Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Síða 59

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Síða 59
LIST OG KAPÍTALISMI vinnubók sína: „Borgarastéttin er að svíkja byltingarfortíð sína til að verja kapítalísk sérréttindi sín og hreiðra um sig sem ríkjandi stétt. Eftir að hafa hrifsað völdin, vill hún ekki láta þau af hendi við almenning. Og þannig hlýtur borgarastéttin smám saman að staðna. Hún tekur höndum saman við afturhald, kirkjuvald og hernaðarstefnu. Ég hlýt að benda á það óaflátanlega og leggja á það áherzlu að borgarastéttin hefur þegar lokið hlutverki sínu og er horfin til afturhaldssemi, svo hún megi halda völdum sínum og auðæfum óskertum og að öll von um öfl morgundagsins er hjá alþýðunni“. í sögum sínum hefur Zola lýst þessu öllu, spillingu og rotnun borg- arastéttarinnar, eymd alþýðunnar, mótspyrnu verkalýðsins — þó án allr- ar vonar um færa leið útúr ógöngun- um — lýst þessu eins og martröð, sem hvílir óaflátanlega á fólki. Þessar „hlutlægu“ lýsingar á hörmungum þjóðfélagsins, sem ekki fela í sér hugsanlega breytingu hörmungar- ástandsins, eru í senn styrkur og veikleiki natúralismans, tvískinnung- ur hans og innri mótsögn. Sú úrslita- stund hlýtur að koma, að natúralist- inn velur annaðhvort þá leið að verða sósíalisti — eða þá hann hneigist til forlagatrúar, symbólisma, dulhyggju, trúarvingls og afturhaldssemi. Zola kaus fyrri leiðina — margir félagar hans fóru hina. Taine fylltist hryll- ingi gagnvart Parísarkommúnunni og gerðist formælandi virðulegrar og trúarlegrar listar, Huysmans flýði fyrst inn í heim sjúkleikans, en síðar á náðir kaþólsku kirkjunnar, Bourget hvarf inní rökkur kristilegrar tilfinn- ingavellu. Ef við nú ennfremur höf- um það í huga, að Henrik Ibsen og Gerhart Hauptmann snérust til sym- bólisma og dulhyggju og August Strindberg hafnaði í nýrómantík og glórulausri hjátrú, þá sjáum við Ijós- lega hin djúpstæðu vandamál natúr- alismans, þessa tvíræðu afstöðu hans, sem leiðir í ýmsar áttir, framávið ellegar afturábak. Symbólisminn og dulhyggjan Umskiptin frá natúralisma til sym- bólisma og dulhyggju eiga sér þjóð- félagslegar rætur, en eru þó jafnframt bundin hinum sérstöku vinnubrögð- um natúralismans. Hver einasta and- leg og listræn uppreisn innan hins borgaralega heims kemst fyrr eða síð- ar í úrslitaaðstöðu, þegar hreyfing fjöldans lætur ekki lengur sitja við mótmælin ein heldur verður bylting- arsinnuð, það er að segja stéttirnar láta til sín taka. Lýðræðislega borg- arabyltingin franska, byltingin 1848 og Parísarkommúnan mörkuðu líka tímamót í bókmenntum og listum; hverju sinni var um það að ræða að taka afstöðu, segjast í lið með fram- sæknum ellegar afturhaldssömum til- hneigingum. Fyrsta öreigabyltingin, 151
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.