Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Side 37

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Side 37
LITLA BÓKIN UM SÁLINA OG HALLDÓR LAXNESS persónur leiksins hafast að á einveru- stundum sínum. Enginn höjundur gerir athugasemdir við athafnir þeirra. Breytingin frá skáldsögu til leikrits var ekkert erfið fyrir mig. Ég hafði lengi verið á leið burt frá hinni hug- rœnu (subjektiv) skáldsögu, sem ég byrjaði á, í áttina til hins nakta leik- rits (drama). Síðasta skrefið var all- stutt. Við erum ef til vill komin ískyggi- lega langt frá taóismanum. Það ligg- ur sem sé í augum uppi, að þessar hugleiðingar Halldórs um dýrleik orða og frásagnarlist eiga rætur sínar að rekja til aðdáunar hans á fornbók- menntum íslendinga. En áhrif þaðan á stíl hans komu fyrst greinilega í Ijós í íslandsklukkunni (1943). Þó finnst mér einhvern veginn, að þessi viðleitni hans að gera list sína æ hlut- lægari samrýmist einnig vel hug- myndum hans um taóismann. í sög- unni um Temúdjín hefur Halldór þýtt úr Bókinni um veginn meðal annars þessa setningu: „í hjólnöfinni mæt- ast þrjátíu pílárar, en væri það ekki fyrir öxulgatið stæði vagninn kyr.“ En í ofannefndum ritdómi lofar hann einmitt þá setningu sem eina þá full- komnustu „sem til er í samanlögðum bókmentum heimsins“. Ég er síður en svo viss um, að ég skilji hversvegna. En ég ímynda mér, að hann hafi getað skilið þessi orð ekki sízt sem einfalda og djúpskyggna lýsingu á leyndardómi skáldskaparins. Gegnir ekki skáldið hlutverki öxulgatsins í verki sínu? Er hann þar ekki um leið allt og ekkert? Þessi hugsjón hlutleysisins og ó- persónuleikans hlýtur að fela í sér það miklar kröfur, að það liggur við að öll listræn tjáning verði ómöguleg. í ritdómi þeim, sem ég hef áður vísað til, segist Halldór hafa með Temú- djín-sögunni viljað gjalda Bókinni um veginn þakkir æfi sinnar. „en nú, þegar ég lít enn einu sinni á upphafs- orðin, blygðast ég mín — ’það taó sem verður lýst með orðum er ekki hið eilífa taó’ ”. Brekkukotsannáll fjallar um þennan merkilega tón, sem er til, einhvers staðar, en aldrei virð- ist hægt að ná. Innsta eðli tilverunn- ar, hinu eilífa, verður aldrei lýst. Við getum aðeins lifað það, fundið það — stundum. En snúum aftur að Brekkukoti. Það mætti segja að andi taóismans svífi yfir því heimili eins og yfir húsi organistans í Atómstöðinni. Afi og amma lifa í þeim anda, á sjálfsagðan hátt, án þess að vera með frekari bollaleggingar um afstöðu sína til heimsins. Hinsvegar lifir undir þaki þeirra einn maður, sem hefur kosið hlutverk sitt af ásettu ráði og getur rökrætt hugmyndir sínar; að því leyti minnir hann á organistann. Það er Eftirlitsmaðurinn. Hann hefur verið bóndi, en selt allar eigur sínar til að TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 129 9
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.