Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Page 20

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Page 20
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR landsbúa (af um 10 milljónum) „lifa“ á landbúnaði. Lija er rétt að setja innan gæsalappa: því ef gert er ráð fyrir að af þessum 7,6 milljónum séu 2,6 milljónir vinnandi menn, þá hafa þeir að meðaltali vinnu í 47 daga á ári, með öðrum orðum: af 2,6 milljónum bænda og landbúnaðar- verkamanna eru 2 milljónir atvinnu- leysingjar. En til þess að menn skilji, að hve miklu leyti eymd alsírskra bænda er eymd nýlendukúgunar væri nægjanlegt að geta þess að meðaljörð serknesks bónda er 11,6 ha, en bónda af evrópskum uppruna 125 ha. (í rauninni er þó samþjöppunin miklu meiri en þessar tölur gefa í skyn, því að af 22000 „evrópskum“ bændum sem nytja samtals 2,8 milljónir ha. eiga 8000 91% jarðanna.) En einnig má minnast þess að evrópskir bænd- ur sitja að frjósömustu jörðunum í Alsír, því landnám Frakka fór fram á þann hátt, fyrir aldamót, að hinir innfæddu voru hraktir þaðan burt með hervaldi, og hafa síðan orðið að láta sér nægja hrjóstrugustu og rýr- ustu jarðirnar. Hér við bætist svo eitt atriði enn, sem er raunar táknrænt um búskap Evrópumanna í hvaða ný- lendu sem er: Evrópskir landnemar í Alsír hafa mergsogið jörðina, ræktað hana með það eitt í huga að ná sem mestum gróða strax, án tillits til þess hvaða afrakstur hún gæfi ókomnum kynslóðum. En Alsír er þurrkaland og jarðvegurinn í hættu ef ekki er gættþeirrar varúðar sem mörg hundr- uð ára reynsla hafði kennt bændum þessa lands, sem einusinni var korn- forðabúr Rómaveldis og síðar hélt líf- inu í Frökkum, á tímum byltingarinn- ar. En ætli þessir búskaparhættir ev- rópskra landnema stafi ekki af eðli- legum sálrænum viðbrögðum manna sem gera sér undirniðri Ijóst að ráns- fengur er skammgóður vermir? Af þessu er augljóst að engin um- bótaáætlun getur komið að gagni í Alsír nema þar sé vandamálum land- búnaðarins fullur gaumur gefinn. Og ekkert nema róttækar ráðstafanir munu duga, ráðstafanir sem miðuðu að því í fyrsta lagi að skila landsbú- um aftur ránsfeng evrópskra stór- bænda, en styddu í öðru lagi að því að færa vinnubrögð í nútímahorf, og stemmdu stigu fyrir blóðnytkun jarð- arinnar. Þó iðnvæðingin sé önnur höfuðnauðsynin, og verði að taka við nokkru af því vinnumagni sem fer nú til einskis í sveitunum, þá kæmi hún að litlum notum út af fyrir sig, og væri auk þess of seinvirk lækning á því afskaplega eymdarástandi sem ríkir í Alsír. Umbætur á landbúnað- inum mundu vera fljótvirkari og ódýrari aðferð til að hefja lífskjörin almennt upp úr því núlli sem þau eru nú í. En þegar Constantine-áætlunin er athuguð kemur í ljós að þar er land- búnaðurinn í lágum sessi. Og það er að vísu eðlilegt, því áætlunin er i 114
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.