Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Blaðsíða 34
24
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
átökin yrðu í Vestur-Evrópu og myndu stefna vestur á bóginn, og ísland
yrði í sjálfri eldlínunni. Herfræðingum auðvaldslandanna ber yfirleitt
saman um, að herir alþýðuríkjanna í Evrópu muni taka allan vestur-
hluta álfunnar vestur að Ermarsundi og Pýrenafjöllum á skömmum
tíma, eftir að styrjöld brytist út.
Hvað boðar það?
Það boðar þá atburði, að þau lönd Vestur-Evrópu, sem um yrði
barizt eftir það, myndu verða England, Spánn og ísland. Þaðan yrði
haldið uppi árásum á meginlandið, og þeim yrði auðvitað svarað í
sömu mynt. Þessi lönd gætu því ekki komizt hjá ægilegum eyðilegging-
um og aðflutningar á sjó, einkum til Englands og Islands, myndu
verða miklum erfiðleikum bundnir. Við sjáum þegar fram á þann voða,
að hér á landi yrðu herstöðvar til atlögu austur yfir hafið og sennilega
seta mikilla herja. Þessi herbúnaður myndi liggja undir öflugum loft-
árásum og tortímingum frá meginlandinu, land vort myndi að miklu
leyti einangrast og innflutningur á lífsnauðsynjum til landsmanna tepp-
ast í stórum stíl.
Það eru þess vegna engar líkur til, að hér á landi yrðu uppgangs- og
auðsöfnunar-tímar í næsta stríði. Þvert á móti. 011 raunsœ skoðun á
vopnaviðskiptum milli austurs og vesturs bendir markvíst í þá átt, að
hér yrði örbirgð, hungur, eyðilegging og dauði. Ég held meira að segja,
að sú von muni snúast upp í raunaleg vonbrigði, að „þá fáum við
þvottavélar, strauvélar, hrærivélar og ísskápa“, eins og sumar bjartsýn-
ar frúr bæjarins orða stríðsóskir sínar.
En hin vonin hangir ennþá uppi, að sósíalisminn verði þurrkaður
burtu í næstu heimsstyrjöld. Ég fæ ekki skilið, að nokkur maður, sem
hefur skoðað það mál frá hlutlausu sjónarmiði, hafi getað fundið nein
skynsamleg rök til þess, að sá verði endir þeirra átaka. Ég þekki engar
staðreyndir, sem veiti mér ástæðu til að draga í efa þá fullyrðingu her-
fræðinganna, að herir alþýðuríkjanna hernemi allt meginland Vestur-
Evrópu, allt vestur að Ermarsundi og Pýrenafjöllum. Hitt skiptir litlu
máli í þessu sambandi, hvort það hernám tæki nokkra daga, nokkrar
vikur eða nokkra mánuði. Það er eftir sem áður hafið yfir allan efa, að
stríðsöflum vesturblakkarinnar heppíiast aldrei að ná Vestur-Evrópu
aftur úr höndum þeirra. Þar yrði miklu sterkari kröftum að mæta en í
innrásinni 1944.