Þjóðlíf - 01.11.1988, Side 46
ERLENT
Bhutto líklegur sigurvegari
Viðtal við Baktiar
verjanda Ali Bhuttos
1979 og einn helsta
ráðgjafa Benazir
Bhutto. Örlítil
innsýn í
kosningarnar í
Pakistan.
Þingkosningar verða haldnar í Pakistan 16.
nóvember og er talið líkiegt að Benazir Bhut-
to geti orðið sigurvegari kosninganna. Þar
með er þó engan veginn víst að hún verði
leiðtogi landsins að loknum kosningum.
Fyrrverandi einræðisherra, Zia U1 Hak,
boðaði til kosninganna í vor fjórum dögum
eftir að helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar,
hin 36 ára gamla Benazir Bhutto, tilkynnti að
hún ætti von á barni um miðjan nóvember.
Frá því að boðað var til kosninga og þar til nú
hefur margt afdrifaríkt gerst í þessu landi
sem þekkir lýðræði og stöðugleika í stjórn-
málum einungis af afspurn. Zia U1 Hak,
hershöfðingi, fórst í flugslysi í sumar. Fyrir
tilstuðlan erlendra aðila var flugvél hans
grandað, ef marka má opinbera innlenda
rannsókn. Zia var alvaldur, sem m.a. skipti
sér af vali á landsliðsmönnum í krikket, og
enginn af herforingjum hans virtist geta fyllt
það skarð sem hann skildi eftir sig.
Um miðjan september eignaðist Benazir
Bhutto son eftir eðlilega meðgöngu og var þá
lýðum ljóst að hún hafði leikið á Zia U1 Hak.
Baktiar var ríkissaksóknari í Pakistan á
velmektardögum Bhutto fjölskyldunnar,
síðar verjandi Bhuttos í réttarhöldunum
1979. Hann telur að lýðræði muni komast
á í Pakistan...
Mynd Ásgeir.
Hún hafði séð það fyrir að hann mundi reyna
að notfæra sér tímabundna óvirkni hennar í
stjórnmálum í kringum fæðinguna og þess
vegna laug hún til um það hvenær hún ætti
von á sér. Sonurinn fæddist heilbrigður og
var strax nefndur í höfuð afa síns, Zulfíkar
Ali Bhutto, sem var forsætisráðherra þar til
Zia steypti honum af stóli 1977 og lét hengja
hann tveimur árum síðar. Fæðing stráksins
staðfestir í vitund Pakistana að Bhuttoættar-
veldið mun verða áfram við lýði og þar í landi
er það gæfumerki að fyrsta barn sé heilbrigð-
ur sonur og að margra áliti þá getur sú trú
almennings að gæfan sem fylgi Benazir geti
hænt að fleiri atkvæði en langur listi loforða.
Benazir Bhutto er leiðtogi pakistanska
þjóðarflokksins (Pakistan Peoples Party,
PPP) og er það embætti sem hún erfði við
aftöku föður síns. Þegar faðir hennar deildi
og drottnaði í Pakistan fyrir um einum og
hálfum áratug stundaði hún nám í stjórn-
málafræðum við Cambridgeháskóla í Eng-
landi og var jafnframt leiðtogi stúdenta þar
um tíma. Hún var í Pakistan á meðan réttar-
höldin yfir föður hennar stóðu yfir en eftir að
hann var tekinn af lífi var henni vísað úr landi
og fékk hún ekki leyfi til þess að snúa aftur
fyrr en 1986 og var hún þá fyrstu mánuðina í
stofufangelsi. Líklegt verður að teljast að
Benazir verði sigurvegari næstu kosninga.
Fyrir utan mikla alþýðuhylli hennar og fjöl-
skyldu hennar þá er sú hjörð sem studdi Zia
mjög sundruð eftir fráhvarf forystusauðsins.
Vegna mikilla áhrifa hersins í Pakistan þá er
það fjarri því að vera sjálfsagt mál að Benazir
taki við völdum þó svo hún og flokkur henn-
ar sigri í kosningunum. til þess er lýðræðið
enn mjög ótryggt í þessu landi.
Tíðindamaður Þjóðlífs hitti nýverið að
máli ríkissaksóknarann í Pakistan í tíð Ali
Bhuttos, Yanya Baktiar. Hann var einnig
aðalverjandinn í réttarhöldunum yfir Ali
Bhutto sem enduðu 1979 með hengingu
Bhuttos. Vegna náinna samskipta við Bhut-
to síðustu ár ævi hans þá jukust mjög völd
Baktiars og virðing innan PPP. Hann er því
einn áhrifamesti maður innan flokksins og
sérlegur ráðgjafi Benazir Bhuttos. Strax eftir
valdatöku Zia U1 Hak 1977 fékk Baktiar að
kenna á hrottaskap harðstjórnarinnar því
hann var fangelsaður og pyntaður, eins og
evrópskir fjölmiðlar greindu frá á sínum
tíma. Yanya Baktiar sagði að ekki nokkrum
manni væri leyfilegt að gleðjast yfir dauða
annarra en hann sagðist ekki getað neitað
því að fregnin um dauða Zia U1 Hak hefði
verið sér mikill léttir. Hann sagði að herlög
U1 Haks hefðu verið eins og martröð. Hann
Á árshátíðum, í einka-
samkvæmum og á alls
kyns skemmtunum.
leikur við öll
tœkifœri.
Hljómsveitin leikur
músik fyrir
alla aldurshópa
Umboðssímar ☆ Viðar Sigurðsson 53697 <YVTorfi Ólafsson 671573 ☆ Hafsteinn Björgvinsson ☆Steinar Viktorsson 675088