Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Page 63

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1960, Page 63
NOLDUR hurðina eftir opna. Maðurinn skellti hurðinni aftur. hún skall í falsið og opn- aðist aftur til hálfs. Eg get svarið það, að ég hef ekki skilið hurðina eftir opna. Um leið og hún sagði þelta hætti hún við það seni hún var að gera og leit á manninn með vipr- ur í kringum munninn. Svo heygði hún sig niður aftur og hélt áfram að leggja niður steinana með jöfnum millibilum. Þú ætlar þó víst ekki að fara að segja mér, að hurðin hafi opnazt af sjálfri sér. Heldurðu að ég sé svo vitlaus? Nú getur ekki verið að hann hafi opnað hana? Hann? Hvernig hefur hann átl að geta velt steininum frá? Ekki þá netna þú hafir látið hann það illa fyrir að hann hafi dottið. Maðurinn leit í kringum sig, snérist í hring, opnaði betur hurðina og gægðist inn í kofann; leit svo á kon- una og á netið. Og hvar er svo steinninn? — Þarna er hann. Þú hefur tekið hann til að leggja ofan á þetta stiuræksni þitt. Og hundurinn strokinn rétt einu sinni. Maðurinn bölvaði ráðalaus og snéri sér að konunni. Það er ekki . .., en konan tók fram í fyrir honum. Ef þú ællar að hæna þennan hund að þér, þá er ekki rétta ráðið að loka hann alltaf inni. Þannig er ekki rétta ráðið að hæna dýr að sér. En það er víst þá það rétta að hleypa þeim út og láta þau sleppa og strjúka? Mér er alveg sama hvort það eru dýr eða menn, sagði konan með þunga, jiað verður að hæna ])au að sér og láta Jjau finna góðvild, en ekki þessa illsku og þjösnaskap eins og þú gerir. Og ef þú hefðir sýnt honum einhvern tímann annað en illræti, jjyrftir þú ekki alltaf að vera á Jjönum að leita að honum um leið og þú sleppir af honum augunum. Hún lét manninn ekki komast að. Það Jjarf að vera meira og minna bogið við þann rnann, sem ekki getur hænt að sér hund. Og Jjað er ekki nema von, að illa fari fyrir svoleiðis manni. Því síður getur svoleiðis maður hænt að sér nokkurn lifandi mann. Það ætla ég bara að leyfa mér að segja. Konan þagnaði og horfði á manninn. Já. já, Jjarna kemur þú og Jjín speki, sagði maðurinn með fyrirlitningu. Ég er búinn að fara fimm eða sex sinnum niður í Jjorp til að ná í hann og Jjú sérð jafnskjótt um að hann sleppi á ný. Já, ég sagði þú, með allri þinni miklu góðvild. Hann ætti þó að hænast að þér fyrst Jjú veizt svo vel hvernig á að hæna að sér dýr og menn. Hann lagði fyrirlitningaráherzlu á þú og þér og breytti um tón. En sannleikurinn er sá, að þú hænir engan að þér. Þú sérð það bezt á þessum hænum þínum. Þú þarft 301
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.