Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Side 74

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Side 74
168 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR setzt á skrifstofu sinni og var í þann veginn að líta við til þess að tala við stúlkuna sem sat við næsta borð. A sömu stundu var dr. Masakazu Fujii að hreiðra um sig með krosslagða fætur til þess að lesa Osaka-blaðið, Asahi, í anddyrinu á einkaspítala sínum, sem stóð á bakka einnar hinna sjö árkvísla er skipta Hiroshima; frú Hatsuyo Nakamura, klæðskeraekkja, stóð við eldhúsgluggann sinn og horfði á nágranna sinn vera að rifa niður hús sitt vegna þess að það var í vegi brunavarnarbeltis sem gera átti; faðir Wilhelm Klein- sorge, þýzkur jesúítaprestur, hafði lagzt út af í nærklæðunum á rúrnið sitt á efstu hæðinni í þriggja hæða trúboðshúsi reglu sinnar og var að lesa jesúítatímarit, Stimmen der Zeit; dr. Terufumi Sasaki, ungur sáralæknir við hið stóra, nýtizka Rauðakross-sjúkrahús borg- arinnar, var á gangi eftir einum spítalaganginum með blóðsýnis- horn í hendinni og ætlaði að gera á því Wassermann-próf; og séra Kiyoshi Tanimoto. prestur við Meþódistakirkjuna í Hiroshima, stóð fyrir utan dyrnar á húsi auðmanns í Koi, vesturhverfi borgarinnar, og ætlaði að fara að bera af handvagni, fullum af munum sem hann hafði flutt úr borginni af ótta við stórárás B-29 vélanna, sem allir bjuggust við að Hiroshima yrði fyrir. Kjarnorkusprengjan drap hundrað þúsund manna, og þessi sex voru meðal þeirra sem eftir lifðu. Þau eru enn að velta því fyrir sér hvers vegna þau fengu að lifa, þegar svona margir dóu. Sérhvert þeirra nefnir mörg smádæmi um tilviljanir eða ákvarðanir — eitt skref á réttum tíma, ákvörðun um að fara inn, að taka þennan strætisvagn í stað hins — sem hlífðu lífi þeirra. Nú vita þau öll, að meðan þau voru að komast af, lifðu þau mörg líf og sáu meiri dauða en þau höfðu nokkurn tíma gert sér í hugarlund. En meðan á því stóð vissi ekkert þeirra neitt. Séra Tanimoto fór á fætur klukkan fimm þennan morgun. Hann var einn á prestssetrinu, vegna þess að konan hans hafði undanfarið gist með ársgamalt barn þeirra hjá vinafólki í Ushida, úthverfi í norðurhluta borgarinnar. Meðal helztu borga Japans voru aðeins tvær, Kyoto og Hiroshima, sem ekki höfðu orðið fyrir verulegum loftárásum af B-san, eða herra B, en svo nefndu Japanarnir B-29 vélarnar með blendingi af virðingu og kvíðafullum kumpánaskap; og herra Tanimoto var næstum því sjúkur af ótta eins og nágrannar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.