Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Page 24

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Page 24
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR kapítalismi, enda þótt hann byrji á þjóðlegum grunni, hættir fljótlega að líta á hagsmuni þjóðar sinnar sem sína hagsmuni og gerist meðhjálpari erlendrar undirokunar. Onnur orsök er sú að frelsishreyfingar hins þriðja heims eru hvarvetna alþýðlegar hreyf- ingar, — enda vant að sjá hvernig annað gæti orðið, -— og hirða því lítt að skipta á erlendri forréttindastétt fyrir innlenda. En það atriði sem þyngst er á metunum er þó það að viðfangsefnin sem bíða hverrar þeirr- ar þjóðar sem hingaðtil hefur verið flækt í net vestrænna heimsvelda eru svo risavaxin og brýn, að kapítalist- ískt skipulag með mælikvarða gróða- möguleikanna og frelsi fjármagnsins og sína sigildu 3% framleiðsluaukn- ingu að áttavita er enganveginn lík- legt til að geta leyst þau. Slíkar eru ástæður þess að því betri ráð sem hagfræðingar og stjórnfræðingar vestræns frelsis og brain-trust Kenne- dys finna til að hindra að hinn „þriðji heimur“ gerist kommúnistísk- ur, þ. e. a. s. því lengur sem þeim tekst að varna honum frelsis og hafa hann að féþúfu, því óhjákvæmilegri og algerari verða endalok kapítalism- ans í þeim heimi ... Enda þótt í þessari grein hafi eink- um verið dvalið við undirstöðu þess dulbúna stríðs sem kapítalistísk stór- veldi heyja nú gegn fátækum þjóðum, þ. e. hinar efnahagslegu forsendur þess, þá er höfundi hennar vel ljóst að ekkert sögulegt ferli hefur nokkurn- líma fylgt beinni braut. Eins og fram- ar í greininni er reyndar minnzt á er ýmis mismunur á aðstöðu hinna und- irokuðu þjóða í þessari baráttu. Það má ekki gleyma þeim áhrifum sem hernaðarleg og „heimspólitísk” við- horf hafa oft og tíðum á afstöðu heimsveldanna. Það má ekki heldur gleyma því að þar sem kapítalisminn á á hættu að missa allt gefur hann eft- ir til að halda nokkru. Aðferðir heimsveldissinnaðrar pólitíkur geta einnig verið bæði skynsamlegar og heimskulegar, og er barátta O.A.S. í Alsír, sem stafar reyndar af því að franski nýkapítalisminn hefur ákveð- ið að fórna hagsmunum hins „úrelta“ kapítalisma, dæmi hins síðara, — þrátt fyri það þó O.A.S. kunni eins líklega að vinna sigur, sem yrði pyrr- husarsigur, í þeirri baráttu. Það er jafnvel ekki útilokað að undir mjög sérstökum kringumstæðum geti einhverskonar takmörkuð samvinna við auðmagn nýlenduríkisins orðið bráðabirgðalausn, ef foringjar frels- irbaráttunnar kunna að varast þær hættur sem slíkri samvinnu hljóta að vera samfara. Þesskonar samvinna mun þó aldrei ráða úrslitum um sókn undirokaðra þjóða til fullveldis, held- ur sú vissa að enginn mun leysa þær ef þær gera það ekki sjálfar og sá skilningur sem kann að greina hvert er eðli andstæðings þeirra. 118
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.