Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Blaðsíða 4
98
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
ógert að gefa út þær bækur sem komið hafa út á nafni Heimskringlu á síðast-
liðnu hausti.
Frá útgáfu félagsbóka ársins 1948 verður nánar skýrt í næsta hefti Tímarits-
ins, því að þá ætti að verða hægt að gera sér þess ljósari grein hvemig ástatt
er um pappír og útkomutíma bókanna. Þess skal aðeins getið að fyrsta bók árs-
ins verður síðara bindið af Lífsþorsta eftir Irving Stone, sem margir félagsmenn
liafa beðið eftir með óþreyju.
Á nafni Heimskringlu koma út á næstunni tvær ljóðabækur sem liklegar eru
til að vekja mikla atliygli allra þeirra er kveðskap unna. Onnur þeirra er ný og
aukin útgáfa af ljóðum Jóns prófessors Helgasonar, Ur landsuðri. Þarflaust er
að fara mörgum orðum um ágæti-þessarar bókar sem seldist upp á svipstundu
þegar bún kom út fyrir tæpum níu árum, og eignuðust hana færri en vildu. Er
því full ástæða til að hún komi út í annað sinn, og ekki mun það þykja til spillis
að um þriðjungi kvæðanna í þessari nýju útgáfu er aukið við frá hinni fyrri. —
Hin kvæðabókin er safn ljóðaþýðinga úr ýmsum málum, einkum eftir nútíma-
höfunda, og heitir Annarlegar tungur. Þýðingar þessar eru um margt hinar
nýstárlegustu, flestir höfundarnir eru íslenzkum lesendum áður ókunnir, efni
og form víða nýjungar í íslenzkri ljóðagerð. Þýðandinn er lesendum Tímarits-
ins kunnur að vissu leyti, því að eftir hann hafa birzt þar nokkur ljóð, — meðal
annars í þessu hefti, — undir dulnefninu Anonymus. Þýðingarnar koma út undir
þessu sama dulnefni, og er ekki að efa að ýmsum getum verður að því leitt hver
skáldið sé, en þeir fáu sem vita sannindi þess máls hafa svarið dýra eiða að láta
það ekki uppi. ]. B.