Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1940, Page 18

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1940, Page 18
200 TÍMARIT MÁLS OG MEXXIXGAR Það er margþætt saga og furðuleg, ef rakin væru af- skipti stjórnarvalda og pólitískra forkólfa af menning- armálum fslendinga síðustu árin. Það er saga full af launráðum, baktj aldamakki og ótæmandi skopi. Það er fyrst og fremst saga eltingarleiksins við það að koma öllu menningarkerfi þjóðarinnar undir yfirráð fárra valdsmanna, og halda þeim yfirráðum síðan dauðahaldi. Fyrsta stigið er að nota veitingavaldið til þess að koma að heppilegum mönnum í allar helztu trúnað- arstöður. Og þar er ekki valið af verri endanum. .Jón- as frá Hriflu tók það fyrstur u^ip sem fasta reglu að veita stöður eftir pólitískum skoðunum. Aðrir flokkar tóku síðan þessa aðferð eftir Jónasi og létu pólitísk sjónarmið ganga fyrir öllum hæfileikum. Hófst kapp- ldaup mikið um pólitískar embættaveitingar í allar æðslu stöður. Síðan tókn við hrossakaupin milli flokk- anna: Þú getur fengið þennan legáta í þetta embætt- ið, ef ég fæ að ráða öðrum jafngóðum úr mínum flokki í hitt starfið. Frá því að þjóðstjórnin var mynduð, má heita undantekning, að opinberum starfsmanni sé veitt staða með liliðsjón af bæfileikum eða lærdómi. Það eru allt pólitísk hrossakaup. Og það hefur gerzt ann- að síðustu árin. Hinir pólitísku forkólfar eru orðnir ein- staklega nákvæmir í mannavali. Nú velja þeir sér menn sérstakrar tegundar. Nú eru t. d. gáfaðir og framsækn- ir bændasynir orðnir þyrnir í augum Jónasar frá Hriflu. Nú velur liann sér til fylgdar sem heimskasta unglinga eða skapgerðarlausasta, sem liann gelur treyst til að vera þæg verkfæri. Og þetta er reyndar orðinn hinn algildi mælikvarði. Það þykir orðið nauðsynlegastur kostur á manni, að hann hafi ekki hæfileika til stöðu sinnar, því meira vald er hægt að liafa yfir honum, því minni hætta er á því, að liann leggi alúð við starf sitt. Sérstaklega er þetta nauðsynlegt, þegar um menn- ingarstarf er að ræða. Þó þykir ekki tjón hljótast af, þó að maðurinn hafi einhvern tíma verið gæddur nokkr-

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.