Þjóðlíf - 01.11.1988, Síða 49
ERLENT
Við erum hvorki sósíalistar né
borgaraleg...
Viðtal við Kicki
Bobacka
flokksritara
Grœningja í Svíþjóð
Annaðhvort tekst þetta hjá okkur
eða það verður engin framtíð
Nýafstaðnar kosningar í Svfþjóð valda eng-
um þáttaskilum hér á landi frekar en gert
hafði verið ráð fyrir. Nokkuð kom það raunar
á óvart að borgaraflokkarnir töpuðu umtals-
verðu fylgi og eiga forystumenn þeirra erfitt
með að dylja undrun sína og vonbrigði. Þá
hefur það og valdið umhugsun hversu stór-
an sigur þeir unnu í Sjöbo sem þar eru and-
snúnir móttöku flóttamanna. Hafa ýmsir
þekktir kynþáttaaðskilnaðarsinnar þóst sjá
dögun á lofti. Þeirra á meðal er Glistrup hinn
danski sem nú vill að Framfaraflokkurinn
beiti sér fyrir svipuðum kosningum í öllum
dönskum bæjarfélögum. í Malmö náðu jafn-
aðarmenn aftur völdum eftir þriggja ára setu
borgara á valdastólum. Urðu þá margir
undrandi því jafnaðarmenn gengu til kosn-
inganna með skýr loforð um skattahækkan-
ir. Styður það álit margra stjórnmálafræð-
inga að þó svo kjósendur greiði atkvæði á
grundvelli mats á efnahagsstefnu sé það
ekki fyrst og fremst spurning um hvaða pers-
ónulegan hag þeir hafi af stefnunni. Frekar
íhugi þeir hvort viðkomandi flokkur geti
stjórnað þannig að landinu sem heild sé
borgið.
Þessar kosningar eru sögulegar vegna
þess að í fyrsta skipti í 70 ár heldur nýr flokk-
ur innreið sína á sænska þingið, þ.e. flokkur
sem ekki er klofningur frá öðrum eða við-
hengi. Miljöpartiet de gröna hlaut 5.5% at-
kvæða og 20 þingmenn af 349. Þessa flokks
hefur áður verið nokkuð getið á síðum Þjóð-
lífs en í ljósi þessa sigurs þótti mér rétt að fá
flokksmenn sjálfa til að gera grein fyrir sér.
Höfuðbækistöðvar flokksins eru við járn-
brautarstöðina hér í Lundi og þar mælti ég
mér mót við Kicki Bobacka sem er n.k.
flokksritari, en uppbygging flokksins er með
nokkuð öðrum hætti en gengur og gerist. A
leið til fundarins leit ég yfir forsíðufréttir
morgunblaðanna. Sjómenn í Kattegat höfðu
Kicki Bobacka, flokksritari Græningja: „Miðstýring hefur alltaf verið eitur í okkar
beinum
tilkynnt veikindi til tryggingastofnunarinn-
ar. í vikutíma höfðu þeir ekki fengið svo
mikið úr sjó að dygði í soðið handa þeim
sjálfum. „Við erum ekki veikir sjálfir,"
sögðu þessir sjómenn, „en hafið er sjúkt, það
er í raun í andarslitrunum.“ Það er Ijóst að
umhverfismál eru enn í brennidepli.
Eg bað Kicki að byrja á að segja mér
aðeins af fortíð flokksins.
— Ræturnar liggja í umhverfisverndar-
hreyfingum Vestur-Evrópu frá sjöunda ára-
tugnum, sem síðan má rekja enn lengra aftur
eða jafnvel allt til útkomu bókar Rachel Car-
son, Raddir vorsins þagna, sem vakti mikla
athygli á sínum tíma. Die Grúne í Þýskalandi
urðu til sem flokkur um miðjan áttunda ára-
tuginn. í Svíþjóð var mjög virk umhverfis-
verndarhreyfing til 1980 en eftir þjóðarat-
kvæðagreiðsluna um kjarnorkuna það ár og
ósigur línu 3 (kjarnorkuandstæðinga) fór
hún dalandi. Hinir flokkarnir sviku þá með
því að gefnir voru þrír möguleikar í stað
49