Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Blaðsíða 119
HIROSHIMA
213
Asano-garðinn, ákvað móðir þeirra að snúa við og ná í mat og
aukaföt; þau misstu af henni í flóttafólksstraumnum og höfðu ekki
séð hana síðan. Stundum námu þau snögglega staðar í glöðum leik
sínum og fóru að kalla á móður sína.
Það var erfitt fyrir öll börnin í garðinum að halda huganum
við harmleikinn mikla sem gerzt hafði. Toshio Nakamura komst
allur í uppnám þegar hann hann sá vin sinn Seichi Sato á leið upp
eftir ánni í báti ásamt fjölskyldu sinni, og hann hljóp út á bakkann,
veifaði og hrópaði: „Sato! Sato!“
Drengurinn leit við og hrópaði: „Hver er það?“
„Nakamura.“
„Halló, Toshio!“
„Eruð þið öll ómeidd?“
„Já. En þið?“
„Já, það er allt í lagi með okkur. Systur mínar eru alltaf að
kasta upp, en mér líður prýðilega.“
Faðir Kleinsorge var orðinn þyrstur í hinum ógurlega hita, en
hann hafði ekki þrek til að fara eftir vatni aftur. Skömmu fyrir
hádegi sá liann japanska konu vera að úthluta einhverju. Hún kom
brátt til hans og sagði vingjarnlegri röddu: „Hérna eru teblöð.
Tyggið þér þau, ungi maður, þá verðið þér afþyrstur.“ Blíða þess-
arar ókunnu konu kom föður Kleinsorge næstum því til að tárast.
Vikum saman hafði hann verið þjakaður af útlendingahatri því
sem Japanarnir virtust láta æ meir í ljós, og honum hafði meira
að segja liðið illa meðal japanskra vina sinna. Framkoma þessarar
ókunnu konu kom honum næstum til að missa vald á sér.
Um hádegi komu prestarnir frá klaustrinu með handvagninn.
Þeir höfðu komið við þar sem trúboðshúsið hafði staðið í mið-
borginni og fundið nokkrar töskur sem geymdar höfðu verið í
loftvarnarbyrginu og höfðu einnig tínt upp leifar bráðnaðra kirkju-
gripa í rústum kapellunnar. Nú hlóðu þeir pappatösku föður Klein-
sorges og munum frú Murata og Nakamura-fjölskyldunnar á vagn-
inn, settu Nakamura-telpurnar tvær ofan á og ætluðu af stað. Þá
var það að einn hagsýnn jesúíti minntist þess að þeim hafði verið
tilkynnt nokkru áður að ef þeir yrðu fyrir eignatjóni af völdum
óvinanna, ættu þeir að leggja fram hótakröfu á lögreglustöðinni.