Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Qupperneq 81

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1962, Qupperneq 81
POUL P. M. PEDERSEN OG ÞÝÐINGAR HANS 1898 í Norður-Jótlandi þar sem heitir Öst- himmerland. Hann vann fyrir sér í æsku hörðum höndum, allt það sem til féll á bæj- um í sveit. Hann segir sjálfur svo frá að sínir vinir á þeim árum hafi verið lömb, hvolpar og kettlingar. Hann minnist þess einnig með þakklæti að hann ólst upp við það landslag, sem í hinni mjúkfróu Dan- mörku heyrir til fágæta: hæðóttu með víð- sýn til allra átta, þar sem vindar léku frjáls- um væng, skammt frá þeim skógi, sem Dan- mörk á stærstan, skógi gamalla sagna um ræningja, ókindur og huldur, skógi, þar sem enn þann dag í dag ganga til beitar í rjóðrum, hind og hjörtur hinn hornprúði. Bókhneigð unglingsins og lestrarlöngun vaknaði snemma, en í kjölfar þeirra siglir gjarna sú útþrá og löngun til lífsfyllingar, sem ekki lætur að sér hæða, en býður byrg- inn féleysi og hverskyns erfiðleikum. Að loknu gagnfræðaprófi hyggst Poul P. M. Pedersen snúa sér að blaðamennsku og hýr sig um skeið undir það starf, — og skal þess getið hér að hann hefur um langt skeið ritað kjallaragreinar í Berlingske Aft- enavis. Hann lýkur stúdentsprófi 1920 og leggur stund á germönsk málvísindi við Kaupmannahafnarháskóla. Árið 1930 gaf hann út þýðingar sínar á klassiskum Ijóð- um þýzkrar tungu. Hann hefur einnig þýtt ensk og amerísk nútímaljóð, sem birzt hafa í blöðum og tímaritum og verið flutt í danska útvarpið. En fyrsta ljóðabók hans frumort hafði komið út 1921 og sú næsta 1929, en þær munu vera orðnar nær tíu að tölu. Urval úr þeim kom út 1948, Og slukk- es alle sole —, en það nafn er tekið úr kunnum ljóðlínum eftir Ingemann. Poul P. M. Pedersen hefur löngum starf- að sem bókmenntalegur ráðunautur for- leggjara í sínu heimalandi og ritstýrt meðal annars stórri útgáfu á klassískum verkum danskra höfunda. Honum hefur einnig ver- ið falin útgáfa ýmissa safnrita, meðal ann- ars hinnar stærstu sýnisbókar danskrar ljóðlistar: Levende dansk lyrik fra folke- visen til Drachmann. Hann hefur og gert úrval prýðilegt úr dönskum þjóðkvæðum og gefið út: Der sidder tre möer —. Þá hef- ur hann oftlega staðið fyrir færeyskum, norskum og sænskum kynningarþáttum í danska útvarpinu og miðlað hlustendum af fróðleik sínum um lönd og listir þessara bræðraþjóða. Hann hefur sýnt frændum vorum, Færey- ingum, hina mestu ræktarsemi og hrifizt af listgetu þessarar fámennu þjóðar, en okkur hér heima mætti vera hún kunnari en er, þó stórum hafi bætt úr þekkingarleysi okkar á færeyskri myndlist, sú hin frábæra sýning er hér var haldin síðastliðið ár. — En Poul P. M. Pedersen hefur þýtt og gefið út þrjár sýnisbækur færeyskrar ljóðlistar, þá síðustu og stærstu 1956 og heitir hún Mellem Bjærg og Brænding. Af því yfirliti um störf og ævi Pouls P. M. Pedersen sem hér hefur verið gert (en ég hef einkum stuðst við Svenska uppslags- boken og Kraks Blá Bog 1961, fyrir utan nokkur atriði sem ég hef beint frá rithöf- undinum sjálfum) má sjái að hann hefur sannarlega tekið höndum til á vettvangi nor- rænna bókmennta og víðar, — og er þá að mestu eftir að minnast þess þáttar sem að okkur snýr, þjóðarinnar, sem löngum hefur kennt sig við ritstörf og bækur. I ársbyrjun 1958 tekur hann til við það verk, sem hann síðan hefur látlaust unnið að, en það er stór sýnisbók íslenzkra ljóða, allt frá 1919 til þessa dags. Hefur þýðandi svo ráð fyrir gert að þetta safn hefjist með kvæðum Davíðs Stefánssonar og að í því verði allt að þrjú hundruð Ijóð eftir ís- lenzka höfunda á þessu tímabili. Verður ís- lenzkum myndlistarmönnum falið að skreyta bókina, en samvinnu um útgáfu hafa ráðið með sér Helgafell hér heima, Gyldendal í Danmörku og Gyldendal Norsk 173
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.