Frjáls verslun - 01.04.2013, Blaðsíða 32
32 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
Efnahagskerfi heims ins verður æ samþættaðra. Þessu fylgir vaxandi samkeppni landa um fjármagn
og mannauð. Það fjárfestingar
fé sem til ráðstöfunar er fer í
vax andi mæli til þeirra landa þar
sem arðsemi þess er mest. Þau
lönd njóta þá jafnframt mests
hagvaxtar. Laun hækka og
mann auðurinn fylgir í kjölfarið.
Hin löndin dragast aftur úr.“
Ragnar Árnason segir að
til lengri tíma litið sé það því
efna hagsleg samkeppnisstaða
landa sem ræður efnahagslegri
frami stöðu þeirra miðað við
önnur lönd. Þau lönd sem vilja
halda hlut sínum í hinni alþjóð
legu samkeppni og búa þegnum
sínum sem best kjör til frambúð
ar verði að laða að og halda í
fjármagn og mannauð. Það geti
þau hins vegar ekki nema með
því að bæta og viðhalda sam
keppnisstöðu sinni.
„Alþjóðleg stofnun, World
Com petitiveness Center, hefur
um árabil tekið saman og birt
vísitölu um samkeppnishæfni
þjóðlanda. Frá miðjum tíunda
áratugnum og fram til 2006 var
samkeppnisstaða Íslands sam
kvæmt þessari vísitölu sterk og
fór batnandi. Þetta snarbreyttist
með þeirri efnahagsstefnu sem
ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardótt
ur innleiddi. Samkeppnisstaða
Íslands hrundi úr því að vera í
hópi fimm til tíu samkeppnishæf
ustu landa heims niður í u.þ.b.
30. sæti og sýnir þess engin
merki að vera að skána. Margt
bendir til þess að það sé ekki síst
þessi lélega samkeppnis staða
Íslands sem veldur því að fjárfest
ing hér á landi er svo lítil sem raun
ber vitni. Þau efnahagsskilyrði
sem stjórnvöld hafa skapað hér
á landi undanfarin fjögur ár eru
einfaldlega þannig að ekki er
vænlegt fyrir fjármagnseigendur
að festa fé sitt á Íslandi. Breytist
þessi samkeppnis staða ekki
til batnaðar má líklegt telja að
fjárfesting á landinu verði áfram í
lágmarki og kreppan dragist enn
á langinn.“
alþjóðleg samkeppnis-
staða Íslands stórlega
versnað
„Alþjóðleg stofnun, World Com
peti tiveness Center, hefur um árabil
tekið saman og birt vísitölu um
sam keppnishæfni þjóðlanda.“
RaGnaR ÁRnason
– prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands
EFNAHAGSMÁL
SkoðUN TexTi: svava jónsdóTTir
Aðalferðatími landsins er byrjaður og sífellt fleiri ferðamenn koma til landsins. Vert
er í því sambandi að huga vel
að upplifun þessara neytenda.
TripAdvisor er eins og flest
ir vita samfélagsmiðill sem
að stoðar neytendur við það
að ná sér í upplýsingar og/
eða dæma þjónustu er tengist
ferða lögum svo sem eins og
hótel, veitingastaði og söfn. Hér
á landi sem annars staðar er
þessi síða ekki einungis notuð
af ferðamönnum heldur nýtur
hún aukinna vinsælda heima
manna einnig. Eins og gefur að
skilja geta dómar á TripAdvisor
virkað hvetjandi en einnig mjög
letjandi ef þeir eru neikvæðir;
líkt og titlar tveggja dóma í
fyrirsögninni sem tilheyra ís
lensku hóteli. Hér áður fyrr var
kannski hægt að komast upp
með heitan bjór, vondan mat og
lélega þjónustu svo lengi sem
staðsetning var góð eða verð
lágt. Ferðamenn höfðu mun
takmarkaðri leiðir til að læra af
reynslu annarra. Í dag eru þeir
hins vegar betur verðlaunaðir
sem þekkja bæði yrtar og óyrt ar
langanir neytenda, setja sér
reglur um lágmarksþjónustu og
skapa tækifæri til að fara fram
úr væntingum. Í þessu samban
di geta íslensk þjónustu fyrir
tæki almennt bætt sig til að
ná fram frekari vexti. Hér er
meðal mennskan of algeng og
þjón usta jafnvel léleg. Eða með
orðum eins TripAdvisornot
anda: „Although our friend had
warn ed us that a lot of locals
in Reykjavik weren’t exactly
cust omer service driven, I did
not expect to be faced with
a complete and utter lack of
hospitality.“ Hér eru því virkileg
tækifæri til að gera betur.
„absolutely Horrific!“
… „Do not book this place!“
DR. ValDimaR siGuRðsson
– dósent við við skiptadeild HR
MARKAÐS-
HERFERÐIN