Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Blaðsíða 73

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Blaðsíða 73
BÓFADROTTNINGIN 63 hans, upp við vegg þar sem faðir minn gat ekki heyrt til þeirra. Þegar matsveinninn sá hvað í aðsigi var lagði hann til atlögu: Hvaða rétt hafði þessi kjaftfora stelpa til að vera í garðinum og skemma blómin? Hann efaðist ekki um að húsbóndi lians mundi fara í mál, og fengi hann ekki dæmdar þær bætur sem hann krefðist mundi hann senda tutt- ugu amerísk herskip upp Vangpúfljótið og láta þau skjóta alla Mór- berjagötu niður til helvítis. Stuðningsmönnum bófadrottningarinnar féll allur ketill í eld, þeir gátu aðeins bent á það að stúlkan hefði verið meidd. Víst var hún meidd og það með réttu, fussaði matsveinninn, hún hafði áreiðanlega svívirt drenginn í orðum. Það gat hugsazt, viðurkenndu nágrannarnir, en stúlkan hafði sagt að hinn litli hvíti djöfull væri sjálfur meistaralegur skammakjaftur. Matsveinninn glotti. Því ekki það? Það væri gott að þau fengju að vita það strax að hinn göfugi sonur í þessu húsi væri einkasonur einka- sonar bróðursonar forseta Bandaríkjanna og frændi Englandskonungs, og þó hann væri ef til vill ekki mikill fyrir mann að sjá væri hann samt gæddur ágætum hæfileikum til að koma fyrir sig^ skammaryrðum og hefði tungu úr fimmklóuðum dreka. Hann gæti bætt því við, sagði mat- sveinninn, að fjölskyldan væri framúrskarandi fín og auðug, svo rík að hún gæti séð af tveimur píkúlum af hýðislausum hrísgrjónum á tíu vikum án þess henni yrði nokkuð um það. Það er mjög athyglisverð upplýsing, sögðu fulltingismennirnir. Ef þeim fannst það, sagði matsveinninn, þá væri bezt fyrir þá að hugsa um það í tíma, nema þeir kysu heldur hin tuttugu herskip. Hvað snerti hann sjálfan og konu hans hefðu þau engan tíma til að hanga yfir götuskríl, þau yrðu að flýta sér inn í húsið og sefa hinar særðu tilfinningar hins unga göfuga herra. Stuðningsmennirnir flýttu sér að hafa tal af móður bófadrottningar- innar. Matsveinninn og fóstran komu inn í eldhúsið. Hann drap tittl- inga framan í mig en hún fór að ná mér í hrein nærföt. Við sáum ráð- stefnunni slitið. Höfuðið á bófadrottningunni var fagurlega skreytt sáraumbúðum. Foreldrar hennar og nágrannar hneigðu sig fyrir föður mínum og þökkuðu honum fyrir hina höfðinglegu gjöf á meðölum og umbúðum. Faðir okkar kom inn þreyttur en rólegur og við urðum öll fegin málalyktum. Móðir mín átti í erfiðleikum með búreikningana um
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.