Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1940, Page 54

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1940, Page 54
23G TÍMARIT MÁLS OG MEXNINGAR hvernig liindraður verði slíkur ósómi. Við hinirsvonefndu kommúnistar höfum allra flokka mest gert að því að kynna stefnu okkar meðal fólksins með ýmiss konar rit- um, smáum og stórum. Út frá þeim ætli að vera í lófa lag- ið að benda á hættuna, sem i þessum kenningum gæti leg- ið, eins og þær eru túlkaðar hér uppi á Islandi í sambandi við íslenzk viðhorf. Ef þessi kostur væri upptekinn, þá væri það leið til að Iijálpa fólkinu til að glöggva sig á því, hvaða afstöðu það ætti að taka gagnvart fyrirlmguðum ofsóknum á hendur þeim, sem flokk þennan fvlla. Þetta er hin lýðræðislega leið til meðferðar á ágreiningsefnum, og hver lýðræðissinni verður að treysta þvi, að i gegnum heið- arlegar rökfærslur frá báðum hliðum verði fjöldinn fær um að taka afstöðu til þess, sem á milli ber. Sé stefna okk- ar mjög hættuleg að dómi Yilmundar og annarra g'óðra manna og vilji hann fá dóm fólksins yfir hana á lýðræðis- legan liátt, þá her honum að ldutast til um, að hættur þær, sem frá okkur gætu stafað, væru herlega fram dregnar með skýrum og haldgóðum rökum, og stuðla að því jafn- framt, minnugur þess, að öllum getur okkur yfirsést, að málstaður hinna ókærðu geti einnig komizt til þjóðar- innar. Ég vildi því mælast til þess, að Vilmundur sýndi lýðræðisást sina í því að byrja nú á byrjuninni i afstöðu sinni til okkar kommúnistanna, sýndi íslenzku þjóðinni það með skýrum rökum, að þessi flokkur er óalandi og ó- ferjandi, en geymdi sér það að kalla okkur óaldarflokk, þar til hann hefði sannað það, svo að ekki yrði með nein- um rökum á móti mælt. Ég skyldi taka að mér að færa fram varnir fvrir flokkinn og skoðanir hans. Ég er ekki í neinum vafa um það, að málsmeðferð okkar myndi verða íslenzkum lesendum til mikillar ánægju og þó enn frekar til ómetanlegs gagns. —• En sá, sem ekki vill ræða þýðing- armikið mál á þennan hátt, hann ætli að endurskoða af- . stöðu sína til lýðræðisins og athuga, hvort traust hans á lýðræðinu muni vera eins mikið og hann áður liugði. —

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.