Þjóðlíf - 01.03.1988, Page 30
VIÐSKIPTI
á N-Atlantshafsleiðinni, leigi hana út til ann-
ars flugfélags, jafnvel SAS. Þá hefur einnig
verið orðað að United Airlines í Bandaríkj-
unum kynni að hafa hug á að nýta sér reynslu
og þekkingu Flugleiða á leiðinni og komast
þannig á flugleiðir, sem þetta sterka flugfé-
lag hefur hingað til ekki verið á.
Auðvitað hefur einnig verið talað um að
leggja Atlantshafsflugið alveg niður, en í
rauninni er það talinn fráleitur kostur. Pað
jafngilti því að “vesturglugganum væri lok-
að“, jafvirði þriggja milljarða í gjaldeyrisöfl-
un færi í súginn, atvinna hundruða manna
auk allra þeirra hliðarverkana sem slíkt hefði
einnig í för með sér. Með öðrum orðum er
talið að ekki sé minnsti pólitíski grundvöllur
fyrir því að leggja þetta flug alveg niður.
Leiðin út úr öngstrætinu liggur með öðr-
um orðum í gegnum breytta stjórnun fyrir-
tækisins, breyttan rekstur og markaðsstefnu
— nýtt blóð.
Klak sf.
Sigurður Helgason eldri er með félag á
sínum snærum, sem heitir Klak s.f. Þetta
félag hefur verið skráð sem fiskeldisfyrirtæki
en hefur að sögn lítið komið við sögu í þeim
bransa. Þetta félag var stofnað af Sigurði
ásamt með Sveini B. Valfells, Sveini S. Val-
fells, Ágústi Valfells, Hans Indriðasyni og
Gunnari Helgasyni, skráð sem sameignafé-
lag árið 1976. I desember 1986 seldu þeir
Ágúst og Sveinn Valfells Sigurði Helgasyni
stærsta Valfellshlutann í Klaki. Aðaltilgang-
ur þessa félags er samkvæmt firmaskrá að
taka á leigu ár og endurleigja þær til stang-
Samdráttur og
uppsagnir?
— Árið 1987 var slæmt ár í rekstri Flug-
leiða. Við munum athuga mjög okkar
gang, sagði Sigurður Helgason forstjóri í
sjónvarpsfréttum í síðustu viku. Hann kvað
í viðtölum að vegna samninga og þ.u.l. væri
erfitt að draga saman seglin í N-Atla-
ntshafsfluginu á þessu ári, en ekki fyrir séð
hvað yrði gert á árinu 1989. Hann útilokaði
ekki að kæmi til samdráttar og jafnvel upp-
sagna starfsfólks. Alls munu um 1700
manns starfa hjá Flugleiðum.
veiða, fiskirækt í ám og vötnum, en auk þess
rekstur, kaup og sala fasteigna og verðbréfa
— og lánastarfsemi.
Sömu aðilar með Steypustöðinni (Valfell-
sættin) komu við sögu í fiskeldisáformum og
veiðifélagi á nafni fyritækis sem hét Fjár-
magn hf. Um 50 einstaklingar stóðu að því
félagi, þar á meðal Flugleiðamennirnir þá-
verandi og margir núverandi: Björn Theó-
dórsson, Dagfinnur Stefásson, Erling Aspe-
lund, Finnbjörn Þorvaldsson, Hans Indriða-
son, Jóhannes Markússon auk Sigurðar og
fleiri manna. Því hlutafélagi mun nú hafa
verið slitið.
Annað fyrirtæki, þar sem sömu aðilar
koma við sögu er Sporður sf., sem stofnað
var 1981. í stjórn þess eru Gunnar Helgason,
Jón Ólafsson, Gísli Ólafsson, Jón Ingvars-
son, Vilhjálmur Ingvarsson auk Sigurðar
Helgasonar. Tilgangur þess félags er svipað-
ur og Klaks, að taka á leigu laxveiðiréttindi
og endurleigja. Hér var um að ræða vatna-
svæði Þverár og Kjarrár í Mýrasýslu. Með
Sporð er eins farið og með Klak sf., að því
leyti að þeir Ágúst og Sveinn Valfells seldu
Sigurði Helgasyni sinn hluta í desember
1986.
