Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Page 31

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Page 31
LITLA BÓKIN UM SÁLINA OG HALLDÓR LAXNESS „þar sem vatnið í ánum er kalt og tært og hljóð þeirra kátt einsog litlar bjöllur“. Þessi setning — sem á sér enga beina fyrirmynd í Bókinni um veginn, að því ég bezt veit — kemur aftur og aftur eins og stef í sögunni, sem endar þannig: „en duft stórkans- ins var lagt til hvíldar í átthögum hans hinum hæðóttu kjarrskógum í norðri þarsem vatnið í ánum er kalt og tært og straumhljóð þeirra kátt einsog litlar bjöllur“. Þessi náttúru- lýsing virðist tákna nokkurs konar ó- háðan veruleika handan við óró og stríð hins venjulega mannlífs. Og mér finnst sennilegt, að hún sé í einhverju sambandi við það sem Halldór nefnir draum taóismans um sveitasæluna. Sá draumur gerir einnig vart við sig í Atómstöðinni (1948), og er þannig orðaður af organistanum: „Fegurstur garða er þó sveitin, hún er garður garða. Þegar kjarnorku- spreingjan hefur jafnað borgirnar við jörðu í þessari heimsbyltíngu sem nú stendur, af því þær eru orðnar á eftir þróuninni, þá hefst menníng sveitanna, jörðin verður sá garður sem hún aldrei var fvr nema i draum- um og ljóðum —“. Organistinn lifir einmitt að mörgu leyti í anda taóism- ans — enda var aðalfyrirmynd hans, Erlendi í Unuhúsi, snemma lýst af Halldóri sem manna ríkustum af taó. Hús organistans er eins og heimurútaf fyrir sig í miðri höfuðborginni. í þvi húsi gildir annar mælikvarði heldur en í borgaralegu þjóðfélagi. Þar mæt- ast glæpamenn, skækjur, lögreglu- menn og sveitaprestar í bróðerni, í tákni hinnar fullkomnu mannelsku organistans, hins algera skorts á sið- íerðilegri vandlætingu. Samband taó-hugtaksins við ís- lenzka alþýðu, eins og það birtist fyrst í Alþýðubókinni, kemur einna greinilegast í ljós í Brekkukotscinnál (1957). Þegar ferðagreinin um taó- ismann, Þessir hlutir — eða tónlist af streingjum, var endurprentuð í Gjörníngabók (1959), þá var hún með einkunnarorð eftir ömmu gömlu í Brekkukotsannál: „Ég held nú að þann saung sem við heyrum ekki hér í Brekkukoti sækjum við ekki niðrá Austurvöll, skepnan mín.“ Það er sem sagt engin tilviljun. Þó að Brekkukot sé rammíslenzkt hús, íbúar þess rammíslenzkt fólk, þá leynir sér ekki, að höfundurinn hefur séð það í ljósi taóismans. Taó er að vísu ekki nefnt, beinlínis, en nálægð þess er auðfundin. í nítjánda kafla, Morgunn eilífðar; endir, segir Álfgrímur frá morgunverkunum með afa sínum: „Þessir mornar þegar við vorum að vitja um hrokkelsin á Skerjafirði, og þeir voru í raun og veru allir einn og sami morguninn: altíeinu eru þeir liðnir. Stjörnur þeirra eru fölnaðar: kínversku bókinni þinni lokað.“ Hvaða kínversk bók gæti það verið — ef nokkur er — nema Bókin um 123
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.