Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Qupperneq 85
SVERRIR KRISTJÁNSSON:
Annáll erlendra tíðinda 1951
Utanríkissteina Bandaríkjanna í kreppu
Þegar líða tók að lokum síðasta árs varð það æ berara, að utanríkisstefna Banda-
ríkjanna var komin í slíkt öngvegi, að málsmetandi bandarískir stjórnmálamenn
kváðu upp úr með harðari gagnrýni á stefnu Bandaríkjastjórnar en lengi hefur
verið tízka þar í landi. Ósigrar og undanhald þeirra herja, sem bera nafn Sam-
einuðu þjóðanna í Kóreu, gífuryrði MacArthurs hershöfðingja, og ófarir hinna
vígvönu og velvopnuðu hersveita fyrir nokkurnveginn jafijsterkum, en miklu verr
vopnuðum, hersveitum Kínverja og Norður-Kóreumanna, urðu mjög til að auka
óánægju almennings með hemaðaraðgerðir Bandaríkjanna í Kóreu og vöktu ótta
hjá mönnum um afleiðingar af stórstyrjöld í Asíu. í sama mund vaknaði gagnrýni
margra Ameríkumanna á allri utanríkisstefnu Bandaríkjastjórnar, svo sem hún.
hefur verið síðan heimsófriðnum lauk. Svo sem vænta mátti var þessi gagnrýni
túlkuð af mestu offorsi af helztu oddvitum repúblíkanaflokksins, andstæðinga-
flokks stjórnarinnar. Þó má ef til vill segja, að gagnrýni þeirra hafi verið allrætin,
þar sem repúblíkanaflokkurinn hefur sjálfur átt mikinn þátt í að móta utanríkis-
stefnu þá, sem fylgt hefur verið síðustu ár. Gagnrýni ýmissa forustumanna repú-
blíkanaflokksins er því annars vegar tákn um, að flokkurinn ætli að nota sér
ófarir stjórnarinnar sjálfum sér til stjómmálalegs framdráttar, hins vegar er hún
vottur mikillar óánægju, sem nú breiðist út eins og landfarsótt meðal amerísku
þjóðarinnar. En hvemig sem á málið er litið, þá er það eitt víst, að ameríska
þjóðin stendur ekki sem órofa heild að heimsvaldastefnu Bandaríkjanna. Utan-
ríkisstefna Bandaríkjanna er stödd í mikilli kreppu, sem læsir sig ekki aðeins mn
sjálf Bandaríkin, heldur um allan heim, og hefur flett ofan af miklum klofningi
í flokki þeirra ríkja, sem Bandaríkin hafa teygt til fylgilags við sig með lánum,
vingjöfum og hótunum. Tveir Bandaríkjamenn hafa túlkað þessa stjórnmála-
kreppu betur en flestir menn aðrir. Annar þeirra er Herbert Hoover, fyrrum forseti
Bandaríkjanna, hinn er Joseph Patrick Kennedy, fyrrum sendiherra Bandaríkjanna
í Lundúnum. Báðir þessir menn fluttu opinberar ræður um utanríkisstefnu Banda-
ríkjanna nokkru fyrir áramótin, og fara þær hér á eftir, að sumu leyti orðréttar,
að sumu leyti í útdrætti.