Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Síða 12

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Síða 12
2 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Við höfum síðan ráðfært okkur um árgjaldshækkun við alla umboðsmenn Máls og menningar og hafa þeir flestir gefið okkur greið og skýr svör og lýst einarðlega skoðun sinni, svo að við höfum ekki öðru sinni sannfærzt betur um ágæti og ein- lægni þessara starfsmanna félagsins. Svör þeirra eru, eins og vænta má, ekki öll á sama veg, og mótast framar öllu af atvinnuskilyrðum fólksins á hverjum stað. Nokkrir umboðsmenn, einkum á Suðurlandi og í sveitum, eru fylgjandi tillögunni um hækkun árgjaldsins upp í 100 kr. og láta í ljós fögnuð yfir því að stigið sé svo djarft spor til að auka útgáfuna og telja að félagsmenn muni taka þeirri stefnu vel. Allir eru sammála um að Mál og menning megi ekki draga saman segl- in og sjá þá jafnframt að mikil árgjaldshækkun er óhjákvæmileg. En meirihluti umboðsmanna af Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum hræðist svo atvinnu- ástandið, að þeir telja ekki fært að auka nema sem minnst útgjöld félagsmanna, og hafa margir sem stærst hafa umboðin gert þá tillögu að farin verði millileið og árgjaldið hækkað upp í 75 kr. Eftir vandlega íhugun teljum við, að minni árgjaldshækkun komi ekki að gagni til að halda uppi sömu útgáfu og verið hefur og vafasamt að til hrökkvi, en hins vegar komi ekki annað til greina en fylgja ráðleggingum meirihluta umboðs- manna og gerðum því að tillögu við félagsráð Máls og menningar, að árgjaldið 1951 yrði 75 kr. og samþykkti félagsráð hana einróma á fundi 21. febrúar. Við treystum því að félagsmenn allir skilji nauðsyn þessarar ráðstöfunar og að enginn þeirra láti árgjaldshækkunina verða til þess að hann slíti tryggð við Mál og menningu. Félagið breytir ekki grundvelli sínum, þó að árgjaldið verði að hækka. Eftir sem áður er Mál og menning sparnaðarsamtök fátækrar menningar- þyrstrar alþýðu. Stjórn Máls og menningar. Einhugur íslendinga í handritamálinu Því er að fagna að frá því síðasta hefti kom út hefur komið nýr skriður á hand- ritamálið hér heima, og hafa á alþingi verið samþykktar um það tvær tillögur, önn- ur frá Pétri Ottesen þar sem hann endurtekur kröfu Islands til handritanna, hin frá Gunnari Thoroddsen um að reisa hús yfir handritin hér heima svo að þeim sé tryggður öruggur staður. í grein í síðasta tímariti var bent á yfirlýsingu ríkis- stjórnar íslands frá 1946 um að hún væri reiðubúin að sjá handritunum fyrir góð- um geymslustað og öruggri vörzlu þegar heim kæmu, og um leið var hér tekið fram, hver stuðningur það væri íslendingum í þessu máli, ef ríkisstjómin nú vildi endurnýja þá yfirlýsingu. Þetta hefur nú verið gert. Þegar tillaga Gunnars Thor- oddsen var til fyrri umræðu á Alþingi fórust menntamálaráðherra Bimi Ólafssyni m. a. orð á þessa leið: „Þingsályktunartillaga þessi er að mestu samhljóða samþykkt sem íslenzka rík- isstjómin gerði á fundi 31. júlí 1946, samkvæmt tillögum sex íslenzkra fræði- manna í bréfi til menntamálaráðherra, dags. 27. apríl 1946. Munurinn er aðallega FRAMH. Á 89. BLS.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.