Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 92

Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 92
92 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 HORFT TIL FRAMTÍÐAR F jölskyldurnar í landinu finna áreið-anlega flestar fyrir áhrifum krepp-unnar, ekki síst það fólk sem er með lán, íbúðalán, bílalán eða önnur lán, sem nú eru í algjöru uppnámi. Á það jafnt við um verðtryggðu lánin, þar sem afborg- anir hafa tekið stökk vegna verðtrygging- arinnar, og lán í erlendri mynt sem hafa meira en tvöfaldast vegna gengis krón- unnar. FV leitaði til bankanna þriggja, Glitnis, Landsbanka og Kaupþings, auk SPRON og Íbúðalánasjóðs og spurði hvort menn merktu aukna greiðsluerfiðleika viðskipta- vina. Aðeins hjá Íbúðalánasjóði var hægt að fá tölfræðilegar upplýsingar sem sýndu að ástandið hefur versnað svo um munar. Allt árið 2007 bárust sjóðnum „aðeins“ 377 umsóknir vegna greiðsluerfiðleika, en í janúar í ár höfðu þegar borist yfir 300 umsóknir. Allt síðasta ár voru umsókn- irnar 1405 en greinileg umskipti urðu í september þegar umsóknum fjölgaði um rúman helming frá mánuðinum á undan, úr 51 í 107 umsóknir. Svör bankanna um fjölda viðskiptavina í erfiðleikum voru keimlík. Hjá einum bank- anum kom fram að vaxandi ásókn væri frá fólki sem alltaf hefði staðið í skilum en fyrst hefði auðvitað fjölgað í þeim hópi sem alltaf virðist eiga í greiðsluerfiðleikum. Góðærið hefði þar litlu breytt en auðvitað versn- aði ástandið til muna þegar fór að kreppa að. „Enn sem komið er hefur ekki komið nein holskefla af slíkum málum, en þau fara vissulega vaxandi,“ var eitt svarið sem við fengum. Annað var: „Töluvert er leitað til bankans til að greiða úr erfiðleikum fólks – við getum reyndar ekki nefnt neinar tölur í því sambandi, heldur byggjum við þetta meira á tilfinningu.“ Sá þriðji sagi: „Við- skiptavinir leita mikið til okkar með beiðni um aðstoð og úrlausnir sinna mála. Bæði er um að ræða fólk sem þegar er komið í vandræði með skuldbindingar sínar og fólk sem sér fram á að lenda í vandræðum að óbreyttu.“ Aðstoð í erfiðleikum Úrlausnir lánastofnananna fara eftir því um hvers konar lán er að ræða og greiðslu- getu fólks. Talað er um klæðskerasaum- aðar lausnir sem mótast af greiðslugetu og greiðslubyrði. Hefðbundin úrræði, eitt- hvað mismunandi eftir lánastofnunum, eru þó lenging lána, skuldbreytingar lána, t.d. að sameina óhagstæð skammtímalán í eitt lán, tímabundin frysting afborg- ana og greiðslujöfnun verðtryggðra lána. Þegar um erlend lán er að ræða er algeng- ast að bjóða frystingu vaxta og höfuðstóls í fjóra mánuði. Einnig er boðið upp á að fresta afborgunum í allt frá sex mánuðum LáN Í UppNáMi lausnir í sjónmáli texti: fríða björnsdóttir í dag nota flestir viðskiptafræðinemar við háskóla íslands fartölvur á fyrirlestrum. Þá má geta þess að allir nemendur í mBa- námi háskólans eru með fartölvur í tímum. „Það fer auðvitað eftir námskeiðum að hve miklu gagni fartölvur koma,“ segir ingjaldur hannibalsson, deildarforseti viðskiptafræðideildar. „Ég vil til dæmis stundum að nemendur mínir loki tölvunum og taki þátt í umræðum.“ Búið er að aðlaga háskóla íslands að tækninni og er til að mynda hægt að stinga tölvum í samband við öll sæti í nýrri stofum. Þá er þar þráðlaust net. ingjaldur segir að þegar út á vinnumark- aðinn sé komið noti viðskiptafræðingar mikið tölvur. „excel er til að mynda vinnu- tæki viðskiptafræðinga og því er eðlilegt að notkun fartÖlVa á fyrirlestrum Íslenskir nemendur háðari tölvum í tímum Ingjaldur Hannibalsson. „Það er af hinu góða að nemendur noti tölvur í tímum en þó má ekki ofnota þær.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.