Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Síða 25
FORRÆÐIÐ í AUSTUR-ASÍU
einstök í sinni röð fyrir þá sök, að
þar er bannað að Japan hafi herbún-
að af nokkru tagi og lýst yfir því, að
japanska þjóðin muni alltaf hér eftir
afsala sér rétti til að heyja styrjöld
eða beita hótunum og ofbeldi til að
setja niður deilur milli þjóða. Hvers-
konar hervæðing er stjórnarskrár-
brot.
í Tokyo var dómur settur yfir
stríðsglæpamönnum, sem starfaði til
1949 og dæmdi um 700 til dauða og
um 2250 til fangelsisvistar. Meðal
hinna dauðadæmdu voru nokkrir
háttsettdr herforingjar og stjórnmála-
menn.
A fyrsta ári hernámsins var herinn
allur leystur upp, svo og allar stofn-
anir sem tilheyrðu honum; ennfrem-
ur voru öll félög þjóðernissinna er
stóðu í sambandi við herinn leyst upp
og meðlimir þeirra sviptir rétti til að
gegna'opinberum embættum. 011 her-
gagnaframleiðsla var bönnuð og
þungaiðnaður lagður niður. Eignir
Japana erlendis voru gerðar upptæk-
ar. Nokkrat ráðstafanir voru gerðar
til að leysa upp auðhringana; en
minna varð þó um framkvæmdir en
til stóð.
Langmikilvægasta breytingin sem
gerð var í efnahagsmálunum að
frumkvæði hernámsyfirvaldanna var
á sviði landbúnaðarins. Fyrir her-
námið voru um 70% allra japanskra
bænda annaðhvort að nokkru eða
öllu leyti leiguliðar; kjör þeirra voru
afleit. Á árunum 1947—1949 keypti
ríkið og seldi aftur leiguliðum
5.800.000 ekrur lands. Voru þá 92%
allra jarða í Japan orðin bænda eign.
Japanskir bændur segja, að bóndi,
sem ekki á jörð, sé eins og sálarlaus
maður. Árið 1949 höfðu langflestir
japanskir bændur öðlazt „sál“. Sjálf.
ur Mac Arthur fór ekki dult með það,
að þessi „landbúnaðarbylting“ var
gerð til þess að koma í veg fyrir, að
japanskir bændur færu að dæmi
stéttarbræðra sinna í Kína og hölluð-
ust að kommúnisma. Hinir japönsku
sjálfseignarbændur áttu að verða
máttarstólpi kapítalistiskra stjórnar-
hátta. Á þeim áratug, sem síðan er
liðinn, hefur velgengni farið vaxandi
meðal japanskra bænda, verðlag hef-
ur hækkað, afrakstur landsins aukizt
og fjárfesting í landbúnaði verið
meiri en nokkru sinni áður. Vegna
aukinnar kaupgetu bænda hefur
heimamarkaðurinn fyrir iðnaðarvör-
ur aukizt; en sú aukning er afar
mikilvæg fyrir iðnaðinn.
Á sviði stjórnmála eru japanskir
bændur miklu áhrifameiri nú en
nokkru sinni áður; breytingar á
skattalögum til hagsbóta fyrir þá
liafa verið gerðar; verðlagsákvæði
hafa verið sett í sama tilgangi. Áður
báru stjórnmálamenn „mikla um-
hyggju fyrir landbúnaðinum, en enga
fyrir bændum“.
Þrátt fyrir ofannefndar kjarabætur
eru vandamál japanskra bænda mikil
263