Þjóðlíf - 01.10.1988, Side 16
INNLENT
Gólfin lökkuð. Kristín Karlsdóttir og Þóra Guðmundsdóttir.
Norðurgata 3 á
Seyðisfirði -
Hús „Frú Láru“.
Húsið Norðurgata 3 var byggt árið 1900 af
Rolf Johansen verslunarmanni á Seyðis-
firði og síðar á Reyðarfirði. Hann fékk
lóð undir húsið hjá Sigurd Johansen
kaupmanni, sem byggði húsið. Arið 1908
seldi Rolf Johansen Guðrúnu Kristjáns-
dóttur ísdal, konu Ingvars ísdal tré-
smíðameistarara, húsið, en hún var systir
Kristjáns læknis Kristjánssonar á Seyðis-
firði.
Árið 1911 festi síðan Gísli Lárusson.
bróðir Inga T. Lárussonar tónskálds,
kaup á húsinu. Árið 1916 gekk Gísli að
eiga Láru Margréti Kristínu Bjarnadótt-
ur, dóttur Bjarna Þorsteinssonar prests
og tónskálds á Siglufirði.
Frá árinu 1916 varð því Norðurgata 3
hús „Frú Láru“.
Frú Lára Bjarnadóttir bjó í húsinu fram
á efri ár. Hún var fædd 10. júní 1893 og
lést 24. janúar 1969.
„Frú Lára“ festi kaup á Norðurgötu 3 á Seyð-
isfirði,“ sagði Þóra Guðmunsdóttir arkítekt,
ein af driffjöðrunum í félagsskapnum.
„Hugmyndin var sú þegar frá upphafi, að í
húsinu yrði ýmis starfsemi. Talað var um
félagsaðstöðu fyrir konur, vinnuaðstöðu
með frjálsum vinnutíma, aðstöðu þar sem
konur gætu komið sinni heimavinnu á fram-
færi, hvort sem það væri það sem þær skrif-
uðu á ritvél eða prjónuðu peysur o.s.frv.
Við vissum, að lítið yrði hægt að gera
nema hafa eitthvert athvarf. Við höfðum frá
upphafi húsið að Norðurgötu 3 í huga, sem
við keyptum síðan. Við stofnuðum hlutafé-
lag í bænum, sem við nefndum „Frú Láru". I
því eru nú um 140 konur, flestallar seyðfirsk-
ar. Við söfnuðum hlutafé upp á 1200 þúsund
og höfum síðan verið að hrinda þessu af stað.
Sumarstarfið fólst í því að við opnuðum
litla verslun fyrir ferðafólk. Síðan vorum við
með kaffisölu. Margt þurfti líka að gera í
húsinu og við höfum verið að vinna að því.
Meiningin var sú, að einhver atvinna yrði
fyrir konur hjá„ Frú Láru“. Vinna hefur hins
vegar verið feikinóg á Seyðisfirði undanfar-
ið. Að öllum líkindum mun því þetta hús
nýtast okkur aðallega sem félagsaðstaða í
vetur. Við munurn leiga út aðstöðu í húsinu.
Frú Lára mun beita sér fyrir námskeiða-
höldum, fyrirlestrum, opnum kvöldum, sýn-
ingum o.fl. Við viljum líka koma þeirri þjón-
Unnið að lagagerð fyrir hlutafélagið „Frú
Láru“.
Frá vinstri: Þóra Guðmundsdóttir, Elísa-
bet Bendediktsdóttir (verkefnisstjóri áta-
ksverkefnis), Lilja Kristinsdóttir, Þóra
Ingvaldsdóttir, Oddný Stefánsdóttir, Sig-
ríður Júlíusdóttir, Sólveig Svafarsdóttir,
Theódóra Ólafsdóttir, Lukka Gissurar-
dóttir, Oddfríður Ingvadóttir, Bóthildur
Sveinsdóttir, Jóhanna Gísladóttir, Kristín
Karlsdóttir, Ingibjörg Hallgrímsdóttir,
Þórdís Bergsdóttir. Litla stúlkan á mynd-
inni heitir Brynhildur Garðarsdóttir.
ustu í gang, sem við ætluðum okkur. Hún
felst í því að miðla verkefnum milli kvenna,
þannig að ef einhver þarf að fá eitthvað vél-
ritað og annar þarf að fá prjónaða peysu, þá
getum við komið slíku í kring.
Þetta hefur tengt okkur mjög mikið sam-
an, konurnar hér á staðnum. Hingað koma
konur úr öllum stéttum og flokkum, “ sagði
Þóra Guðmundsdóttir að lokum.
eh
16