Þó Sigurður Helgason og fleiri Flugleiða-
menn komi við sögu í öllum þessum fyrir-
tækjum , þá munu Fjármagn hf. og Sporður
sf. ekki hafa komið beint við sögu Flugleiða.
Klak sf. mun hins vegar í raun vera bréfafyr-
irtæki í Flugleiðum og hefur verið einna
voldugast innan Flugleiða, kapitalbakgrunn-
ur Sigurðar Helgasonar. Með auknum styrk
Eimskips innan Flugleiða hefur staða þess-
ara aðila veikst að miklum mun.
Samkeppnin
úr sögunni?
Ýmsar hugmyndir eru uppi um lausnir, en
þær eiga það sammerkt að vera umdeilanleg-
ar og tímafrekar. Fram að þessu virðist vera
almenningsvilji og pólitískur vilji fyrir því að
ekki verði einokun á flugi til og frá landinu.
Arnarflug hefur spjarað sig síðustu misserin
og þrátt fyrir á stundum gráglettni í sam-
keppni þesara tveggja flugfélaga, þá heyrast
nú orðið tónar— frá Flugleiðamönnum vel
að merkja — um að Arnarflug ætti að sam-
einast Flugleiðum — hin þrönga staða á al-
þjóðamarkaði leyfi ekki þessa samkeppni.
Hún sé of dýru verði keypt.
Arnarflug er á hinn bóginn á allt öðru róli;
sæmileg rekstrarafkoma upp á síðkastið ýtir
undir vilja til landvinninga. Málefni þessara
flugfélaga eru auðvitað samofin pólitískum
aðstæðum hverju sinni í landinu. Flugleiðir
njóta verndar stjórnvalda á flugleiðunum til
og frá Skandinavíu og Bretlands. Þangað
vilja Arnarflugsmenn líka komast en ekki
yrði slík nándarsamkeppni til að bæta útlitið
fyrir Flugleiðum.
Óánœgja á
toppnum
Eins og gefur að skilja eru Flugleiðamenn
ekki ánægðir með þessa slæmu stöðu fyrir-
tækisins. Þeir nafnar Sigurður stjórnarfor-
maður og Sigurður forstjóri eru svo sem
venja er dregnir til ábyrgðar með óformleg-
um hætti — og margir telja þá hafa gert
stjórnunarmistök. Þá er t.d bent á að flogið
sé til of margra staða í Bandaríkjunum — og
stóran hluta tapsins megi rekja til Orlando-
flugsins sem hafi verið óhagkvæmt frá byrj-
un. Einnig er sagt að með Sigurði yngra hafi
litlar breytingar orðið á stjórununni eins og
margir hefðu vænst, því Sigurður eldri
stjórni eftir sem áður þessu mikla fyrirtæki.
Siguður yngri hafi ekki náð tökum á öllu
saman, enda þurft að starfa í skjóli nafna
síns. Þá er einnig bent á að í stjórn fyrirtækis-
ins séu margir rosknir menn, þannig að
stjórnin sé ekki sá hugmyndabrunnur fyrir
stjórnendur sem hún ella gæti verið.
Smám saman hefur því verið að grafa um
sig óánægja á toppi fyrirtækisins og hafa
menn nefnt ný forstjóraefni, annað hvort
með því að annar hvor þeirra nafna víki fyrir
öðrum mönnum —eða að nýr maður eða
menn komi þeiin við hlið. Oft hefur verið
minnst innan fyrirtækisins á Sigfús Erlings-
son framkvæmdastjóra markaðssviðs í þessu
sambandi, enn fremur Leif Magnússon fram-
kvæmdastjóraþróunarsviðs, Guðmund Páls-
son framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs —
og sáttakandidatinn Björn Theódórsson
framkvæmdastjóra fjármála- og stjórnunar-
30