Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Page 126

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Page 126
116 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR sérstaklega að takmarki, að gefa almenningi kost á að eignast úrvals bókmenntir við svo lágu verði, að viðráðanlegt væri. Jafnframt áttu þessi samtök að tryggja bókaútgáfunni það stóran lesendahóp, að hún nyti nauðsynlegs öryggis til starf- semi sinnar. Með þessari útgáfustarfsemi var sótt fram í áttina að því marki, að þjóðin bæri það nafn með rentu að vera kölluð bókhneigð þjóð. Brautryðjendur félagsins voru í hópi þeirra hugsjónamanna, sem þjóð vor á mest að þakka. Það voru menn, sem ekki gátu horft upp á það, að rotnun kreppuþjóð- félagsins læsti sig svo í íslenzka bókmenningu, að menningarafrek þjóðarinnar stöðnuðu eða innfúnuðu. Þeir fundu að hér var þörf á „vakandi önd“ til þess að verja andlegt fjöregg þjóðarinnar, vemda menningararf hennar og spyma gegn því, að hún veslaðist upp af því andlega tröllamjöli, sem heimsafturhaldið sáld- aði þá „vítt of veröld alla“ yfir hvem frjálsan gróðuranga, sem gerði tilraun til að þroskast og bera ávöxt mitt á fimbulvetri fjárskorts og þrenginga. Stofnendumir ætluðu útgáfunni mikið hlutverk. Stórhugurinn minnti á Fjölnis- menn. Draumar hrautryðjendanna voru auðvitað miklu stærri en möguleikar urðu á að íklæða veruleika á skömmum tfma. Þeir vildu helzt taka til meðferðar sem flestar bókmenntagreinar árlega. En hversu háleitar hugsjónir, sem forvígismennirnir hafa átt, hlaut tíminn einn að skera úr um það, hvert gildi þær hefðu í sér fólgið eða hversu haldgóðar þær reyndust, er til framkvæmdanna kom. Mál og menning hlaut líka brátt sína eldskírn. Andstæðingar þess, botnlanga- totur hins alþjóðlega auðvalds, áhangendur auðsáróðursins, ráku upp ramakvein. Hér var hætta á ferðum. Hér gat verið í uppsiglingu áróður, sem banvænn gæti reynzt hinum heilaga auðsáróðri. Nú var mikið að gera og feikn í húfi, velferð hins íslenzka afturhalds eða ríflega það. Andstæðingarnir stofnuðu til samtaka gegn hinu nýja félagi og sögðu því stríð á hendur leynt og ljóst. Mál og menning hafði hafið það merki, sem fallið var, að efna til landssamtaka um víðtæka bókaútgáfu. Til þess að undirbjóða Mál og menningu tóku andstæðingarnir að gefa lands- fólkinu bækur, og gera annað, sem í þeirra valdi stóð til að koma félaginu á kné. Það, sem fyrir andstæðingum félagsins hefur vakað, hefur vafalaust verið ein- okun andlegra verðmæta fremur en öfund eða fordild. En hvað um það; þessu stríði lyktaði, sem kunnugt er, mjög líkt og stríði nazismans gegn frelsisunnandi þjóðum heims. Einokunarsinnar andlegra verðmæta koma og fara, en Mál og menning lifir. Aðrir og alvarlegri örðugleikar en að framan ræðir hafa orðið á vegi félagsins. Á ég þar við stríðið og stríðsgróðann. Félagið Mál og menning var stofnað á þrengingatímum, eins og áður er sagt. Má því merkilegt heita, að það skyldi lifa af stríðsgróðatímabilið. „Það þarf sterk bein til að þola góða daga“. Allar áætlan- ir bæði um efni og fjármagn rugluðust auðvitað geysilega á þeim tímum. Útgáfu- starfsemi var stórum kostnaðarsamari en áður og bækur hraðstigu í verði. Hins vegar var félagið trútt stefnumarki sínu, því, að gefa út bækur við kostnaðarverði En sökum hins lága árgjalds varð að draga útgáfuna dálítið saman frá því sem vai
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.