t.t. hjarta- og æðakerfis, á aðeins að nota sertindól fyrir sjúklinga, sem ekki þola a.m.k. eitt annað geðrofslyf. Ekki skal nota sertindól til skyndimeðferðar í bráðatilvikum Skammtar: Sertindól er gefið í einum dagsskammti óháð máltíðum. Sé róandi verkun æskileg hjá sjúklingi, má gefa benzódíazepín lyf samtímis. Sertindól skal aðeins nota fyrir sjúklinga, sem ekki þola a.m.k. eitt annað geðrofslyf. f byrjun á að meðhöndla alla sjúklinga með 4 mg á sólarhring. Dagsskammtinn á að auka um 4 mg á 4-5 daga fresti, þar til kjörviðhaldsskammti 12-20 mg, er náð. Eftir svörun sjúklings má auka skammta upp í 20 mg á dag. Aðeins í undantekningar- tilvikum ætti að íhuga hámarksskammt 24 mg, þar sem klínískar rannsóknir hafa ekki sýnt fram á samræmi milli aukinnar verkunar og skammta umfram 20 mg og QT lenging getur aukist við efri mörk skammtabilsins. Fylgjast skal með blóðþrýstingi meðan á aðlögun skammta stendur og einnig í upphafi viðhaldsmeðferðar. Ekki er mælt með notkun Serdolect hjá börnum og unglingum þar sem ekki liggja fyrir upplýsingar um öryggi og virkni. Sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi má gefa sertindól í venjulegum skömmtum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir sertindóli eða einhverju hjálparefnanna. Ómeð- höndlaður kalíum- og/eða magnesíumskortur. Ekki skal nota sertindól hjá sjúklingum sem hafa sögu um virka hjarta- og æðasjúkdóma, hjartabilun, stækkað hjarta, hjartsláttartruflanir eða hægslátt (<50 slög á mínútu). Ennfremur á ekki að nota sertindól hjá sjúklingum sem hafa meðfætt heilkenni lengds QT-bils eða fjölskyldusögu um slíkt, né heldur hjá sjúklingum sem vitað er að hafa áunnið lengt QT-bil. Sjúklingum sem nota lyf sem vitað er að lengja QT-bilið marktækt á ekki að gefa sertindól. M.a.: lyf við hjartsláttartruflunum úr flokkum Ia og III (t.d. kínidín, amíódarón, sótalól, dófetilíð); ákveðin geðrofslyf (t.d. thíoridazín); ákveðin makróh'ð lyf (t.d. erýtrómýcín); ákveðin andhistamín lyf (t.d. terfenadín, astemizól); ákveðin kínólón sýklalyf (t.d. gatifloxacín, moxifloxacín). Ofangreindur listi er ekki tæmandi og er notkun annarra lyfja, sem vitað er að lengja QT-bilið marktækt (t.d. cisapríð, litíum) einnig frábending. Samtímis notkun sertindóls og lyfja sem hamla cýtókróm P450 3A ensím kröftuglega er einnig frábending. Um er að ræða m.a.: meðferð til inntöku með azól sveppalyfjum (t.d. ketókónazól, ítrakónazól); ákveðin makiólíð sýklalyf (t.d. erýtrómýcín, claritrómýcín); HIV próteasa hemla (t.d. indínavír); ákveðnir kalsíumgangalokar (t.d. diltíazem, verapamíl). Ofangreindur listi er ekki tæmandi og notkun annarra einstakra lyfja, sem vitað er að eru öflugir CYP3A ensím hemlar (t.d. címetidín) er einnig frábending. Sjúklingar með alvarlega skerta lifrarstarfsemi eiga ekki að nota sertindól. Varnaðarorð: Klínískar rannsóknir hafa sýnt að sertindól lengir QT-bilið meira en sum önnur geðrofslyf. Meðal QT lenging er meiri við efri mörk skammtabilsins sem mælt er með. Lenging QT-bilsins eftir sum lyf tengist eiginleikanum að geta valdið hjartsláttartruflunum af „Torsades de pointes-gerð“og skyndidauða. Hins vegar hafa klínískar og ekki klínískar rannsóknir ekki getað sýnt fram á hvort sertindól sé líklegra en önnur geðrofslyf til að valda hjartsláttartmflunum. Nauðsynlegt er að taka hjartalínurit fyrir og meðan á sertindól meðferð stendur. Sertindól er frábending ef QTc bilið frá grunnlínu er meira en 450 msek hjá körlum eða 470 msek hjá konum. Taka skal hjartalínurit við gmnnlínu, þegar náðst hefur stöðugt ástand eftir um það bil 3 vikur eða þegar skammtur er kominn upp í 16 mg og aftur eftir 3 mánaða meðferð. Meðan á viðhaldsmeðferð stendur skal taka hjartalínurit á þriggja mánaða frestiog fyrir og eftir aukningu á skömmtum. Mælt