Frjáls verslun - 01.01.2009, Qupperneq 97
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 97
Viðskiptaumhverfi er víða breytt eftir fall
bankanna. halldóra Guðrún hinriksdóttir
er forstöðumaður stjórnmenntar sem er
sú eining opna háskólans sem þjónar fyr-
irtækjamarkaðnum með sérsniðnar lausnir
fyrir sérfræðinga og stjórnendur. hún segir
að endurskoðun á stefnumótandi ákvörð-
unum og endurreisn trausts viðskiptavina
og starfsmanna á fyrirtækinu séu stærstu
áskoranir stjórnenda í dag. „Þegar fyrirtæki
eru stödd í aðstæðum sem fáir stjórnendur
hafa reynslu af er mikilvægt að þeir skoði
með gagnrýnum augum þær ályktanir sem
liggja til grundvallar stefnumótandi ákvörð-
unum sem teknar hafa verið nýlega og varða
til dæmis mat á rekstrarárangri, skipulagi
fyrirtækisins, markaðsstöðu, vöruframboð
og hvernig fyrirtækið getur nýtt sér breyttar
aðstæður á markaði til samkeppnisforskots.
mikilvægt er að þessar ályktanir séu skoð-
aðar út frá skilningi á langtímaþróun mark-
aðarins en ekki skammtímasjónarmiðum.“
halldóra Guðrún bendir á að traust hefur
gufað upp í íslensku samfélagi síðastliðna
mánuði. „traust sem starfsmenn báru til
fyrirtækja varðandi starfs- og launaöryggi
er minna, svo ekki sé meira sagt. sama
má segja um traust viðskiptavina um gæði,
afhendingu og varanleika vöru og þjónustu
en þar hafa sumir geirar atvinnulífsins orðið
verr úti en aðrir. Þetta vantraust á líklega
eftir að skila sér til fyrirtækjanna í formi
hærri viðskiptakostnaðar og því er nauð-
synlegt fyrir stjórnendur að hefja endurreisn
trausts meðal hagsmunaðaila. stephen
Covey hefur rannsakað áhrif og leiðir til
uppbyggingar trausts og hann leggur til að
stjórnendur hefji endureisnina á sjálfum sér,
að þeir einbeiti sér að því að koma fram af
heilindum, taki ábyrgð, séu jákvæð fyrir-
mynd og setji svo fókusinn á sambönd sín
við samstarfsaðila og viðskiptavini með
því meðal annars að deila ábyrgð og valdi,
standa við loforð og leysi öll vandamál á
skapandi hátt. Það er ekki fyrr en þetta er
komið í lag sem hægt er að skoða fyrir-
tækið í heild sinni og þar á eftir markaðinn
og samfélagið.“
til þess að stjórnendur og starfsmenn
geti tekist á við þessar nýju áskoranir
af fagmennsku verða fyrirtækin að sögn
halldóru Guðrúnar að standa við bakið
á þeim og veita allan þann stuðning og
þjálfun sem þörf er á. „Þessi verkefni
leysir enginn einn.“
Þessi
verkefni
leysir
enginn einn
Halldóra Guðrún Hinriksdóttir, forstöðumaður StjórnMenntar í Opna háskólanum.
,,Traust sem starfsmenn báru til fyrirtækja varðandi starfs- og launaöryggi er minna,
svo ekki sé meira sagt.“
áskoranir
stJórnenda
í Breyttu
ViðskiPtaumhVerfi