Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Blaðsíða 9

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Blaðsíða 9
ÞJÓÐFRELSISBARÁTTA OG SÓSÍALISMI lyndið komi í Ijós í dag eða hafi gert það í gær. En því halda reyndar áróð- ursmenn heimsveldanna fram. Hver hefur þá verið reynsla hins „þriðja heims“ í þessum efnum að undanförnu, til dæmis á síðustu tíu til fimmtán árum? Dæmin sem greind voru áðan segja sína sögu. En ef vel ætti að vera þyrfti að svara spurning- unni með athugun sem næði jafnt til Asíu, Afríku og Suður-Ameríku. Hef- ur það komið í ljós í viðskiptum heimsveldanna við þessi lönd að heimsvalda- og nýlendustefnan sé bú- in að afneita eðli sínu? Var viðskiln- aður Bretlands við Indland með þeim hætti að þá ályktun mætti draga? Hvað um skiptingu Indlands? Hvað um skipti Hollendinga við Indó- nesíu? Frakka við Indókína? Hvað um írak og íran? Egyptaland? Tún- is, Alsír og Marokkó? Hvert hefur hlutverk, Breta og Frakka verið í Svörtu-Afríku ? Hvað ályktanir ber að draga af atburðunum í Kongó? Hverjir hafa grætt mest á afskiptum Bandaríkjamanna í öllum þessum löndum? Um bandamenn vor íslend- inga í Portúgal mun ekki hlýða að tala, en samskipti Bandaríkjamanna við rómönsku Ameríku hljóta að vera sérstakrar athugunar verð, ekki sízt með tilliti til þess að Bandaríkjamenn eru vanir að benda hinum gömlu ný- lenduríkjum á sjálfa sig sem fyrir- mynd um ósíngirni. Það er skiljanlega ekki tækifæri til að gera slíkar athuganir hér, enda má benda á ýmsar greinar varðandi þessi efni í Tímaritinu á undanförnum ár- um. Hér verður aðeins reynt með fá- einum dæmum að sýna hver hafi ver- ið hin skilorðsbundnu viðbrögð kapí- talismans við frelsissókn hins „þriðja heims“ á síðustu árum og hversvegna hætta sósíalismans er þar jafn erfitt viðfangsefni vestrænum stjórnmála- mönnum og kveinstafir þeirra bera vitni um. 2 Fyrst er að geta þess að þjóðir ný- lendna og hálfnýlendna eru nú ein- mitt farnar að gera sér ljóst að sjálf- stæðið er orðið tómt án efnahagslegs fullveldis. En tvær höfuðforsendur þess fulla sjálfstæðis er óhætt að segja að séu þær sömu hvarvetna í hinum „þriðja heimi“: a) iðnvæðing í þágu landsmanna sjálfra og b) landbúnað- arbylting. Hvorttveggja verður að fara saman og víðasthvar er landbún- aðarbyltingin ekki óbrýnni en iðn- væðingin. Þetta eru þau verkefni sem hin nýjrjálsu ríki og hálfnýlendurnar komast ekki hjá að inna af hendi, vilji þau ekki halda áfram að vera efnahagslegar nýlendur. Og ef nýkapí- talisminn vill sanna velvild þá sem hann kveðst bera til hins „þriðja heims“ verður hann að gera það með því að aðstoða hann á raunhlítan hátt við framkvæmd þessara verkefna. Hvernig lítur þessi dálkur í siðferðis- reikningi auðvaldsheimsins út? 103
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.