Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Blaðsíða 115
HIROSHIMA
209
armennirnir öðrum megin sáu ekki niður fyrir fætur sér í myrkr-
inu og duttu niður í djúpan skurð. Faðir LaSalle kastaðist til jarð-
ar og börurnar brotnuðu í tvennt. Einn prestanna fór á undan að
ná í handvagn í klaustrinu, en fann bráðlega vagn hjá auðu búsi
og ók honum til baka. Prestarnir lyftu föður LaSalle upp á vagn-
inn og ýttu honum eftir ósléttum veginum það sem eftir var. For-
stöðumaður klaustursins hafði verið læknir áður en hann gekk
í jesúítaregluna; hann hreinsaði sár prestanna tveggja og lét þá
leggjast í rúmið í hrein sængurklæði, og þeir þökkuðu guði fyrir
þá umönnun sem þeir höfðu hlotið.
Þúsundir manna höfðu engan sér til hjálpar. Ungfrú Sasaki var
ein þeirra. Yfirgefin og bjargarlaus sat hún undir ómerkilega af-
drepinu í garði niðursuðuverksmiðjunnar við hliðina á konunni
sem misst hafði annað brjóstið og manninum sem var nánast and-
litslaus af brunasárum, og hún þjáðist mikið þá nótt af sársauka
í brotna fætinum. Hún gat alls ekki sofnað; né heldur talaði hún
við svefnlausa þj áningarfélaga sína.
í garðinum hélt frú Murata vöku fyrir föður Kleinsorge alla nótt-
ina með því að tala við hann. Nakamura-fjölskyldan gat heldur
ekki sofið; enda þótt börnunum væri mjög flökurt höfðu þau áhuga
á öllu sem gerðist. Þau urðu himinlifandi þegar einn af gasgeym-
um borgarinnar sprakk með geysilegum eldblossa. Toshio, dreng-
urinn, hrópaði til hinna að horfa á spegilmyndina í ánni. Herra
Tanimoto svaf óvært eftir hin miklu hlaup sín og langa björgunar-
starf. Þegar hann vaknaði í birtingu, leit hann yfir ána og sá að
hann hafði ekki borið þrútnu, máttlausu manneskjurnar nógu hátt
upp á sandeyrina kvöldið áður. Aðfallið hafði flætt yfir staðinn
þar sem hann hafði lagt þær; þær höfðu ekki haft þrek til að flytja
sig; þær hlutu að vera drukknaðar. Hann sá mörg lík á reki í
ánni.
Snemma þennan dag, 7. ágúst, flutti japanska útvarpið í fyrsta
sinn stuttaralega tilkynningu sem fáir, ef nokkur, af íbúum Hiro-
shima heyrðu, þótt þá varðaði innihaldið mestu: „í Hiroshima
hafa orðið verulegar skemmdir eftir árás fárra B-29 véla. Talið er
14