er með því að taka hjartalínurit í hvert sinn sem samtímis notkun lyfja sem geta aukið þéttni sertindóls hefst eða skammtar þeirra eru auknir. Mælist QTc bil meira en 500 msek meðan á sertindól meðferð stendur, skal hætta meðferðinni. Hjá sjúklingum sem fá einkenni eins og hjartsláttarónot, krampa eða aðsvif, sem gætu bent til hjartsláttartrufiana, á jregar að láta meta stöðuna, þar með talið að taka hjartalínurit. Best er að taka hjartalínurit að morgni og Bazett eða Fridericia formúlan hentar best við útreikninga á OTc bili. Hættan á lengingu QT bilsins eykst séu samtímis tekin lyf sem lengja QTc bilið eða lyf sem hamla umbrotum sertindóls. Hjá sjúklingum sem eiga á hættu verulega truflun á blóðsöltum, ætti að mæla kalíum- og magnesíum gildi í sermi, áður en meðferð með sertindóli hefst. Séu kalíum- og magnesíum gildi í sermi lág, skal úr því bætt áður en meðferð er haldið áfram. Mælt er með því að fylgst sé með kalíum gildum hjá sjúklingum sem fá uppköst, niðurgang, meðferð með þvagræsilyfjum sem lækka kalíum í blóði eða aðrar tmflanir á blóðsöltum. Þar sem sertindól hefur hamlandi áhrif á a, -viðtaka, geta einkenni stöðubundins lágþrýstings komið fram í upphafi meðferðar jregar verið er að ákvarða skammtastærðir. Geðrofslyf geta dregið úr áhrifum dópamínörva. Sertindól ætti að nota með gát hjá sjúklingum með Parkinsons sjúkdóm. Sum SSRI-lyf, eins og flúoxetín og paroxetín (öflugir CYP2D6 hemlar), geta aukið plasmaþéttni sertindóls allt að tvö- til þrefalt. Sertindól ætti því einungis að nota samhliða þessum lyfjum með ítrustu varúð og aðeins ef ávinningur er meiri en áhættan. Lægri viðhaldsskammtur af sertindóli gæti reynst nauðsynlegur og fylgjast ber vandlega með hjartalínuriti fyrir og eftir breytingar á skömmtun þessara lyfja. Sertindól ætti að nota með varúð hjá sjúklingum sem vitað er að hafa léleg CYP2D6 umbrot. Skýrt hefur verið frá örfáum tilvikum um hækkun blóðsykurs eða versnun sykursýki sem jregar er til staðar meðan á meðferð með sertindóli stendur. Ráðlegt er að fylgjast með sjúklingum með sykursýki og sjúklingum með áhættuþætti fyrir þróun sykursýki. Sertindól er ekki samþykkt til meðhöndlunar á geðrofi og/eða hegðunar- tmflunum tengdum heilabilun og ekki er mælt með notkun þess hjá öldruðum heilabiluðum sjúklingum. í klínískum rannsóknum á heiiabiluðum einstaklingum, hefur verið sýnt fram á u.þ.b. þreföldun áhættu á aukaverkunum á heilaæðar við töku sumra ekki dæmigerðra geðrofslyfja. Ekki er hægt að útiloka að áhættan sé einnig aukin fyrir önnur geðrofslyf eða aðra sjúklingahópa. Gæta skal varúðar við notkun Serdolect hjá sjúklingum sem hafa áhættuþætti fyrir slag. Sertindól verður að nota með varúð hjá sjúklingum eldri en 65 ára, þar sem aukin hætta er á alvarlegum hjarta- og æðasjúkdómum. Aður en meðferð er hafin á í öllum tilvikum að framkvæma ítarlega skoðun á hjarta og blóðrásarkerfi. Fylgjast ber vel með sjúklingum með væga eða miðlungs skerðingu á lifrarstarfsemi. Ráðlagt er að auka skammta hægar og nota lægri viðhaldsskammta. Klínískar rannsóknir benda til að sertindól valdi sjaldan utanstrýtu einkennum (álíka og af lyfleysu). Samt sem áður fylgir aukin hætta á síðbúinni hreyfitruflun við langtíma meðferð með geðrofslyfjum (einkum ef notaðir eru háir skammtar). Komi þessi einkenni fram ætti að íhuga að lækka skammta eða hætta meðferðinni. Sertindól ber að nota með varúð hjá sjúklingum með sögu um krampa. lllkynja sefunarheilkenni, hefur verið lýst í tengslum við notkun geðrofslyQa. Verði vart við þetta á að hætta meðferð með geðrofslyfjum án tafar. Bráðum fráhvarfseinkennum, þar með talið ógleði, uppköst, sviti og svefnleysi, hefur verið lýst eftir að meðferð hefur verið hætt skyndilega með geðrofslyfjum. Endurkoma sjúkdómseinkenna getur einnig átt