Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Blaðsíða 106

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Blaðsíða 106
96 hrynjandi ljóða hans, hann ræður ekki neinni streymandi mælsku og músikkin leikur ekki undir og yfir Ijóðlínum hans. Við nánari kynni hef ég þó fyrirgefið Steini þetta að mestu og er fús til að viðurkenna hann sem lyrikker, og það er einmitt hinn lyriski skáldskapur hans, sem mest ber á í bókinni 100 kvæði. Hvað segja menn t. d. um Atlantis? Verk það, sem Snorri Hjartarson hef- ur leyst af hendi í vali kvæðanna í bók þessa, virðist mér vera unnið af trú- mennsku, en hefði þó kosið, eins og áður er drepið á, að bókin gæfi gleggri mynd af fyrstu ljóðabók skáldsins. Ýmis kvæði eru þó ekki í bókinni, sem gaman hefði verið að fá með, t. d. Hin hljóðu tár, Eftirmæli, Akvarell (sem skilyrðislaust átti að koma með), Biðin, Sultur, Uni- versitas Islandiae og Börn að leik, en ekki verður á allt kosið, ef kvæðin hafa endilega átt að vera 100, — og vissulega er það fögur og rúnn tala. Ýrnsir gerðu sér vonir um, að spámað- ur væri upp risinn, er Steinn Steinarr kom fram á sjónarsviðið, — spámaður alþýðunnar, er skildi breyskleika hennar og syndir, takmarkanir og auðnuglöp og syngi henni það ljóð, er hún hafði beð- ið eftir. — Og vissulega er Steinn Stein- arr sem skáld alinn af alþýðu þessa lands. En hann hefur ekki þolað kjör hennar sem skyldi. Hann hefur gengið undir eldraun hungurs og harðréttis, en hann, „ .. sem horfði úr húmi langrar nætur á heimsins blökku dýrð og reis á fætur með jódyn allra jarða mér í blóði“ hann hefur hingað til reynzt of „lágur til hnésins" til þess að verða sá spámaður, sem koma skal. Hann hefur unnið sér skáldheiti, og hann verður alltaf talinn TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR góður gestur tuttugustu aldarinnar. En hann hefur ekki sett sér upp ræðustól til að þruma frá yfir alþjóð. Hann ber ekki í pontuna og þaðan af síður hoppar hann í henni. Hann á ekki til neina þrumu- raust, er veki af svefni sofandi sauði þessa lýðs, í list hans er enginn stormur, er æsi höf, eldingar rjúfa ekki himnana og björgin klofna ekki og fjöllin hrynja ekki. En samt eru þessi ljóð ort fyrir al- þýðu þessa lands, og henni er þó fremur viðreisnarvon, ef hún les þau og skilur. Ó. H. Steinn Steinarr: Tíminn og vatniS. Útgefandi: Helgafell, Rvík. Enda þótt maður sé ekki sammála eink- unnarorðum þessarar bókar: A poem should not mean But be og þekki ekki verk höfundar þeirra — og hafi raunar fulla löngun til að snúa þeim við: A poem that does not mean can not be — þá getur maður engu aÖ síður les- ið bókina og a. m. k. reynt að njóta þess, sem hún hefur að bjóða. I bók þessari eru 13 stutt kvæði, nafn- laus og án allrar yfirskriftar utan núm- ers. Sá frágangur gæti freistað manns til að halda, að nafn bókarinnar: Tíminn og vatnið, eigi við öll kvæðin og sé eins- konar Ijóskastari, er lýsi upp dul þeirra og myrka framsetningu. En af fyrirsögn- um nokkurra kvæða, þar sem þau hafa áður birzt á prenti, er augljóst, að svo er ekki, t. d. birtist kvæði nr. 1 í Tíma- riti Máls og menningar, 2. hefti 1946, og bar þar yfirskriftina: Tíminn og vatnið. I sama tímaritshefti var kvæði nr. 10 og hét þar: Tunglskin um haust. Nr. 8 birt-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.