Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Side 19

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Side 19
ÞJÓÐFRELSISBARÁTTA OG SÓSÍALISMI ing. Með öðrum orðum: þeir hafa gert sér grein fyrir því að höfuðand- stæðingur þeirra var ekki hin franska þjóð heldur hinn franski kapítalismi. Meðal annars fyrir þá sök munu frið- arsamningarnir í Évian hafa verið mörgum Alsírmanni sár nauðsyn, að með þeim er frönskum kapítalisma tryggð táfesta í Alsír enn um sinn. Að vísu hafa umboðsmenn hans orðið að skrifa undir mjög þýðingarmiklar tilslakanir í Évian, þar sem í samn- ingunum er gert ráð fyrir heimild al- sírsku ríkisstjórnarinnar til þjóðnýt- inga og róttækra ráðstafana í land- búnaði. Sömuleiðis er tiltekið að beinni efnahagsaðstoð Frakka verði þann veg háttað að Alsírstjórn taki ákvarðanir um það til hvaða fjárfest- ingar hún verði notuð, — en þó svo (og þetta á einnig við um væntanleg- ar þjóðnýtingar) að franska stjórnin samþykki þær ákvarðanir. Um, þessa efnahagssamvinnu við franska kapítalismann, — sem sumir kalla einskonar NEP-pólitík alsírsku byltingarinnar, — getur auðvitað brugðið til beggja vona; það verður reynslan ein sem sker úr, og það verð- ur bæði undir alþjóðlegum kringum- stæðum og styrkleika og einbeitni al- sírsku ríkisstjórnarinnar komið, hvort sú samvinna verður frjálsu Al- sír til gagns eða ekki. Þó vopnavið- skiptum hætti mun hvert spor í frels- isátt kosta harða baráttu, því áætlun franska nýkapitalismans um Alsír miðar ekki beinlínis að því að gera landið að raunverulega sjálfstæðu ríki. Hver stefna hans er má lesa út úr þeirri fimmáraáætlun sem samin var fyrir Alsír árið 1958 og var byrjað að framkvæma að einhverju leyti 1959. Auðvitað breytist aðstaða franska kapítalismans við það að hann hefur að lokum neyðzt til að viðurkenna rétt Alsírmanna til fullveldis, en það er þó varla fjarri lagi að gert hafi ver- ið ráð fyrir þeim möguleika við samningu Constantine-áœtlunarinn- ar, og að reynt verði einmitt að að- laga þá áætlun nýjum kringumstæð- um, frekar en að leggja hana fyrir róða. Hún væri sú gagnsókn sem franska auðvaldið beindi gegn sjálf- stæðu Alsír, eftir að hervaldið hefur brugðizt. Frá sjónarmiði frönsku stjórnarinnar er alls ekki fráleitt að það herbragð geti heppnazt með hjálp ítaka sem samningarnir tryggja Frökkum í Alsír. Til þess að svo mætti verða þyrfti ekki annað en dálítið óá- kveðna eða sundurþykka ríkisstjórn í Alsír. Constantine-áætlunin hafði að op- inberu markmiði að auka þjóðartekj- ur Alsírbúa um 7,5% á ári, iðnvæða landið, koma þar á „nútímaþjóðfé- lagi“ á kapítalistískum grunni. Til þess að gera sér grein fyrir því hve vandamál landbúnaðarins hljóta að skipa mikið rúm í öllum alvarleg- um framfaraáætlunum fyrir Alsír, ber að gæta þess að 7,6 milljónir TÍMARIT máls og menningar 113 8
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.