sér stað og ósjálfráðum hreyfingum hefur verið lýst. Því er ráðlegt að draga hægt úr lyfjagjöf. Töflurnar innihalda mjólkursykur. Sjúklingar með sjaldgæft arfgengt galaktósaóþol, Lapp laktasaskort (Lapp lactase deficiency) eða glúkósa-galaktósa vanfrásog eiga ekki að taka lyfið. Milliverkanir:. Samtímis notkun lyfja sem vitað er að lengja QT-bilið (t.d. kínídíns) er frábending. Auk þess dregur kínídín töluvert úr virkni CYP2D6. Sertindól er verulega umbrotið með CYP2D6 og CYP3A. CYP2D6 er til í ýmsum formum en ýmis geðlyf og önnur lyf hindra verkun beggja ísóensímanna. Plasmajréttni sertindóls eykst tvö- til þrefalt hjá þeim sjúklingum sem á sama tíma taka flúoxetín eða paroxetín (öfiugir CYP2D6 hemlar). Því ætti einungis að nota sertindól samhliða þessum eða öðrum CYP2D6 hemlum með mikilli varúð. Hugsanlega þarf lægri viðhaldsskammt af sertindóli og vandlega skal fylgjast með hjartalínuriti fyrir og eftir breytingar á skammti. CYP3A: Vægrar aukningar (<25%) í sertindól plasmaþéttni hefur orðið vart við samhliða notkun makrólíð sýklalyfja (t.d. erýtrómýcíns, CYP3A hemill) og kalsíumganga- loka (diltiazem og verapamíl). Samt sem áður gætu afleiðingamar orðið mun meiri hjá einstaklingum með léleg umbrot með CYP2D6. Þar sem ekki er mögulegt að greina auðveldlega sjúklinga sem hafa léleg umbrot með CYP2D6. er samhliða gjöf CYP3A hemla og sertindóls ffábending, þar sem það getur leitt til verulegrar aukningar á styrk sertindóls í blóði. Umbrot sertindóls geta aukist marktækt af völdum lyfja sem vitað er að hvata CYP ísóensímin, einkum rifampicíni, karbamazepíni, fenýtóíni og fenóbarbítali, sem geta lækkað plasmajréttni sertíndóls tvö- til þrefalt. Minnkuð sefandi verkun hjá sjúklingum sem taka þessi lyf eða önnur lyf sem hvata ísóensímin getur valdið því að hækka þurfi skammtana af sertindóli að efri mörkum. Meðganga og brjóstagjöf: Öryggi notkunar sertindóls á meðgöngu hefur ekki verið staðfest. Sertindól hefur ekki reynst valda fósturskaða í dýratilraunum. f rannsókn á rottum fyrir og eftir got kom í Ijós minnkuð frjósemi afkvæma er gefnir voru skammtar innan meðferðarbils fyrir menn. Því ætti ekki að nota sertindól á meðgöngu. Rannsóknir hafa ekki verið gerðar hjá konum með bam á brjósti, en gert er ráð fyrir að sertindól skiljist út í brjóstamjólk. Ef meðferð með sertindóli er talin nauðsynleg, er rétt að hugleiða hvort hætta skuli brjóstagjöf. Aukaverkanir: Meðal þeirra sjúklinga sem fengu sertindól var tíðni utan- strýtu aukaverkana svipuð og hjá þeim sem fengu lyfleysu. Auk þess kom í ljós í klím'skum samanburðarrannsóknum við lyfleysu, að hlutfall þeirra sjúklinga sem þurftu lyf við utanstrýtu einkennum var hið sama í báðum hópum. Sumar aukaverkanimar koma fram í upphafi meðferðar og hverfa við áframhaldandi notkun, þ.m.t. stöðubundinn lágþrýstingur. Mjög algengar (>1/10): Nefslímubólga/nefstífia; Algengar (>1/100 til <1/10): Þyngdaraukning, lenging á QT-bili, rauð blóðkom í þvagi, hvít blóðkorn í þvagi, bjúgsöfnun, svimi, náladofi, andþrengsli, stöðubundinn lágþrýstingur. munnþurrkur, trufiun á sáðláti (minnkað magn sæðisvökva); Sjaldgœfar (>1/1.000 til <1/100): “Torsades de pointes”, yfirlið, krampar, hreyfitmflanir (sérstaklega síðkomnar hreyfitruflanir), blóðsykurshækkun; Mjög sjaldgœfar (>1/10.000 til <1/1.000): Skráð hafa verið tilvik illkynja sefunarheilkennis í tengslum við sertindól. Pakkningar og verð (sept. 2009): 4 mg, 30 stk.: 11.609 kr., 100 stk.: 31.750 kr.; 12 mg, 28 stk.: 31.457 kr„ 100 stk.: 91.315 kr.; 16 mg, 28 stk.: 31.457 kr„ 100 stk.:98.857 kr.; 20 mg, 28 stk.:31.457 kr„ 100 stk.: 106.399 kr. MARKAÐSLEYFISHAFI: H. Lundbeck A/S. Textinn varsíðast endurskoðaður 1. ágúst 2007. 728 LÆKNAblaðið 2009/95

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.