Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2009, Side 104

Frjáls verslun - 01.01.2009, Side 104
104 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 nú þegar íslenskt viðskiptalíf gengur í gegnum miklar umbreytingar og uppstokkun er mikilvægt að horfa til framtíðar. Slíkar víðtækar breytingar skapa oft mikil tækifæri og því er nauðsynlegt að staldra aðeins við og endurmeta og kortleggja stöðuna. Það má hins vegar ekki staldra of lengi við heldur verða menn að vera fljótir að átta sig á því hvaða tækifæri eru til staðar þannig að hægt sé að einbeita sér að því að nýta þau, fyrirtækjunum til framdráttar. Að því loknu þarf að fylgja markvisst eftir innleiðingu þeirra breytinga (stefnu) svo að árangur náist. Reynslan hefur sýnt að í um 90% tilfella ná fyrirtæki ekki þeim árangri sem þau ætla sér þegar lagt er af stað í miklar breytingar og/ eða að innleiða nýja stefnu. Það eru margar ástæður fyrir því en þær sem oftast eru nefndar eru: Stuðning skortir frá yfirstjórn til að fylgja eftir stefnu. • Eftirfylgni vantar.• Takmarkaðar auðlindir.• Breytingar í yfirstjórn.• Skýra sýn og tilgang vantar til að koma á framfæri við alla • starfsmenn fyrirtækisins. Alltaf er verið að breyta árangursmælikvörðum.• Breytt forgangsröðun. • Þessu til viðbótar virðist sá misskilningur oft vera til staðar að þegar breytingin (stefnan) liggur fyrir og hefur verið kynnt, að verk- inu sé lokið. Segja má að þá sé aðeins þriðjungi verkefnisins lokið og því meirihlutinn eftir og jafnframt sá erfiðasti. Staðreyndin er sú að það er alveg sama hversu vel úthugsuð og nauðsynleg breyt- ingin er; að ef ekki er staðið rétt að innleiðingu hennar og þeim aðgerðum sem þurfa að fylgja næst aldrei sá árangur sem menn gerðu sér væntingar um í upphafi. hvernig á að koma á breytingum? Það er margt sem þarf að huga að til að koma á breytingum. Ágætis samlíking í því samhengi er völundarhús þar sem er ákveðið upphaf og ákveðinn endir en þar á milli eru margar leiðir, sumar enda á veggjum og hinar eru mislangar og erfiðar yfirferðar. Við slíkar aðstæður er gott að vera með kompás í hendinni. Með kompásinn að leiðarljósi áttum við okkur betur á því hvert við erum að fara og hvaða leið við eigum að velja til að komast á leiðarenda. Árið 2005 gaf Robin Speculand hjá Bridges Consultancy út bókina Bricks to Bridges þar sem hann kynnir hugmynda- og aðferðafræði sína við innleiðingu stefnu (breytinga). Umgjörðin sem hann notar í bók sinni er svokallaður stefnuframkvæmdar-kompás (e. The Implementation Compass™) og í kringum hann hefur hann þróað ákveðin tæki og tól sem auðvelda fyrirtækjum að innleiða stefnu (breytingar) á árangursríkan hátt. Robin kom hingað til landsins vorið 2007 og hélt m.a. fyrirlestur fyrir MBA-nemendur HÍ um mikilvægi markvissrar stefnuframkvæmdar og vakti fyrirlesturinn mikla athygli. Stefnuframkvæmdar-kompásinn samanstendur af 8 þáttum, sem eru: Mannauðurinn, „Biz Case-ið“, miðlun upplýsinga, mælingar, menning, ferlar, eftirfylgni og rýni. Kompásinn gerir þér kleift að: Skilja fyllilega hvað felst í því að innleiða viðkomandi stefnu.• Meta styrkleika og veikleika fyrirtækisins. • Rata í gegnum völundarhúsið (innleiðinguna).• Innleiða „bestu aðferðir“.• Fylgja eftir innleiðingunni til lengri tíma litið. • Oft getur þetta ferli verið langt og strangt en í upphafi skyldi endinn skoða og því er mikilvægt að meta fyrst hversu vel fyrirtækið er í stakk búið til að takast á við breytingarnar. Ein leið til að gera taktu uPP koMPÁsinn Kreppan kallar á nýja framtíðarsýn flestra fyrirtækja. Reynslan hefur hins vegar sýnt að í um 90% tilfella nái fyrirtæki ekki þeim árangri sem þau ætla sér þegar lagt er af stað. Hvers vegna? Það gleymist oft að hafa kompásinn að leiðarljósi. s t j ó r n u n TExTi: guðrún ragnarsdóttir • MyND: geir ólafsson
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.