Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2000, Side 38

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2000, Side 38
I ÁGRIP ERINDA / X. VÍSINDARÁÐSTEFNA LÆKNADEILDAR HÍ Enginn munur fannst á öndunar- og púlsleif við hámarksálag hjá hópunum. Hreyfanleiki brjóstkassa hjá hryggiktarhópnum sýndi marktæk vensl við VT, hám og V’O^, hám. Ályktanir: Hryggiktarhópurinn í þessari rannsókn hafði væga herpu á öndunarmælingum og skert þol á þolprófum samanborið við heilbrigðan viðmiðunarhóp. Skertur hreyfanleiki brjóstkassa gæti skýrt lægri öndun (V’g, hám) við hámarksálag. E 43 Áhrif sex vikna reykbindíndis á öndunarmælingar fólks sem kemur til lungnaendurhæfingar Hans Jakob Beck, Marta Guöjónsdóttir Lungnadeild Reykjalundar Netfang: hansib@isholf.is Inngangur: Vitað er að þjálfun og fræðsla lungnasjúklinga í endur- hæfingu hefur engin áhrif á sekúndufráblástur (FEVl). Margir hætta reykingum við komu til lungnaendurhæfingar á Reykjalund, þar sem gerð er krafa um algert reykleysi. Tilgangur rannsóknar- innar var að kanna áhrif reykbindindis í sex til sjö vikna langri end- urhæfingu á öndunargetu. Efniviður og aðferðir: Allir sjúklingar, sem lögðust inn á lungna- deild Reykjalundar á 12 mánaða tímabili og höfðu reykt fram að innlögn voru öndunarmældir við komu og fyrir brottför eftir hlé á töku berkjuvíkkandi innúðalyfja. Peir sem voru á slíkri meðferð voru einnig mældir eftir lyfjatöku. Niðurstöður: Alls voru 56 manns, sem hættu reykingum við komu. Af ýmsum ástæðum voru 11 ekki mældir fyrir útskrift en í rann- sóknarhópunum voru 45 manns, 13 karlar og 32 konur meðalaldur 60±11 ár. Þeir sem voru á meðferð með berkjuvíkkandi innúðalyfj- um (n=41) voru einnig mældir eftir lyfjatöku, tveimur til þremur dögum eftir íyrstu mælingu. Sjá niðurstöður í töflu. Þeir sem svör- uðu lyfjameðferð bættu FEVj marktækt meira en þeir sem ekki svöruðu lyfjameðferð (p<0,001). Allir n = 45 Svara lyfjum* n = 21 Svara ekki lyfjum* n = 20 Koma FEVl 1,49±0,60 1,23±0,43 1,69±0,62 FEV1% 60±23 48±16 70±24 Útskrift FEVl 1,71±0,57 1,52±0,45 1,84±0,632 FEV1% 69±21 59±16 76±24 * Samkvæmt skilmerjum ATS: FEVl eykst um 12% og að minnsta kosti 200 ml. Ályktunir: Reykbindindi við komu til lungnaendurhæfingar bætir öndunargetu marktækt hjá öllum hópnum, en mest hjá þeim ein- staklingum sem svara berkjuvíkkandi lyfjum. E 44 Langtímahorfur karla og kvenna með háþrýsting og áhrif meðferðar. Rannsókn Hjartaverndar Lárus S. Guðmundsson Guðmundur Þorgeirsson', Magnús Jóhanns- son1, Nikulás Sigfússon2, Helgi Sigvaldason1, Jacqueline C. M. Witteman3 'Rannsóknastofa f lyfja- og eiturefnafræði HÍ, 'HjarUvernd, 3Dpt of Epidemiology and Biostatistics, Erasmus University Medical School, Rotterdam, Netherlands Netfang: magjoh@hi.is Inngangur: Aðalmarkmið rannsóknarinnar var að ákvarða áhrif meðferðar við háþrýstingi í hóprannsókn Hjartaverndar á 14 923 körlum og 15 872 konum sem fylgt var eftir í allt að 30 ár. Efniviður og aðferðir: Þátttakendur voru fæddir á árunum 1907 til 1935. Rannsóknin var framkvæmd í sex þrepum og við inntöku var hver einstaklingur greindur með eðlilegan eða háan blóð- þrýsting. Þeir sem voru með háþrýsting voru flokkaðir í þrjá flokka: 1) á meðferð og með eðlilegan