Þjóðlíf - 01.03.1988, Page 75
BILAR
Trooperinn var útnefndur „jeppi ársins" af útbreiddu jeppablaði 1985.
Reynsluakstur á Isuzu Trooper:
Þýðgengur, alhliða
brúkunarhestur
ISUZU ER NÝJASTA JAPANSKA TEG-
UNDIN á bifreiðamarkaðnum hér á landi,
kom ekki hingað fyrr en í upphafi þessa ára-
tugar. Þó er hún engan veginn ný í heima-
landinu. Þar hafa starfsmenn fyrirtækisins
unað sér við að framleiða bfla og vélar frá því
1 fyrri heimsstyrjöldinni, reyndar undir öðr-
um nöfnum framan af. Sérstaklega hafa þeir
verið iðnir við það síðustu 40-50 árin að
smíða dísel-vélar og flutningabfla af ýmsum
gerðum og eru nú afkastamesti vörubfla-
íramleiðandi landsins. Þar á bættu menn og
konur því að vita hvað þau eru að gera.
Árið 1971 urðu þau tímamót í sögu fyrir-
I^kisins að það gekk í eina sæng með banda-
r*ska stórfyrirtækinu General Motors
(Chevrolet, Buick o.fl.). Síðan hafa Isuzu-
bflar jafnframt verið seldir í Bandaríkjunum
undir tegundarheitinu Chevrolet, fyrst og
fremst litlir fólksbflar og skúffubflar („pick-
up“), en Trooper-jeppinn sem hér verður
fjallað um, hefur alltaf heitið Isuzu vestan-
hafs. Þar voru menn raunar það ánægðir
með Trooperinn að hann var útnefndur
„Jeppi ársins“ af útbreiddu jeppablaði 1985.
JEPPASAGA ÍSLENDINGA hefur enn
ekki verið skráð, en þegar að því kemur
verður þar væntanlega að finna kafla um
japönsku jeppana. Sá kafli hefst með gamla,
góða Toyota Landcruiser-jeppanum á
sjöunda áratugnum og er hann aðalsöguhetj-
an lengi vel. Um og fyrir 1980 koma síðan til
sögunnar þeir jeppar japanskir sem hvað
mest hefur borið á síðan: Mitsubishi Pajero,
Toyota Landcruiser (nýrri gerðin), Nissan
Patrol og nú síðast Isuzu Trooper og Dai-
hatsu Rocky. (Pínujeppinn Suzuki Fox er af
dálítið öðru sauðahúsi, en alls góðs makleg-
ur sem slíkur). Þessir bílar eiga það sam-
merkt að vera ágætum hæfileikum búnir sem
jeppar til almennra nota: Þægilegir í akstri á
vegum úti, yfirleitt notadrjúgir í torfærum,
ríkulega búnir og liprir í bæjarsnattinu. Sem
sagt prýðilegir ferðabflar um vegi og vegleys-
ur og þreyta engan í innkaupaferðum og
bankastússi. Er hægt að biðja um meira?
ISUZU TROOPER var ekkert alltof vel
tekið þegar hann kom hingað fyrst. Ég er
ekki frá því að jafnvel sölumennirnir hjá um-
boðinu, Bílvangi hf., hafi á þeim árum átt
fullt í fangi með að sannfæra sjálfa sig, hvað
þá kúnnana, um kosti hans umfram keppi-
nautana, og í hjarta sínu fundist hann bæði
ófríður og máttlaus. En í þeim efnum hefur
orðið á mikil breyting og sölumennirnir geta
nú talað um ágæti Troopersins af fullri sann-
færingu. Bfllinn er nefnilega orðinn allrar
athygli verður og þarf hvorki að skammast
sín fyrir vélarafl né útlit. Hvað það síðar-
nefnda varðar hefur hann nýjasta árgerðin
breyst mjög til hins betra, línur orðnar mýkri
og rennilegri og komið á hann nýtt andlit,
75