Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Page 104

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Page 104
94 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR •að hafa glampað á góðmálm. Það hefur fallið í hlut söguritarans að skipa efn- inu niður, færa það saman, er saman átti, sníða burt endurtekningar. Gegnum verkið allt skynjar athugull lesandi haga hönd þjálfaðs rithöfundar, sem kann að setja saman bók. Satt er það, að þetta verk sækir ekki meginstyrk sinn í fasta byggingu, en mér er þó nær að halda, að skipulegri heild hefði ekki verið unnt að skapa úr jafn-sundurleitum efniviði og þarna var fyrir hendi. Hitt er svo annað mál, hvort ekki hefði að skaðlausu mátt sleppa einhverju af sögum hins fjölvísa ■og skrafdrjúga öldungs. En hvað sem því líður, þá hefur þessi þáttur verksins hvorki verið fljótunninn né vandalaus. Annað höfuðverkefni söguritara er hið ytra snið frásagnarinnar, áferðin, mál og stfll. Víst er það auðsætt, að hann gerir sér allt far um að láta hinn munnlega frásagnarstfl sögumanns njóta sín sem bezt. En hitt liggur eigi að síður í aug- um uppi, að verk eins og þetta hlýtur að bera höfundi sínum (þ. e. söguritara) margháttað vitni um stfl og ritsnið. Kunnáttu og gáfum Þórbergs Þórðar- ■sonar á því sviði þarf ekki að lýsa. Það þekkir hver læs Islendingur. Þá er þessu verki lokið og bókmenntir okkar einu merkisriti auðugri. Okkur samtíðarmönnum þykir það bæði nýstár- legt og skemmtilegt, en samt grunar okk- ur, að það muni þykja enn girnilegra til fróðleiks, er stundir líða. Það hefur tek- ið höfundinn langan tíma, sem von er til um slíkt risaverk. Má og vera, að það hafi gripið hann svo föstum tökum, að honum veitist erfitt að hrista það af sér og byrja á nýju. Það mun honum þó tak- ast, og þá getur hann horfið aftur að sinni eigin æfisögu. Hann hefur þegar gefið okkur ýmsa þætti úr henni, í Bréfi til Láru, íslenzkum aðli, Ofvitanum og nokkrum ritgerðum á víð og dreif. Þeir þættir hafa verið þannig vaxnir, að þeir hafa æst upp í okkur löngun í meira. Svo er hamingjunni fyrir að þakka, að þótt Árni prófastur sé liðinn, þá er frásagnar- listin ekki útdauð á Islandi. Enn eru hér moldu ofar menn, sem búa yfir þeirri snilligáfu, þeirri einurð og frumlegri hreinskilni, sem þarf til þess að skapa merkileg verk. Til eru þeir, er sjá ofsjónum yfir því, að Þórbergur Þórðarson skuli hafa eytt hátt upp í áratug af æfi sinni til þess að færa i letur sögu Árna klerks. Það skal þó ekki harmað, þar sem árangurinn er jafnglæsilegur og raun ber vitni. En þótt sjálfsæfisaga Áma Þórarinssonar í þeim búningi, sem hún hefur hlotið, sé stór- mikill fengur íslenzkum bókmenntum, munu margir vænta þess, að sjálfsæfi- saga Þórbergs Þórðarsonar, ef skrifuð yrði, myndi reynast enn stærri viðburð- ur í bókmenntasögunni. Á.H. Steinn Steinarr: 100 kvæði. Snorri Hjartarson valdi kvæðin. Útgefandi: Helgajell, Rvík 1949. Þetta er ein þarfasta ljóðabók, sem út hefur komið á seinni árum. Þær fjórar ljóðabækur, sem áður höfðu komið út eftir Stein, eru uppseldar, sumar ófáan- legar með öllu, en aðrar til hjá einstaka fornsala, og ljóð hans hvergi aðgengileg almenningi. Hins vegar hafði Steinn Steinarr unnið sér þá viðurkenningu sem skáld, að mörgum lék liugur á að kynn- ast ljóðum hans fleirum en þeim, sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.