blóðþrýsting, 2) á meðferð og með of háan blóðþrýsting og 3) án meðferðar. Þessi flokkun hélst óbreytt alla rannsóknina. Endapunktar voru hjartadrep, dauði vegna hjarta- og æðasjúkdóma og dauði af hvaða orsök sem er. Notuð var tímaháð Cox aðhvarfsgreining til að reikna á- hættuhlutfall fyrir hina ólíku hópa með háþrýsting og með þá sem höfðu eðlilegan blóðþrýsting sem viðmiðunarhóp. Leiðrétt var fyrir aldri og ári inntöku í rannsóknina og samsettri áhættu þar sem það átti við. Niðurstöður: Áhættuhlutfall fyrir hjartadrep og dauða vegna hjarta- og æðasjúkdóms fór lækkandi fyrstu 10 ár eftirfylgnitímabils hjá hópnum sem fékk árangursríka meðferð en hafði tilhneigingu til að hækka hjá hópunum sem fengu enga eða ófullnægjandi meðferð. Þetta var greinilegra hjá körlum en konum. Við eftirfylgni í meira en 10 ár fór munurinn á milli hópa minnkandi, sennilega vegna flutnings einstaklinga á milli hópa. Ályktanir: í faraldsfræðilegri hóprannsókn með langtíma eftirfylgni sást árangur árangursríkrar meðferðar við háþrýstingi, fyrstu 10 ár eftirfylgnitímabils, á hjartadrep og dauða vegna hjarta- og æðasjúk- dóma. I upphafi rannsóknar höfðu karlar sem fengu háþrýstings- meðferð marktækt verri horfur vegna áhættuþátta en þeir sem ekki fengu meðferð. E 45 Áhættuþættir skyndilegs hjartadauða Gestur Þorgeirsson , Helgi Sigvaldason2, Guðmundur Þorgeirsson2'3 ‘Landspítali Fossvogi, 2Rannsóknarstofa Hjartaverndar, 3Landspítali Hringbraut Netfang: gesturth@shr.is Inngangur: Rannsókn Hjartaverndar er framskyggn ferilrannsókn sem hófst 1967 og hefur meðal annars veitt haldgóðar upplýsingar um áhættuþætli hjarta- og æðasjúkdóma á íslandi. Tilgangur þessar- ar rannsóknar var að kanna hvort í hóprannsóknarþýði Hjarta- verndar sé unnt að greina áhættuþætti skyndilegs hjartadauða eða hjartastopps. Efniviður og aðferðir: 1 tengslum við rekstur neyðarbíls við slysa- og bráðdeild Landspítalans hefur frá árinu 1982 verið haldin skrá yfir einstaklinga á Reykjavíkursvæðinu sem áhöfn bílsins hefur vitjað vegna hjartastopps. Hér eru til athugunar hjartastoppstil- felli utan sjúkrahúsa frá árabilinu 1987-1996. Að fengnu leyfi Vís- indasiðanefndar og Tölvunefndar var kannað hverjir þessara ein- staklinga hefðu tekið þátt í rannsókn Hjartaverndar. Samband hinna ýmsu áhættuþátta og skyndilegs hjartadauða var könnuð í úrlaki 8007 karla og 9435 kvenna sem voru á lífi þegar rekstur hjartabílsins hófst. Meðal karlanna hafði 171 verið vitjað vegna skyndilegs hjartadauða en 47 kvennanna. Sjálfstætt vægi hinna ýmsu áhættuþátta var metið með tímaháðri aðhvarfsgreiningu Cox. Niðurstöðun Meðal karla reyndust aldur, kólesteról, þríglýseríðar, taka háþrýstingslyfja, líkamsþungi, þekkt hjartadrep, þögult (verkjalaust) hjartadrep og þöglar ST-T breytingar í hjartariti vera tölfræðilega marktækir sjálfstæðir áhættuþættir skyndilegs hjarta- dauða. Meðal kvenna voru miklu færri tilfelli og tölfræðilegur styrk- ur því minni. Tölfræðilega marktækir sjálfstæðir áhættuþættir reyndust þó vera: kólesteról, þríglýseríðar, slagbilsþrýstingur, reyk- ingar meiri en 25 sígareltur á dag, þyngd og angina pectoris. 38 Læknabladið / FYLGIRIT 40 2 0 00/86

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.